Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Óttaðist að fólki fyndist hún ógeðsleg

Druslu­gangan verður farin í níunda sinn í dag en til­gangur hennar er að sýna brota­þolum kyn­ferð­is­of­beldis sam­stöðu og krefj­ast betra rétt­ar­kerfis og bætts sam­fé­lags. Að göngu lok­inni verður skipu­lögð dag­skrá á Arn­ar­hóli, tón­list­ar­at­riði og ræðu­höld en meðal þeirra sem taka til máls er Sigrún Braga­dóttir sem hefur meðal ann­ars vakið athygli fyrir að tala opin­skátt um afleið­ingar kyn­ferð­is­of­beldis sem hún varð fyrir.

Óttaðist að fólki fyndist hún ógeðsleg
Sigrún Braga­dóttir. Mynd/Hákon Davíð Björns­son|

„Ég ætla að tala um bata­ferli í kjöl­far kyn­ferð­is­of­beldis og hvað þetta ferli getur verið mis­jafnt eftir brota­þolum. Það er nefni­lega alltaf verið að draga upp þá staðalí­mynd af brota­þolum að þeir séu einir grát­andi úti í horni, á meðan raun­veru­leik­inn er sá að brota­þolar eru jafn­ó­líkir og þeir eru margir og þeir koma sér upp alls konar bjarg­ráðum til að kom­ast af. Til að þrauka. Nokkuð sem mér finnst mik­il­vægt að benda á þar sem þetta gleym­ist gjarnan í umræð­unni um þolendur kyn­ferð­is­of­beldis,“ segir Sigrún.

Sigrún talar af reynslu því hún lenti í kyn­ferð­is­of­beldi fyrst þegar hún var barn þegar maður sem tengd­ist henni í gegnum fjöl­skyld­una mis­not­aði hana. Hún varð einnig fyrir kyn­ferð­is­legu ofbeldi af hendi frænda síns, henni var byrlað ólyfjan í mennta­skóla og hún var áreitt kyn­ferð­is­lega á skóla­balli þegar hún var í 8. bekk. Sigrún var orðin fer­tug þegar hún við­ur­kenndi þetta loks fyrir sjálfri sér og leit­aði hjálpar hjá Stíga­mótum. Síðan þá hefur hún unnið úr afleið­ingum kyn­ferð­is­of­beld­is­ins með ýmsum hætti og meðal ann­ars haldið úti raf­rænni dag­bók utan um bata­ferli sitt á Twitter undir myllu­merk­inu #Bata­ferli­Sig­rúnar.

Í sjó­sundi í Naut­hóls­vík. „Ég fór að stunda sjó­sund sem hluti af bata­ferl­inu mínu.“

Átti erfitt með að opna sig um ofbeldið
„Rafræna dag­bókin var fyrst hálf­gert til­rauna­verk­efni í kjöl­far Druslu­göng­unnar árið 2016, eða um það leyti sem ég fór í veik­inda­leyfi í vinn­unni vegna afleið­inga kyn­ferð­is­of­beld­ins sem ég varð fyrir, en í henni ákvað ég að fjalla á heið­ar­legan hátt um það hvernig ég hafði verið að takast á við þessar afleið­ingar,“ lýsir hún. „Þetta var mjög erfitt skref þar sem ég er ekki mikið gefin fyrir athygli þrátt fyrir að vera svo­lítil brussa, í jákvæðum skiln­ingi orðs­ins. Mér fannst líka erfitt að ætla að taka mér þetta pláss fyrir mínar hugs­anir og mína til­veru. Ég var svo sann­færð um að ef ég deildi reynslu minni og hugs­unum með öðrum sæi fólk hvað ég væri raun­veru­lega ömur­leg og við­bjóðs­leg og það myndi ekki vilja vita meira af mér. Ég vissi þá ekki að það er eitt ein­kenni á afleið­ingum kyn­ferð­is­of­beldis að þolendur eru stöðugt að passa upp á ímynd­ina því þeir eru svo hræddir við við­brögð ann­arra. Hræddir við að vera hafnað.“

„Ég var svo sann­færð um að ef ég deildi reynslu minni og hugs­unum með öðrum sæi fólk hvað ég væri raun­veru­lega ömur­leg og við­bjóðs­leg og það myndi ekki vilja vita meira af mér.“

Sigrún segir dag­bók­ina hafa verið æfingu í því að ber­skjalda sig á öruggan hátt því hún hafi ráðið nákvæm­lega hvað hún sagði frá miklu. Og þvert á það sem hún bjóst við voru við­tök­urnar góðar. „Ég fann óvænt fyrir með­byr. Þá er ég ekki að tala um að ein­hver klapp­stýru­fögn­uður hafi brot­ist út heldur tengdu margir við það sem ég sagði og þar af leið­andi fékk ég á til­finn­ing­una að ég væri ekki ein á þess­ari veg­ferð. Að þetta hjálp­aði öðrum. Að ég gæti veitt öðrum von með því að segja frá því hvernig ég hef unnið mig út úr þessu, líka frá mis­tök­unum sem ég hef gert og hvernig líf mitt er í dag. Því án þess að ætla að hljóma eins og ein­hver amer­ísk fimmaura­sál­fræði og segja fólki hvað það á að gera þá finnst mér mik­il­vægt að sýna fólki að það er alltaf von. Von um bata. Von um betra líf. Að von er ekki ein­hver óraun­hæfur draumur, heldur getur hún fleytt fólki ansi langt.“

Sigrún hefur vakið athygli fyrir að tala opin­skátt um afleið­ingar kyn­ferð­is­of­beldis sem hún varð fyrir. Mynd/Hákon Davíð Björns­son

Skiln­ings­lausir ráða­menn
Sigrún bætir við að mark­miðið með dag­bók­inni hafi þó ekki síður verið að skera upp herör gegn þögg­un­inni sem umlykur kyn­ferð­is­brot í íslensku sam­fé­lagi. „Það er alltaf verið að senda okkur þau skila­boð að halda kjafti og vera sæt, því þá erum við ekki fyrir og ekki til vand­ræða. Nú eru alls konar bylt­ingar í gangi til að ögra þess­ari þöggun og ekki veitir af. Það er nefni­lega ótrú­lega sorg­legt hvernig ráða­menn þjóð­ar­innar virð­ast líta á þessi mál. Batterí sem veita þolendum kyn­ferð­is­of­beldis þjón­ustu berj­ast í bökkum, sem dæmi, sem er skelfi­legt til að hugsa. Svo er líka verið að skera niður í geð­heil­brigð­is­geir­anum. Þessi mála­flokkur er bara ekki í for­gangi á Alþingi, það er nokkuð ljóst.

Það er eins og þing­menn átti sig hrein­lega ekki á því hversu mik­il­vægt er að veita brota­þolum áfalla­hjálp og hversu mik­il­vægt er að sinna fíkni­með­ferðum barna og ung­linga svo þessi brotnu börn verði ekki brotnir full­orðnir ein­stak­lingar sem ali aðra brotna ein­stak­linga. Eins og þeir skilji ekki að ef ekk­ert er að gert verður þetta eilífur víta­hringur.“

Heldur fast í von­ina
Sigrún seg­ist þó trúa að ein­hvern tím­ann muni ástandið lag­ast og bindur vonir við að unga kyn­slóðin taki málin í sínar hendar. „Ég er bjart­sýn á það, enda hefur þessi kyn­slóð sem er að vaxa úr grasi sýnt að hún er með­vituð um sam­fé­lagið, að henni stendur ekki á sama og það þvert á stjórn­mála­flokka. Meira að segja í Sjálf­stæð­is­flokknum er ungt fólk sem er farið að berj­ast fyrir umhverf­inu. Já, það eru breyt­ingar í aðsigi og ég bind vonir við þessa ungu kyn­slóð sem kemur til með að taka við af minni kyn­slóð, þess­ari for­rétt­inda­firrtu kyn­slóð sem nú er við völd. Ég er bjart­sýn­is­mann­eskja og held fast í von­ina.“

„Án þess að ætla að hljóma eins og ein­hver amer­ísk fimmaura­sál­fræði og segja fólki hvað það á að gera þá finnst mér mik­il­vægt að sýna fólki að það er alltaf von. Von um bata. Von um betra líf.“

Hún seg­ist líka, þrátt fyrir allt, trúa því að fólk sé almennt gott og það vilji almennt vel. Illska sé ekki það sama og flónska. Almennt sé fólk að reyna að gera sitt besta þótt það sé „í van­mætti“, eins og hún orðar það. Það sé stóri lær­dóm­ur­inn sem hún hafi dregið af því að halda úti fyrr­nefndri dag­bók. Bókinni sem átti bara að vera til­rauna­verk­efni í viku en er enn í vinnslu heilum þremur árum síðar.

En hvaða áhrif von­ast hún til að það hafi að stíga fram og taka til máls í dag að lok­inni Druslu­göng­unni? „Í stuttu máli vona ég að ég geti vakið upp, eða minnt á von­ina hjá fólki,“ segir hún. „Það er mín ein­læga ósk.“

Sjá einnig: Kom aldrei til greina að segja strax frá

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð