Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Þetta eru lögin sem komast áfram í Söngvakeppninni

Þetta eru lögin sem komast áfram í Söngvakeppninni

Fyrri und­ankeppnin í Söngvakeppn­inni fer fram á laug­ar­dags­kvöldið og keppa sex lög um að kom­ast í úrslitin þann 3. mars næst­kom­andi.

Við fengum Eurovision-sér­fræð­ing­ana með meiru, Flosa Jón Ófeigs­son og Kristínu Krist­jáns­dóttur til að spá í spilin og reyna að sjá fyrir hvaða þrjú lög kom­ast áfram í úrslitin.

Lagið ekki nógu sterkt en treysta á gott „show“

Ég mun skína – Þórunn Antonía

Flosi: „Ég elska gamla stöffið sem Þórunn Antonía hefur búið til. Ég er mik­ill aðdá­andi en ég verð að segja að ég varð fyrir pínu von­brigðum með lagið af því að hún er svo flott. Hún verður frá­bær á sviði og mun negla þetta þegar kemur að beinu útsend­ing­unni. Mér finnst lagið bara ekki nógu sterkt ef ég á að vera hrein­skil­inn. Það þarf að vera rosa „show“ ef hún ætlar að grípa fólkið. Þetta atriði minnir mig á Svölu í fyrra, nema ekki eins gott lag.“

Kristín: „Ég veit ekki alveg með þetta. Hún er nátt­úru­lega rosa­lega hæfi­leik­a­rík söng­kona en þetta er ekki hennar besta. Eig­in­lega langt því frá. Það er spurn­ing hvort hún skíni það skært að hún kom­ist áfram. Ég ætla ekki að afskrifa hana. Ég vona að hún keyri þetta aðeins upp og geri ekki sömu mis­tökin og Svala gerði í fyrra, að vera ekki með nógu gott „show“.“

„Ég gæti ekki munað lagið þó að líf mitt lægi við“

Ég og þú – Sólborg Guð­brands­dóttir og Tómas Helgi Wehmeier

Flosi: „Ég veit ekki hvort fólk eigi eftir að ná lag­inu. Ég hef pínu áhyggjur af því. Ég hef líka pínu áhyggjur af því að lagið sé raddað allan tím­ann. Það má ekki vera neitt stress á þeim. Þau eru bæði úr The Voice þannig að þau eru komin með smá reynslu í bank­ann. Þetta eru svo miklar týpur og flottar. Ef röddin virkar þá er aldrei að vita hvað ger­ist á laug­ar­dag­inn. Þetta er eitt af lög­unum sem vinnur á.“

Kristín: „Þetta á ekki eftir að fljúga. Ég trúi ekki að tvær svona hrika­lega töff mann­eskjur geti verið með svona arfa­slakt lag. Það er ekk­ert að ske og ég gæti ekki munað lagið þó að líf mitt lægi við. Ég er eig­in­lega alveg viss um að þau kom­ast ekki áfram.“

Úrelt lag en flottur söngvari

Heim – Ari Ólafsson

Flosi: „Laga­höf­und­ur­inn Þórunn Clausen er nátt­úru­lega reynslu­bolti í Söngvakeppn­inni. Ég veit að atriðið verður pott­þétt og það verður öllu tjaldað til. Það eru alltaf flott atriði frá Þórunni. Ari sjálfur er okkar von­ar­stjarna, bara 19 ára gam­all. Ég hef engar áhyggjur af flutn­ing­inum sjálfum. Spurn­ingin er hvort þetta sé of ein­falt eða ekki. Það verður að koma í ljós á kvöld­inu sjálfu. Þessi hái tónn sem allir eru að tala um kemur seint í lag­inu. Ef að fólk fílar ekki lagið nær það ekki þessum svaka tóni sem hann á eftir að rústa. En hann er gull­fal­legur strákur og mynda­vélin mun örugg­lega elska hann.“

Kristín: „Mér finnst Ari rosa flottur. En mér finnst þetta lag sjúk­lega leið­in­legt. Mér finnst það rosa­lega úrelt. Það hefði kannski virkað fyrir fimmtán árum. Hann er rosa flottur söngv­ari og til­von­andi stjarna. Ég hef á til­finn­ing­unni að lagið eigi ekki eftir að gera mikið. Það gæti hins vegar verið svarti hest­ur­inn í keppn­inni. Ég sé það samt ekki alveg því lagið er svo auð­gleym­an­legt.“

Ást við fyrstu sýn

Kúst og fæjó – Heim­il­is­tónar

Flosi: „Þetta er nátt­úru­lega bara ást við fyrstu sýn. Þetta er lands­lið leikkvenna á Íslandi og ég hef engar áhyggjur af flutn­ingnum. Þetta er eina lagið sem verður pott­þétt á íslensku þannig að þeir sem búast ekki við að við syngjum á ensku í keppn­inni þurfa að setja X við Heim­il­is­tóna. Þetta er svo­lítið gam­al­dags lag og mömmu­fí­língur í því. Það er eitt­hvað sem grípur mig við þetta. Þetta atriði er eins og Daði Freyr í fyrra. Fólk hélt að hann væri grín­at­riði, alveg eins og það heldur með Heim­li­is­tóna en þeim er alvara með þetta. Þetta er sko ekk­ert grín og ég held að þetta fljúgi áfram.“

Kristín : „Kúst og fæjó er að fara áfram. Þetta er eina lagið í allri keppn­inni sem ég man alltaf. Ég er alltaf að syngja það. Þær hala inn eitt­hvað af stigum og ég spái þeim alla leið í ein­vígið. Þessi retro stíll á lag­inu og þreytta sixtís hús­móð­irin – etta virkar allt saman. Þetta er allt öðru­vísi, eins og Daði í fyrra. Ég segi að þær verði Daðinn í ár.“

Fer örugglega áfram

Aldrei gef­ast upp – Fókus hóp­ur­inn

Flosi: „Ég held að þetta sé eitt af lög­unum sem fer áfram. Þetta eru fimm “solid” söngv­arar. Þau eru öll með reynslu í bank­anum úr The Voice. Þau tóna rosa­lega vel saman. Radd­irnar þeirra bland­ast svo vel saman. Þau eru hress og skemmti­leg. Þau eru miklar keppn­is­mann­eskjur en taka sig ekki of alvar­lega. Ég er smá sökker fyrir góðum röddum og harm­on­íum og ég hef engar áhyggjur af því að þetta klikki. Þetta er það lag í fyrri und­ankeppn­inni em ætti örugg­lega að fara áfram.“

Kristín: „Það er senni­lega að fara áfram. Ég er nokkuð viss um það. Þau eru öll frekar sterk og harm­onæsa svo vel. Þetta lag hefur „major hook”. Ég spái þeim áfram.“

Svarti hesturinn í keppninni

Litir – Guð­mundur Þór­ar­ins­son

Flosi: „Ég held að hann gæti orðið svarti hest­ur­inn í keppn­inni. Lagið er frekar ferskt. Svo verð ég að segja, sem sam­kyn­hneigður karl­maður, að það er ekki leið­in­legt að sjá hann uppi á svið­inu. Þetta er ekki upp­á­halds­lagið mitt per­sónu­lega. Ég er Euro-skvísa þannig að ég elska glimmer og osta­popp­lög. En það er eitt­hvað við þetta. Þetta gæti orðið lagið sem bankar á dyrnar.“

Kristín: „Hann er alveg ágætur og kom svo­lítið á óvart. Ég vil sjá hann í beinni útsend­ingu. Guð­mundur er óskrifað blað. Ég vil sjá hvernig hann tæklar þetta. Þetta lag er rosa­lega lág­stemmt. Ef hann neglir þetta þá ætla ég ekki að afskrifa hann en ef þetta verður bara hann með gít­ar­inn þá gæti þetta vel týnst.“

Þá er komið að stóru spurn­ing­unni – telja Flosi og Kristín að sig­ur­lagið, lagið sem fer fyrir Íslands hönd í Eurovision í Lissabon í maí, leyn­ist í fyrri und­ankeppn­inni?

Flosi: „Fyrir mér eru tvö atriði á laug­ar­dag­inn sem eiga mögu­leika á að fara í ein­vígið, það eru Heim­il­is­tónar og Fókus hóp­ur­inn. En þetta fer eftir því hvernig seinni und­ankeppnin verður.“

Kristín: „Ég hef aldrei rétt fyrir mér en ég held að sig­ur­lagið leyn­ist í hinum riðl­inum. Hins vegar held ég að Kúst og fæjó eigi efitr að fara langt.“

Smellið hér til að kynn­ast kepp­endum í fyrri und­ankeppn­inni betur.

Texti / Lilja Katrín
[email protected]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag