Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Straujar þú kortin fyrir ruslatunnuna?

Nútíma­fólk virð­ist haldið marg­vís­legri söfn­un­ar­áráttu. Eitt af því sem það safnar er matur í skápana sína. Afleið­ingin af því er að margt fólk hendir fleiri þús­und­köllum í viku – beint í rusla­tunn­una.

Straujar þú kortin fyrir ruslatunnuna?
mat­vöru­búð

Straujar þú pen­inga­kortin þín reglu­lega fyrir ruslakist­una? Ég þekki margt fólk sem gerir það, jafn­vel nokkrum sinnum í viku, þrátt fyrir að fólk sé orðið með­vit­aðra um það sem heitir mat­ar­sóun. Það fer í ísskáp­inn sinn og hendir mat sem það keypti fyrir nokkrum dögum. Þetta fólk gerir sömu mis­tökin dag eftir dag, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð og jafn­vel ár eftir ár – það kaupir of mikið inn. Fólk hendir pen­ing­unum sínum eins og það eigi nóg af þeim en hluti af því kvartar svo sáran yfir þeim blóð­pen­ingum sem fara í mat­væli því verðið sé svo sví­virði­lega hátt. ,,Maður líttu þér nær“ hefur nú stundum verið notuð af minna til­efni.

Nú væri dag­legt mat­væla­hamstur af þessu tagi skilj­an­legt ef engar væru sól­ar­hrings­sjopp­urnar eða ef afgreiðslu­tími versl­ana hefði styst veru­lega á síð­ustu árum en hvor­ugt er raunin. Hömlur á verslun með mat og óáfenga drykki eru engar, allt fæst og nóg af því ólíkt því sem tíðk­að­ist á hafta­ár­unum og eldri kyn­slóðir muna ef til vill enn eftir. Það er þó engu lík­ara en að yngri kyn­slóð­irnar, sem fyrir helgar storma á milli rekka og kúf­fylla stórar inn­kaupa­kerr­urnar, búist við mjög svo hamlandi ham­förum – eftir helg­arnar. Magn mat­væl­anna í körf­unum virð­ist ekki aðeins duga fyrir vísi­tölu­fjöl­skyldu nútím­ans heldur hálft ætt­ar­mót en samt eru slíkir fagn­aðir fátíðir í tengsla­leysi nútím­ans.

Pakkamatur fyrir móðuharðindin

Fólk byrjar á því að setja kæli­vör­urnar inn í ísskáp, ægi­lega ánægt með sýni­legan árangur versl­un­ar­ferð­ar­innar. Ísskáp­ur­inn hjá sumu fólki sem ég þekki er svo troð­fullur að það er varla hægt að loka honum. Nið­ur­suðu­dósir og pakka­matur flæða þar að auki út úr skáp­unum, því alltaf er keypt eitt­hvað nýtt í hverri ferð. Fólk er nefni­lega löngu búið að gleyma hvað það keypti í síð­ustu ferð svo að það kaupir nokkrar dósir af Ora-baunum og Maggi-súpum til við­bótar. Nokkrir hafa ekki enn náð sér eftir að Bónus og Krónan fóru að selja líf­rænt ræktað græn­meti og finnst sem þeir fái aldrei Sollu-tómatsósu á jafn­góðu verði aftur. Sumir sem ég þekki gætu áreið­an­lega lifað góðu lífi yfir léttu móð­ur­harð­inda­tíma­bil bara á mat­væl­unum sem þeir eiga.

En sem sagt, eftir að fólk er búið að kroppa í eitt­hvað af birgð­unum sem það keypti fyrir „ætt­ar­mótið“ byrjar það fljót­lega að henda mat, m.a. vegna þess að þeir telja hann hafa afar tak­markað geymslu­þol sem er rétt og þarf að haga inn­kaupum eftir því. Þetta er ekki fólk sem er ríkt og nöldrar samt sífellt yfir því hvað mat­væli eru dýr hér á landi á meðan sann­leik­ur­inn er sá að það nýtir ekki mat­inn nægi­lega vel. Það er eins og fólk hafi ekki upp­götvað að mat­væli bera eig­in­lega nei­kvæða vexti því þau skemm­ast og fyrn­ast mjög hratt. Fólk á að hafa það í huga við mat­ar­inn­kaup.

Dulbúin peningasóun

Fólk tekur því reglu­lega pen­inga út úr bank­anum til þess eins að henda þeim í rusla­tunn­una með við­komu í eld­hús­skáp­unum. Sumir eins og ekk­ert sé, aðrir fussa og sveia og þykj­ast ekk­ert skilja af hverju svona mikið af matnum fer í ruslið. Halló! Of mikil inn­kaup, ein­hver? Ég er nefni­lega viss um að þetta sama fólk myndi aldrei tína þús­und þús­und­kall­ana úr vesk­inu sínu og henda þeim í rusla­tunn­urnar. Þetta gera hins vegar margir, með einni við­komu – það dul­býr pen­inga­só­un­ina í mat­vælum.

Það er að öllum lík­indum hag­stæð­ara að kaupa minna en meira, jafn­vel þótt farið sé í lág­vöru­verðs­versl­anir.

Nú kann ein­hver að spyrja: „Á fólk þá bara að hætta að kaupa í mat­inn? Auðvitað ekki. En það verður að læra list­ina að í mat­inn fyrir sig sjálft eða raun­veru­lega fjöl­skyldu­stærð ekki fyrir ætt­ar­mótið sem er haldið svo sjaldan. Gott er að gera áætl­anir um mál­tíðir nokkra daga fram í tím­ann og skipu­leggja inn­kaup sam­kvæmt því. Notið svo kæli­skáp og fryst­inn til að geyma við­kvæm mat­væli sem hafa lítið geymslu­þol svo hann fari ekki til spillis. Það er ekki eðli­legt að kasta mat fyrir þús­undir króna í viku, þó að það væri ekki nema þús­und­kall. Það á að vera metn­aður heim­il­is­rek­anda að henda eins litlu af mat­ar­pen­ing­unum í ruslið og kostur er – helst engum. Það er mögu­legt og í raunar ekki svo erfitt. Fólk öðl­ast engin lífs­gæði fyrir pen­ing­ana í rusla­tunn­unni auk þess sem minni mat­ar­sóun verndar nátt­úr­una.

Það er að öllum lík­indum hag­stæð­ara að kaupa minna en meira, jafn­vel þótt farið sé í lág­vöru­verðs­versl­anir. Matvælin þar kosta einnig fé. Magninn­kaup eru ekki í öllum til­fellum þau hag­kvæm­ustu. Það má líka alltaf nálg­ast bráð­nauð­syn­legar jafnt sem ónauð­syn­legar nýlendu­vörur í næstu búð sem yfir­leitt er ekki fjarri heim­ilum fólks. Það má tvinna saman hreyf­ingu og inn­kaupin með því að ganga út í búð tvisvar til þrisvar í viku en það er ódýr­ara en að fara á lík­ams­rækt­ar­stöð. Hreyf­ingin og skyn­sam­leg mat­ar­inn­kaup og matar­æði gerir líka mikið fyrir heils­una. Talandi um að slá tvær flugur í einu höggi.

Líftími matvæla er misjafn

Það er auð­vitað nokkuð mis­jafnt hversu miklum pen­ingum fólk hendir í viku en margt smátt gerir eitt stórt, t.d. yfir mán­að­ar­tíma­bil eða allt árið. Matvæli eru mis­jafn­lega við­kvæm fyrir geymslu til lengri tíma.

Salöt og krydd­jurtir hafa t.d. stuttan líf­tíma. Gos­drykkir verða fljótt gos­lausir og enda oft í rusl­inu dag­inn eftir að þeir eru opn­aðir. Brauð er einnig við­kvæmt sem og ban­anar, ferskt pasta og kjúklingur svo aðeins nokkuð sé nefnt. Jarð­ar­berin hafa alveg ótrú­lega stuttan geymslu­tíma að því er mörgum finnst.

Mjólkin flýgur fljót­lega því sumir telja að þeir fái mat­ar­eitrun ef þeir drekka mjólk­ina sama dag­inn hún er dag­sett best fyrir.

Ótrú­leg­asta fólk hendir t.d. heilli melónu af því að því finnst svo langt síðan það keypti hana og telur að farið að slá í hana eða hendir árs­gömlum pakka­mat. Það er því nauð­syn­legt að vera með­vit­aður um líf­tíma mat­væla og haga verður inn­kaupum eftir því sem og skipu­lagn­ingu mat­seð­ils­ins sem fram undan er. Er t.d. hægt að nota ein­hver mat­væli í tvær mál­tíðir og nýta þau því betur?

Stríðið við mat­ar­só­un­ina er enda­laust en vinna má margar orr­ustur. Það er æfingin sem skapar meist­ar­ann.

Texti / Unnur H. Jóhanns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu