Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Grænkeri með húðflúr af slátursvíni: „Það er alveg hægt að breytast“

Ágúst Már Garð­ars­son, kokkur hjá verk­fræði­stof­unni Eflu, ákvað að ger­ast græn­keri eftir að hann ásamt Sigurði Lofti Thorlacius, umhverf­is­verk­fræð­ingi, hófu að mæla dýpt kolefn­is­spora þess matar sem boðið er upp á í mötu­neyti Eflu.

Ágúst við­ur­kennir að hann tak­ist nú á við krefj­andi lífs­stíls­breyt­ingu en að hann geti ekki haldið áfram að borða dýra­af­urðir með góðri sam­visku eftir að hann kynnti sér málið.

„Ég er í grunn­inn kjöt­æta, ég er alinn upp í sveit, hef slátrað dýrum og veiddi minka sem barn,“ segir Ágúst sem er nú orð­inn vegan.

„…ég er alinn upp í sveit, hef slátrað dýrum og veiddi minka sem barn.“

Ágúst seg­ist hafa verið mikil kjöt­æta og aldrei íhugað að hætta að borða kjöt áður en hann fór að skoða mun­inn á kolefn­is­spori kjöt­fæðis ann­ars vegar og græn­met­is­fæðis hins vegar.

„Ég var ekk­ert að fara að breyt­ast. Ég hafði litla löngun til að breyta matar­æð­inu. En fyrir þremur vikum hófst umhverf­is­vikan í Eflu og við fórum að prufu­keyra mæl­ing­ar­for­ritið. Ég hélt að þetta myndi ekki hafa mikil áhrif á mig en þegar dag­arnir liðu og ég fór að stimpla hrá­efnin inn og sjá töl­urnar sem komu upp þá brá mér svo­lítið,“ útskýrir Ágúst. Í kjöl­farið fór hann að lesa sér til um kjöt­fram­leiðslu og land­búnað.

„Það er alveg hægt að breyt­ast, ég meina, þetta er hálf vand­ræða­legt fyrir mig því ég er með slát­ur­svín húð­flúrað á fram­hand­legg­inn,“ segir hann og skellir upp úr.

„Ég vissi ekki að ég væri svona háður osti“

Spurður út í hvort að hann sé orð­inn vegan til fram­búðar svarar hann ját­andi. „Já, alveg hik­laust. Ég er enn þá að læra inn á þetta. Ég var til dæmis að kom­ast að því að það er býflugna­vax í rauðum Ópal og þess vegna er hann ekki í boði lengur. En ég ætla að gera mitt besta.“

Aðspurður hvort það sé ein­hver ákveð­inn matur sem hann hefur saknað eftir að hann gerð­ist vegan segir hann: „Ostar. Ég vissi ekki að ég væri svona háður osti. Ég var til dæmis að baka pít­sur fyrir stelp­urnar mínar á föstu­dag­inn og mér fannst ég vera að fara á mis við eitt­hvað í líf­inu, að geta ekki fengið mér pítsu með osti“ segir Ágúst og hlær.

Í dag er fjöl­breytt úrval vega­nosta til í versl­unum en Ágúst hefur ekki fundið vega­nost sem hann er hrif­inn af enn þá. „Þeir eru bara ekki nógu góðir að mínu mati. En maður veit ekki, vís­ind­unum fleytir fram og kannski tekst ein­hverjum að búa til full­kom­inn vega­nost.“

Krefjandi en skemmtilegt verkefni

Ágúst við­ur­kennir að það sé krefj­andi að gera svona mikla breyt­ingu á matar­æði sínu. „Þetta er svo marg­brotið. Þetta reynir vissu­lega á en það er gaman að takast á við svona verk­efni. Maður þarf að hugsa svo margt upp á nýtt. En þegar ég sá að vegan­matur getur líka verið sveittur með majónesi, þá fór ég að trúa að þetta sé hægt,“ segir hann og hlær.

„Þegar ég sá að vegan­matur getur líka verið sveittur með majónesi, þá fór ég að trúa að þetta sé hægt.“

Ágúst tekur fram að úrval alls kyns matar sem unn­inn er úr jurta­rík­inu en lík­ist kjöti komi sér vel í elda­mennsk­una. „Þessi vegan­matur sem not­aður er sem stað­geng­ill fyrir kjöt er að ná auknum vin­sældum og úrvalið er orðið mikið. Í gamla daga var þetta algjört „no no“ og það þótti bara hall­æris­legt,“ segir Ágúst sem mælir ein­dregið með að fólk kynni sér vegan lífs­stíl­inn.

Fyrir áhuga­sama er hér fyrir neðan tafla um kolefn­is­spor þeirra mál­tíða sem starfs­fólki Eflu var boðið upp á þann 17. apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi