Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Við mæðgurnar ætlum heim saman“

„Við mæðgurnar ætlum heim saman“
Sólrún Alda og Rahmon|Þórður Waldorff faðir Sólrúnar Öldu.|

Sólrún Alda Waldorff og Rahmon Anvarov slös­uð­ust alvar­lega í bruna í kjall­ara­í­búð í Mávahlíð í Reykja­vík aðfara­nótt mið­viku­dags­ins 23. októ­ber. Sú ákvörðun var tekin vegna áverka Sólrúnar Öldu að flytja hana á sjúkra­hús erlendis og er ljóst að langt bata­ferli er fram undan hjá unga par­inu.

Þórunn Alda Gylfa­dóttir, móðir Sólrúnar Öldu, hefur verið hjá dóttur sinni und­an­far­inn mánuð. Í við­tali við Mannlíf segir Þórunn Alda að reyk­skynj­ari hefði getað bjargað öllu við þessar aðstæður, sem eru þær erf­ið­ustu sem fjöl­skyldan hefur glímt við.

„Ég fékk sím­tal frá bráða­mót­tök­unni á Land­spít­al­anum í Fossvogi þar sem ég var spurð hvort ég ætti dóttur sem heitir Sólrún Alda Waldorff, maður glað­vaknar strax við slíka spurn­ingu,“ segir Þórunn Alda aðspurð um fyrstu fregnir hennar af brun­anum þessa örlaga­ríku nótt.

„Mér var til­kynnt að hún hefði orðið fyrir reyk­eitrun og ég var komin í fötin og út í bíl um leið og ég heyrði orðið „bráða­móttakan“ í sím­tal­inu. Ég hringdi í Þórð pabba hennar, sem býr í Reykja­vík og sagði honum að fara upp á spít­ala þar sem dóttir okkar hefði fengið reyk­eitrun. Meira vissum við ekki, við vissum ekk­ert, ekki einu sinni þegar við komum upp á spít­ala.“

Á Land­spít­al­anum var þeim vísað inn í aðstand­enda­her­bergi á fyrstu hæð þar sem þau biðu eftir Hafliða Breka, bróður Sólrúnar Öldu. Þaðan var þeim svo fylgt upp á gjör­gæslu. „Þar tók prestur á móti okkur, ásamt lækni og hjúkr­un­ar­fræð­ingi. Þar fengum við svona fyrstu upp­lýs­ingar um hvað hefði gerst, en þetta eru óljósar þokuminn­ingar.“

Eig­in­maður Þórunnar, Pétur Karlsson, var á sjó þegar elds­voð­inn varð. „Pétur var sof­andi þegar ég hringdi og var vak­inn um leið. Prestur var með mér þegar ég hringdi og hann tók hrein­lega sím­ann af mér og sagði Pétri stöð­una. Ég var ein­fald­lega ekki fær um að meta hana, enda á þeirri stundu ekki búin að hitta þau. Og þó að væri búið að segja mér stöð­una frá A til Ö, var ég ekki fær um að meta hana. Þú með­tekur ekki upp­lýs­ingar í þess­ari stöðu.“

Ákvörðun tekin um að flytja Sólrúnu Öldu á sjúkrahús erlendis

Sú ákvörðun var tekin fljót­lega af læknateym­inu á Land­spít­al­anum að senda Sólrúnu Öldu á sjúkra­hús erlendis. „Þau hafa getu hér heima til að sinna þremur bruna­sjúk­lingum í einu og þeir voru orðnir þrír. Og þau tvö með alvar­lega bruna­á­verka,“ segir Þórunn Alda. Fyrst var haft sam­band við sjúkra­hús í Noregi sem gat ekki tekið á móti henni, en læknar þar vís­uðu á sjúkra­húsið í Linköp­ing í Svíþjóð.

Þórunn Alda Gylfa­dóttir.

„Þau sögðu strax já við að taka á móti henni. Á mið­viku­deg­inum fengum við að vita að hún yrði flutt þangað klukkan átta á fimmtu­dags­morgn­inum. Ísland er lítið land og það er ekki mögu­leiki á að vera með stóra bruna­deild hér,“ segir Þórunn Alda.

Faðir Sólrúnar Öldu, Þórður Waldorff, starfar hjá Icelandair, fjöl­skyldan tók þá ákvörðun að fara utan og fóru for­eldrar hennar, stjúp­faðir og bróðir. „Kolbeinn Karl Krist­ins­son, vinnu­fé­lagi Þórðar, bók­aði far fyrir okkur út á fimmtu­deg­inum til Kaup­manna­hafnar og þaðan til Stokk­hólms,“ segir Þórunn Alda. „Ég og pabbi hennar höfum verið hér úti allan tím­ann. Hafliði og Pétur eru farnir heim. Þar þarf að sinna heim­il­inu og hinum börn­unum. Við erum tvö hér úti og gerum okkur enga grein fyrir hvenær við komum heim.“

Hvernig er aðstaðan fyrir ykkur for­eld­rana? „Hér er haldið rosa­lega vel utan um okkur. Við komum hingað snemma á föstu­dags­morgni, eftir að hafa hvílt okkur eina nótt á leið­inni enda alveg búin á því. Læknateymið sem tók á móti Sólrúnu Öldu tók á móti okkur, hjúkr­un­ar­fræð­ingar og félags­ráð­gjafi sem stjórnar í svona aðstæðum. Þegar við komum sagð­ist félags­ráð­gjaf­inn bóka okkur á heim­ili Ronalds McDonalds sem McDonalds-fyr­ir­tækið á og rekur hér fyrir aðstand­endur sjúk­linga. Þaðan er bara tveggja mín­útna gangur yfir á sjúkra­húsið.“

Þórður Waldorff faðir Sólrúnar Öldu.

Öllum dögum varið hjá dótturinni

Dagarnir eru langir hjá Þórunni Öldu og Þórði sem verja meiri­hluta sól­ar­hrings­ins hjá dóttur sinni. „Við vöknum svona sex á morgn­ana, og erum mætt þegar spít­al­inn opnar klukkan hálf­sjö. Hér erum við síðan til tíu, ell­efu, tólf, eitt á kvöldin og það fer aðal­lega eftir hvernig dag­ur­inn hjá Sólrúnu Öldu hefur verið. Við erum meiri­hluta dags­ins inni á stof­unni hjá henni, en einnig er hér fín setu­stofa þar sem við getum líka verið,“ segir Þórunn Alda.

„Við erum mjög mikið bara inni hjá henni, enda megum við það. Þetta er hátækni­sjúkra­hús, þannig að við þurfum að spritta okkur, þrífa og fara í slopp. Við göngum ekki bara inn auð­veld­lega, fyrst þurfum við að gera þetta sem ég taldi upp, enda alltaf verið að vernda sjúk­ling­inn fyrir smit­hættu. Það er mjög vel hugað að öllum svona atriðum. Öllum atriðum sem hægt er að stjórna er stjórnað.“

Rahmon og Sólrún Alda

Fjölskylda Rahmons hjá honum hér á landi

Parið unga hefur verið saman í tæp tvö ár. Sólrún Alda er fædd árið 1997, upp­alin í Grinda­vík og er á síð­asta ári í sál­fræði við Háskóla Íslands. Rahmon er fæddur árið 1992 í Tatík­is­tan og hefur búið hér á landi í nokkur ár þar sem hann starfar hjá tölvu­fyr­ir­tæki, en hann er mennt­aður tölv­un­ar­fræð­ingur og með meistara­gráðu í alþjóð­legri hag­fræði (world economics). Að sögn Þórunnar Öldu hafði parið gert plön saman.

„Þau kynnt­ust á Netinu eins og nútíma­fólk gerir og voru með fram­tíð­arplön saman eins og ungt fólk er með. Sólrún Alda var búin að ákveða að fara í frekara nám.“

Rahmon dvelur á Land­spít­al­anum hér heima. „Það var ákveðið að hafa hann hér heima, en flytja hana út. Fjöl­skylda hans kom til lands­ins ein­hverjum fjórum dögum eftir brun­ann. Við náðum sam­bandi við fjöl­skyld­una og for­eldrar hans fengu ferða-visa í þrjá mán­uði og dvelja í íbúð Þórðar heima á Íslandi,“ segir Þórunn Alda.

„Við erum með reyk­skynjara á okkar heim­ili, og maður gerir bara ráð fyrir að aðrir séu með þá. Þeir kosta nú ekki svo mikið, kannski 900 krónur stykkið og ég er kannski barna­leg að halda að þetta sé fyrsta örygg­is­tækið sem fólk myndi fjár­festa í þegar það flytur í nýja íbúð.“

Einn reykskynjari hefði bjargað öllu

Bruninn varð sem fyrr segir í kjall­ara­í­búð í Mávahlíð í Reykja­vík og var fjallað um hann í öllum fjöl­miðlum lands­ins. Þar bjó Rahmon, kær­asti Sólrúnar Öldu. „Hún gisti hjá honum þar þessa örlaga­ríku nótt,“ segir Þórunn Alda. „Hún var ýmist heima hjá sér eða hjá honum, bara eins og gengur.“

Enginn reyk­skynj­ari var á heim­il­inu, en eig­andi íbúð­ar­innar komst út af sjálfs­dáðum. Sólrúnu Öldu og Rahmon var bjargað út um svefn­her­berg­is­glugg­ann þeirra. „Við erum með reyk­skynjara á okkar heim­ili, og maður gerir bara ráð fyrir að aðrir séu með þá. Þeir kosta nú ekki svo mikið, kannski 900 krónur stykkið og ég er kannski barna­leg að halda að þetta sé fyrsta örygg­is­tækið sem fólk myndi fjár­festa í þegar það flytur í nýja íbúð.“

„Við höfum ekki fengið upp­lýs­ingar um það,“ segir Þórunn Alda aðspurð um orsök brun­ans. „Einu upp­lýs­ing­arnar sem við höfum eru það sem við höfum lesið, að hann hafi átt upp­tök sín í eld­hús­inu vegna potts á elda­vél. Við höfum ekki fengið upp­lýs­ingar frá lög­regl­unni eða öðrum. Og svo sem ekki sóst eftir þeim heldur.“

 Ætlar að koma heim með dóttur sinni

Vikuna eftir brun­ann í Mávahlíð urðu fjórir til fimm heim­il­is­elds­voðar víðs vegar um landið, og líkt og þar var eng­inn reyk­skynj­ari til staðar. Tjón varð á öllum heim­ilum, mikið á sumum þeirra, en eng­inn slas­að­ist í þeim elds­voðum.

„Þessar fréttir sjokker­uðu okkur og við fengum smáá­fall við að fólk væri svona kæru­laust. Ef þú treystir þér ekki til að bora reyk­skynjara upp í loftið, settu hann þá upp á skáp, finndu hæsta punkt í íbúð­inni, settu hann upp á gard­ínu­stöng­ina. Sýndu frum­kvæði,“ segir Þórunn Alda og ítrekar mik­il­vægi þess að fólk hugi að bruna­vörnum á heim­ilum sínum.

„Ég hef aldrei og ætla aldrei að lenda í þessu aftur. Og ég óska engu for­eldri að vera í þess­ari stöðu. Þetta er til­gangs­laust, farðu út og kauptu þér reyk­skynjara. Hvert ein­asta heim­ili ætti að vera með reyk­skynjara,“ segir Þórunn Alda þegar hún er spurð þeirrar kald­rana­legu spurn­ingar hvort aðstæð­urnar nú séu ekki þær verstu sem hún hefur glímt við.

„Ég hef aldrei og ætla aldrei að lenda í þessu aftur. Og ég óska engu for­eldri að vera í þess­ari stöðu. Þetta er til­gangs­laust, farðu út og kauptu þér reyk­skynjara. Hvert ein­asta heim­ili ætti að vera með reyk­skynjara.“

„Það á ekki að vera þannig að það séu fjórir elds­voðar sömu vik­una og eng­inn með reyk­skynjara. Þetta er svo skrítið, kannski af því að við höfum alltaf verið með reyk­skynjara á okkar heim­ili og farið yfir þá,“ segir Þórunn Alda og bætir við að lækn­arnir úti hafi sagt þeim að elds­voðar séu algengir í svefn­her­bergjum þar sem fólk hleður síma þar inni. „Við hjónin settum reyk­skynjara upp í öllum svefn­her­bergjum. Ég vil hvetja fólk til að setja upp reyk­skynjara, sér­stak­lega í svefn­her­bergjum ung­linga, bara ef eitt­hvað ger­ist.“

Fjöl­skyldan hefur notið mik­ils stuðn­ings eftir að elds­voð­inn varð. Vinkonur Sólrúnar Öldu stóðu fyrir bæna­stund í Grinda­vík­ur­kirkju og styrkt­ar­tón­leikar eru fyr­ir­hug­aðir 10. des­em­ber. „Við höfum fundið mik­inn stuðn­ing frá fólk­inu okkar og sam­fé­lag­inu. Við erum þakk­lát öllu því fólki sem kemur fram á tón­leik­unum og við skipu­lagn­ingu þeirra. Sigríður María á þakkir skildar fyrir vinnu sína. Bryggjan fyrir að lána þeim hús­næði sitt þennan dag. Við finnum stuðn­ing úr öllum áttum,“ segir Þórunn Alda.

Tíminn einn á eftir að leiða í ljós hvernig bati unga pars­ins verður. „Það á eftir að koma í ljós hvaða afleið­ingar elds­voð­inn hefur. Við tökum bara hálfan dag í einu og höfum gert síð­asta mánuð. Við gerum engin plön nema þau að við ætlum heim saman,“ segir Þórunn Alda. „Við erum stað­ráðin í því að koma heim með Sólrúni Öldu, hvenær sem það verður.“

Fjöl­skyldan: Þórunn Alda og Pétur ásamt börnum sínum, Hafliða Breka og Sólrúnu Öldu Waldorff, Birgittu Sif, Karli Óskari og Glódísi Köru Pét­urs­börnum.

Sjá einnig: „Ég óska engu for­eldri að vera í þess­ari stöðu“

Sjá einnig: Sólrún Alda og Rahmon berj­ast fyrir lífi sínu: Styrkt­ar­reikn­ingur stofn­aður

Sjá einnig: Bæna­stund í Grinda­vík­ur­kirkju fyrir kon­una sem slas­að­ist í brun­anum í Mávahlíð

Sjá einnig: Þrjú slösuð eftir bruna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Tækið er sagt geta borið fjóra fullorðna einstaklinga
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Svipuð atvik hafa komið upp við heimili Ragnars frá árinu 2023
Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti