Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segist ekki hafa brugðist dóttur Halldóru

Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri hafnar full­yrð­ingu Halldóru Bald­urs­dóttir um að hann hafi brugð­ist dóttur hennar Helgu Elínu. Í 12. tölu­blaði Mannlífs, sem kom út á föstu­dag, gagn­rýnir Halldóra emb­ættið fyrir þá sök að mað­ur­inn sem var kærður fyrir að brjóta kyn­ferð­is­lega gegn dóttur hennar skuli ekki hafa verið leystur undan vinnu­skyldu á meðan málið var rann­sakað.

Segist ekki hafa brugðist dóttur Halldóru
|

Í and­svari sem Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra sendi rit­stjórn Mannlífs segir að hann hafi farið þess á leit við rík­is­sak­sókn­ara í til­efni af umfjöllun um málið í fjöl­miðlum að fá afhent rann­sókn­ar­gögn máls­ins til þess að unnt væri að taka ákvörðun um hvort leysa skyldi lög­reglu­mann­inn frá emb­ætti um stund­ar­sakir eða að fullu. Rík­is­sak­sókn­ari hafn­aði erindi emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra með vísan til heim­ild­ar­skorts í lögum og fékk því emb­ættið ekki rann­sókn­ar­gögn máls­ins. Þar sem beiðni um rann­sókn­ar­gögn var synjað hafi ekki verið grund­völlur til að byggja á að mati emb­ætt­is­ins hvort leysi ætti lög­reglu­mann­inn frá emb­ætti og var rík­is­sak­sókn­ara gerð grein fyrir því.

Haraldur Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóri.

Í umræddu við­tali greinir Halldóra frá því að árið 2007 hafi dóttur hennar, Helgu Elínu sem þá var tíu ára gömul, verið boðið í sum­ar­bú­staða­ferð með skóla­systur sinni, móður hennar og stjúp­föður. Í kjöl­far þess­arar ferðar urðu breyt­ingar á hegðun Helgu en Halldóra tengdi þær ekki við ferð­ina. Fjórum árum eftir umrædda sum­ar­bú­staða­ferð, þann 5. októ­ber 2011 var Halldóra boðuð á fund í skóla dóttur sinnar. Þar kom í ljós að dóttir hennar hafði trúað vin­konu sinni fyrir því að stjúp­faðir skóla­systur þeirra hefði beitt hana kyn­ferð­is­legu ofbeldi í sum­ar­bú­staða­ferð fjórum árum áður.

Málið var strax sett í far­veg, það kært til lög­reglu og rann­sókn hófst, en um það bil einu ári eftir að málið var kært var það fellt niður og gerir Halldóra ýmsar athuga­semdir við rann­sókn þess. Meðal ann­ars að sak­born­ingur, sem var starf­andi lög­reglu­maður, hafi ekki verið leystur frá störfum meðan á rann­sókn máls­ins stóð. Þá hafi hann á þessum tíma verið kærður fyrir brot gegn annarri stúlku og nokkru síðar á þriðju stúlkunni. Málin þrjú hafi ekki verið rann­sökuð saman og mað­ur­inn starfað áfram sem lög­reglu­maður meðan á öllum þessum rann­sóknum stóð.

„Þegar málið kom upp sendi ég póst á þáver­andi lög­reglu­stjóra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem vís­aði erind­inu á Harald Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra, sem alger­lega brást okkur að mínu mati og vildi ekk­ert fyrir okkur gera. Mér datt nú stundum í hug lagið góða „Ekki benda á mig“ þegar ég var í sam­skiptum við þá. Það þarf virki­lega að skoða hvernig lög­reglan tekur á kyn­ferð­is­brota­málum ef sak­born­ing­ur­inn er lög­reglu­maður,“ segir Halldóra í fyrr­nefndu við­tali, en það má lesa hér.

Andsvar emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra í heild sinni:

„Ósk um birt­ingu and­svars vegna fyr­ir­sagnar for­síðu­fréttar Mannlífs, föstu­dag­inn 25. maí 2018, 12. tölu­blað, 2. árgangur sem og á heima­síðu Mannlífs, www.man.is, sbr. 36. gr. laga um fjöl­miðla nr. 38/2011

Í dag 25. maí 2018 er birt á for­síðu Mannlífs, 12. tölu­blað, 2. árgangur sem og á heima­síðu Mannlífs, https://gamla.mannlif.is, við­tal undir fyr­ir­sögn­inni „Rík­is­lög­reglu­stjóri brást dóttur minni“. Ábyrgð­ar­maður texta við­tals­ins er til­greind Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir.

Vegna þessa vill emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra koma á fram­færi eft­ir­far­andi andsvörum með vísan til 36. gr. laga um fjöl­miðla nr. 38/2011 og óskar að þeim verði komið á fram­færi nú þegar á heima­síðu Mannlífs, www.man.is og í næsta tölu­blaði þess á prenti.

Fram til maí­mán­aðar árs­ins 2014 fór rík­is­lög­reglu­stjóri með skip­un­ar­vald hvað varðar aðra lög­reglu­menn en yfir­lög­reglu­þjóna og aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjóna, sem skip­aðir voru af ráð­herra, og fór því með skip­un­ar­vald lög­reglu­manns­ins sem um ræðir í umfjöll­un­inni.

Ákvörðun um að veita lausn frá störfum tíma­bundið eða end­an­lega, sbr. 1. mgr. 26. gr. og 1. mgr. 31. gr. laga nr. 70/1996 er skip­un­ar­valds­hafa. Um tíma­bundna lausn frá emb­ætti um stund­ar­sakir sem til álita gat komið í til­viki lög­reglu­manns­ins byggir á 2. máls­lið 3. mgr. 26. gr. laga nr. 70/1996. en þar segir efn­is­lega með vísan til 1. máls­liðar 3. mgr. að veita megi emb­ætt­is­manni lausn tíma­bundið ef hann er grun­aður um hátt­semi sem hefði í för með sér svipt­ingu rétt­inda skv. 68. gr. almennra hegn­ing­ar­laga.
Samkvæmt 68. gr. almennra hegn­ing­ar­laga má, ef opin­ber starfs­maður fremur refsi­verðan verknað, svipta í saka­máli á hendur honum rétt­inum til að rækja starf­ann ef hann telst ekki lengur verður eða hæfur til þess. Í ákvæð­inu er ekki gerður grein­ar­munur á því hvort umræddur verkn­aður er fram­inn í starfi eða utan þess.

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra fór þess á leit við rík­is­sak­sókn­ara í til­efni af umfjöllun um málið í fjöl­miðlum að fá afhent rann­sókn­ar­gögn máls­ins til þess að unnt væri að taka ákvörðun um hvort leysa skyldi lög­reglu­mann­inn frá emb­ætti um stund­ar­sakir eða að fullu. Embættið fékk fyrst fregnir af mál­inu í fjöl­miðlum og átti frum­kvæði af því að óska upp­lýs­inga um málið frá rík­is­sak­sókn­ara, en emb­ætt­inu hafði ekki verið til­kynnt um málið. Rík­is­sak­sókn­ari hafn­aði erindi emb­ættis rík­is­lög­reglu­stjóra með vísan til heim­ild­ar­skorts í lögum og fékk því emb­ættið ekki rann­sókn­ar­gögn máls­ins.

Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra ítrek­aði ósk sína um afhend­ingu allra gagna máls­ins og benti jafn­framt á að synjun rík­is­sak­sókn­ara væri stefnu­breyt­ing frá því sem áður hafði tíðkast um afhend­ingu gagna í kæru­málum á hendur lög­reglu­mönnum.

Þar sem emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra var synjað um rann­sókn­ar­gögn var ekki grund­völlur til að byggja á að mati emb­ætt­is­ins ákvörðun sam­kvæmt lögum nr. 70/1996 um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins um hvort leysa bæri lög­reglu­mann­inn frá emb­ætti. Rík­is­sak­sókn­ara var gerð grein fyrir þessu.

Þá er rétt að benda á að ríkar kröfur eru gerðar til stjórn­valda um vand­aðan und­ir­bún­ing og með­ferð mála emb­ætt­is­manna sem lúta að lausn frá emb­ætti um stund­ar­sakir eða að fullu. Um það vís­ast meðal ann­ars til laga nr. 70/ 1996 um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins, dóma Hæsta­réttar Íslands og álita Umboðs­manns Alþingis.

Þá rit­aði rík­is­lög­reglu­stjóri inn­an­rík­is­ráðu­neyt­inu bréf 21. nóv­em­ber 2011 vegna stefnu­breyt­ingar rík­is­sak­sókn­ara, sem fram til þessa hafði haft heim­ild til og fengið aðgang að upp­lýs­ingum og gögnum sem emb­ættið hafði talið nauð­syn­legt til að rækja þessar emb­ætt­is­skyldur og inn­an­rík­is­ráð­herra kynnt að sökum synj­unar rík­is­sak­sókn­ara væri rík­is­lög­reglu­stjóra gert ómögu­legt að gegna emb­ætt­is­skyldum sínum. Mál þetta var borið upp við inn­an­rík­is­ráðu­neytið þar sem ákvörðun rík­is­sak­sókn­ara hafi for­dæmi varð­andi önnur mál er kynnu að þarfn­ast ákvörð­unar rík­is­lög­reglu­stjóra og honum er að lögum skylt að fara með.

Þá skal tekið fram að vegna alvar­leika máls­ins beindi emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra því til þáver­andi lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, með bréfi 8. nóv­em­ber 2011, að meta hvort hann leysti lög­reglu­mann­inn undan vinnu­skyldu, en það er á for­ræði lög­reglu­stjóra að ákveða um til­færslu í starfi og við hvaða verk­efni lög­reglu­maður starfar. Samkvæmt lögum um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins er grein­ar­munur á þessum úrræðum og því að leysa emb­ætt­is­mann frá emb­ætti. Þá fara lög­reglu­stjórar með stjórn lög­reglu­liðs, hver í sínu umdæmi. Þeir ann­ast dag­lega stjórn og rekstur lög­regl­unnar í umdæm­inu og bera ábyrgð á fram­kvæmd lög­reglu­starfa innan þess.

Er þess óskað að komið verði á fram­færi nú þegar andsvörum emb­ætt­is­ins á heima­síðu Mannlífs og í næsta tölu­blaði þess, sbr. 36. gr. laga um fjöl­miðla nr. 38/2011.

Með vísan til ofan­rit­aðs er því hafnað að rík­is­lög­reglu­stjóri hafi brugð­ist dóttur við­mæl­anda með þeim hætti sem fyr­ir­sögnin gefur til kynna.

F.h. RLS

Thelma Cl. Þórð­ar­dóttir“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi