Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Mamma og amma gengu í gegnum algjört helvíti“

Unnar Þór Sæmunds­son byrj­aði ungur að drekka og nota eit­ur­lyf og það tíma­bil sem hann var í neyslu hefur sett stórt stik í reikn­ing­inn hjá honum og aðstand­endum hans. Núna eru þrjú ár liðin síðan hann varð edrú og síðan þá hefur hann unnið að því að vinna traust vina og fjöl­skyldu til baka.

„Mamma og amma gengu í gegnum algjört helvíti“
||

Halldóra Jón­as­dóttir, áfengis- og vímu­efna­ráð­gjafi hjá SÁÁ, segir fíkni­sjúk­dóma hafa mikil áhrif á aðstand­endur þeirra ein­stak­linga sem glíma við fíkn. Unnar við­ur­kennir að hans neysla hafi haft mikil áhrif á hans nán­ustu.

„Ég byrj­aði að drekka og nota eit­ur­lyf um ferm­ing­ar­aldur. En eftir 10. bekk varð neyslan meiri. Ég var búsettur á Flúðum á þeim tíma og það var mikið mál að verða sér úti um eit­ur­lyf þarna á þessum tíma,“ segir Unnar og við­ur­kennir að hann hafi haft mikið fyrir því að nálg­ast eit­ur­lyf. „Ég þurfti að láta senda pakka með rút­unni,“ bætir hann við og hlær.

Unnar seg­ist oft hafa velt því fyrir sér hvað olli því að hann byrj­aði að nota eit­ur­lyf. „Ég hef oft reynt að skilja af hverju ég varð fík­ill. Vinir mínir sem hafa verið í neyslu eru allir með ein­hverja áfalla­sögu á bak­inu en ég varð ekki fyrir neinu áfalli. Ég átti góða æsku og góða fjöl­skyldu. En ég var ofvirkur og með athygl­is­brest og í litlu sam­fé­lagi geta for­dómar verið miklir. Ég varð fljótt svarti sauð­ur­inn í sveit­inni,“ útskýrir hann.

„…ég gat ekki lifað með sjálfum mér í óbreyttu ástandi.“

Unnar seg­ist hafa verið umtal­aður í sveit­inni enda lét hann oft eins og hálf­viti eins og hann orðar það. Þetta varð til þess að Unnar fór í hálf­gert hlut­verk og gerði í því að láta illa. „Ég fann fljótt að þegar fólk var hrætt við mig þá var það síður að skipta sér af mér. En eyði­legg­ingin var algjör og ég gat ekki lifað með sjálfum mér í óbreyttu ástandi. Þannig að ég fór að breyta líðan minni með eit­ur­lyfja­neyslu í auknum mæli.“

Fjölskyldan gekk í gegnum helvíti

Þegar hann er spurður út í aðstand­endur sína og áhrif neysl­unnar á þá segir Unnar að hegðun hans hafi vissu­lega sett líf hans nán­ustu úr skorðum. „Þau gerðu allt sem þau gátu til að hjálpa. Það hefði eng­inn getað gert neitt betur. Þau gerðu ýmis­legt til að grípa inn í enda voru þau hrædd um mig. En mér var bara skít­sama því sjálfs­blekk­ingin var mikil á þessum tíma­punkti.“

Unnar segir fíkn hans hafa haft sér­stak­lega mikil áhrif á mömmu hans og ömmu.

„Þær tóku þetta nærri sér. Mamma beið bara eftir að ég yrði tek­inn úr umferð eða myndi deyja. Mamma og amma sváfu ekki á nótt­unni og gengu í gegnum algjört hel­víti. Aðstand­endur fólks með fíkni­sjúk­dóma ganga í gegnum hel­víti og ég hef stundum sagt að þeir gangi í gegnum meira hel­víti en fík­ill­inn sjálfur því þeir sitja heima með kvíða­hnút í mag­anum. Þeir hafa enga leið til að deyfa sig,“ segir Unnar.

„Aðstand­endur fólks með fíkni­sjúk­dóma ganga í gegnum hel­vít.“

Hann bætir við: „Í hvert skipti sem sím­inn hringdi hjá mömmu þá var hún viss um að það væri verið að láta hana vita að ég væri dáinn. Ég gerði nokkrar til­raunir til sjálfs­vígs og mamma fékk einu sinni sím­tal um miðja nótt þar sem henni var sagt að ég væri þungt hald­inn á spít­ala. Henni var sagt að drífa sig til mín ef hún ætl­aði að ná að kveðja mig, það leit úr fyrir að ég ætti ekki langt eftir. Þannig að van­líð­anin og áhyggj­urnar sem ég hef valdið henni, guð minn góður.“

Unnar við­ur­kennir að hafa lagt mikið á mömmu sína og ömmu á þeim tíma sem hann var í neyslu.

Eftir mikla sjálfs­vinnu hefur Unnar ákveðið að tala opin­skátt um þetta tíma­bil í lífi hans sem spannar um 11 ár. Hann hefur þá unnið að því að vinna traust fólks til baka.

„Ég hef verið opinn og talað opin­skátt um þetta. Ég tók með­vit­aða ákvörðum um að ég gæti ekki farið leynt með for­tíð­ina mína. Þá fyrst myndi fólk reyna að nota for­tíð­ina gegn mér,“ segir Unnar sem starfar sem gjald­keri fram­kvæmda­ráðs Pírata. Hann seg­ist afar þakk­látur því trausti sem sér hefur verið sýnt innan flokks­ins. „Þetta traust sem mér hefur verið sýnt … það sannar bara að allir eiga séns. Það skiptir ekki máli hver þú ert. Það geta allir komið sér á beinu braut­ina aftur.“

Spurður út í traust hans nán­ustu gagn­vart honum, svarar Unnar: „Sam­skiptin við mömmu og ömmu eru góð í dag og mér þykir svo vænt um að fólkið mitt er farið að treysta mér aftur. Ég tek það samt fram að ég hætti fljótt að ljúga að mömmu eftir að ég fór í neyslu, ég reyndi að svara henni alltaf, segja henni hvað ég væri að gera og hvaða lyf ég væri að taka inn. Ég veit ekki hvort henni fannst það betra, að vita hvað væri í gangi nákvæm­lega, en hún sagði mér að sér þætti það betra.“

Spurður út í hvort hann telji að hann sé búinn að brenna ein­hverjar brýr að baki sér var­an­lega svarar hann ját­andi.

„Þannig að fólk er með var­ann á gagn­vart mér og ég skil það vel.“

„Já. En ég set samt fyr­ir­vara við orðið „var­an­lega“, því maður veit aldrei. Ég vil leyfa fólki að ákveða þetta með sjálfu sér, hvort það vill bætt sam­band við mig eða ekki. Ég vil ekki heimta það. Ég er til­bú­inn til að bæta fyrir það sem ég hef gert en ég hef óneit­an­lega lagt mikið á fólk, alla stór­fjöl­skyld­una meira að segja. Þannig að fólk er með var­ann á gagn­vart mér og ég skil það vel. Ég get ekki verið reiður ef fólk vill ekki eiga í sam­skiptum við mig, ég veit ekki hvernig mér myndi líða ef ein­hver væri búinn að bregð­ast mér svona oft.“

Ætlar að vera til staðar fyrir dóttur sína

Unnar varð faðir í fyrsta sinn í maí 2015. „Dóttir mín var nokk­urra mán­aða þegar ég datt í það í síð­asta sinn, fyrir rúmum þremur árum. Fíknin getur nefni­lega verið sterk­ari en for­eldra­ástin. Ég rank­aði við mér inni á geð­deild eftir að hafa verið með­vit­und­ar­laus í þrjá daga, stút­fullur af dópi og með lungna­bólgu. Þá hugs­aði ég; fokk, ég má ekki bregð­ast dóttur minni aftur. Aldrei aftur. Og það hefur verið mitt mark­mið síðan þá, númer eitt, tvö og þrjú, að standa mig fyrir hana,“ útskýrir Unnar.

„Ég vona að það sé líka gott fyrir aðstand­endur fólks með fíkni­sjúk­dóma að lesa um mína sögu. Vonandi veitir það von,“ segir Unnar.

Þó að Unnar sé á góðum stað í dag, stað sem hann hefði ekki trúað að hann kæm­ist á fyrir nokkrum árum, þá á hann mikla vinnu fram undan að eigin sögn.

„Ég er auð­vitað búinn að sóa miklum tíma í neyslu, afbrot og ógeð. Og ég finn að ég er pínu­lítið eftir á hvað ýmis­legt varðar vegna neysl­unnar. Stundum staldra ég við og sé að það er margt sem ég þarf að læra betur. En ég tel mig vera kom­inn langt og ég hef verið að setja mér verk­efni, til dæmis sem snú­ast um að tala fal­lega til fólks og vera dug­legur að hrósa. Þetta eru litlir hlutir.“

„Það voru til dæmis allir búnir að gef­ast upp á mér á sínum tíma og fólk var alveg hætt að treysta mér.“

Að lokum vill Unnar hug­hreysta fólk sem er í sömu stöðu og hann var í fyrir nokkrum árum. „Það er alltaf séns. Alltaf. Það voru til dæmis allir búnir að gef­ast upp á mér á sínum tíma og fólk var alveg hætt að treysta mér. Ég var bara „lost case“ en ég hef náð engum smáár­angri á síð­ustu þremur árum. Þannig að það er alltaf von. Þú þarft að vinna vinn­una, það gerir það eng­inn fyrir þig, og það verður erfitt. En það jafn­ast ekk­ert á við það sem þú færð til baka. Ég vona að það sé líka gott fyrir aðstand­endur fólks með fíkni­sjúk­dóma að lesa um mína sögu. Vonandi veitir það von.“

Sjá einnig: Aðstand­endur geta orðið lík­am­lega veikir vegna streit­unnar

Myndir / Hallur Karlsson

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi