Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Erla Bolladóttir ósátt: „Af hverju forðast menn að ræða sjálfa rannsóknina“

Erla Bolla­dóttir furðar sig á því að ekki eigi að skoða rann­sókn­ina í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu ofan í kjöl­inn.

Erla Bolladóttir ósátt: „Af hverju forðast menn að ræða sjálfa rannsóknina“
Erla Bolla­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, dóms­mála­ráð­herra hefur skipað Höllu Bergþóru Björns­dóttur, lög­reglu­stjóra á Norð­ur­landi eystra, settan rík­is­sak­sókn­ara í Guð­mundar- og Geir­finns­máli, eins og fram kom í fréttum í dag. Hefur settur rík­is­sak­sókn­ari til athug­unar hvort ástæða sé til að taka hvarf Guð­mundar Ein­ars­sonar og Geir­finns Ein­ars­sonar til rann­sóknar að nýju, eftir sýknu­dóm Hæsta­réttar í haust. Erla Bolla­dóttir, sem var ein sak­born­inga í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu, segir von­brigði að ekki skuli hafa verið rætt hvort sjálf rann­sóknin verði skoðuð.

„Auðvitað er eðli­legt að skoða mögu­leik­ann á því að rann­saka þessar vís­bend­ingar sem þeir eru með og snúa að hvarfi mann­anna,“ segir hún. „Mér finnst aftur á móti grun­sam­legt að ekki skuli vera talað um að rann­saka sjálfa fram­kvæmd­ina á mál­inu. Af hverju virð­ast menn vera á harða­hlaupum fram hjá rann­sóknar- og dóm­stóla­ferl­inu? Af hverju forð­ast menn að ræða sjálfa rann­sókn­ina?“

„Mér finnst … grun­sam­legt að ekki skuli vera talað um að rann­saka sjálfa fram­kvæmd­ina á mál­inu. Af hverju virð­ast menn vera á harða­hlaupum fram hjá rann­sóknar- og dóm­stóla­ferl­inu?“

Erla var í stóru við­tali í Mannlífi fyrir skemmstu. Þar gagn­rýndi hún rann­sókn­ina harð­lega og benti á að nýjir þýskir þættir, Skandall, sem fjalla meðal ann­ars um rann­sókn­ina, sýni vel þá und­ar­legu afgreiðslu sem málið fékk á sínum tíma hjá lög­regl­unni, fyrst í Keflavík en síðan í Reykja­vík. Hún und­ir­strikar nú í sam­st­ali við blaða­mann að allt sem komi fram um upp­hafs­rann­sókn á hvarfi Geir­finns í þátt­unum Skandall sé aðgengi­legt á Netinu í gögnum máls­ins, nánar til­tekið á vef­síð­unni www.mal214.is.

„Allar uplýs­ing­arnar eru á þess­ari síðu, hver ein­asta skýrsla sem var tekin í þessu máli og hvert ein­asta skjal – sem ekki var falið,“ tekur hún fram og bætir við að sama hvar litið er á þessar skýrslur rann­sókn­ar­innar í Keflavík þá megi sjá á dag­setn­ingum skýrslna og fjölda ann­arra þátta að ekki er allt með felldu varð­andi hegðun rann­sókn­ar­að­ila.
Hún segir að þótt sýknu­dómur hefði fallið í Hæsta­rétti síð­ast­liðið haust og að öllum sé orðið ljóst það harð­ræði sem beitt var til þess að ná fram sekt á sínum tíma, hafi eng­inn sem stóð að rann­sókn máls­ins þurft að svara fyrir þær gjörðir.

„Ég er nú ekki mikið fyrir sam­sær­is­kenn­ingar, – en sú spurn­ing leitar á hug­ann hvort núna sé verið að tala svona mikið um upp­hæðir skaða­bóta og hvarf mann­anna tveggja til að forð­ast að ræða sjálfa rann­sókn­ina á sínum tíma. Til dæmis hef ég borið fólk þungum sökum vegna rann­sókn­ar­innar og það er eins og ég hafi bara ekki sagt nokkurn skap­aðan hlut,“ segir hún og vísar þar meðal ann­ars í fyrr­nefnt við­tal.

Hægt er að lesa við­talið við Erlu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Guðmundar- og Geirfinnsmál

FréttirGuðmundar- og Geirfinnsmál

Hefur unnið að sáttum fyrir hönd for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins en hafnar því að lög­regla hafi beitt harð­ræði

Guðjóni Skarp­héð­ins­syni, einum hinna sýkn­uðu í Guð­mundar- og Geir­finns­málum, er sjálfum kennt um rangan dóm Hæsta­réttar yfir sér í grein­ar­gerð setts rík­is­lög­manns, Andra Árna­sonar, sem hafnar því að rann­sak­endur hafi brotið með refsi­verðum hætti gegn Guðjóni. Andri hafði sam­band við aðstand­endur í vor „til að skoða til­tekna sátta­mögu­leika fyrir ráðu­neytið“.
InnlentGuðmundar- og Geirfinnsmál

„Ég er ekki til­bú­in að gef­ast upp.“

„Á meðan við erum enn dæmd sek fyr­ir mein­særi stend­ur málið þannig að ríkið ber ekki ábyrgð á því gagn­vart okk­ur hvernig þessi rann­sókn var fram­kvæmd,“ segir Erla Bolla­dóttir við Morg­un­blaðið. Hún hefur ákveðið að stefna íslenska rík­inu sökum höfn­unar end­ur­upp­töku­nefndar á beiðni um upp­töku á dóm hennar í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi