Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dagbók úr sóttkví: Sunnudagurinn langi

Dagbók úr sóttkví: Sunnudagurinn langi
Mynd / Elo Vazquez|Nánari umfjöllun í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Þriðj­ungur heims er nú ann­að­hvort í sótt­kví eða útgöngu­banni vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins. Margir upp­lifa hræðslu enda sér ekki fyrir end­ann á þess­ari vá. Rit­höf­und­ur­inn Óttar M. Norð­fjörð er búsettur í Barcelona ásamt eig­in­konu sinni, Eloísu Vázquez, og ungum syni þeirra. Hér lýsir hann útgöngu­bann­inu á Spáni og hinnum und­ar­legu síð­ustu dögum.

Árið 1700 hurfu ell­efu dagar úr íslenska daga­tal­inu. Fólk sem fór að sofa mið­viku­dag­inn 17. nóv­em­ber vakn­aði mánu­dag­inn 29. nóv­em­ber, því júl­íska tíma­tal­inu var skipt út fyrir það gregor­íska til að laga inn­byggða skekkju sem hafði vaxið í gegnum ald­irnar og orsakað ell­efu auka­daga þegar hér var komið sögu. Ég á nokkra vini sem hefðu ein­fald­lega misst af afmæl­is­deg­inum sínum það árið. Frekar fúlt. En Íslend­ingar í þá daga bjuggu nátt­úr­lega enn þá í mold­ar­kofum, liðu mat­ar­skort og með­al­ævi­lengd var í kringum 35 ár, svo kannski var pulsupartí ekki ofar­lega á dag­skrá hvort sem er.

„Ég er búinn að hlusta svo oft á „Life is a Rollercoaster“ með Ronan Keating og „Never Gonna Give You Up“ með Rick Astley – upp­á­halds­lög stráks­ins míns – að það er farið að ógna geð­heilsu minni meira en fréttir af COVID-19.“

Í dag varð mér hugsað til þess­ara ell­efu horfnu daga fyrir rúm­lega 300 árum, því þegar ég skrifa þetta er ég á ell­efta degi í hálf­gerðri sótt­kví og til­finn­ing mín fyrir þeim er ein­hvern veg­inn svipuð. Það er eins og síð­ustu dagar hafi hrein­lega horfið, enda höfum við sem búum hér á Spáni lifað í ein­hvers konar tómi, í ein­hvers konar tíma­leysi, frá því að neyð­ar­á­standi var lýst yfir í land­inu og útgöngu­bann sett á. Frum­sýn­ingar bíó­mynda, tón­leikar, íþrótta­við­burðir, hátíðir, afmæl­is­veislur og annað sem átti að fara fram í mars og apríl hefur verið blásið af eða fært aftar. Árið 2020 er árið sem vor­inu var frestað fram á haust.

Life is a Rollercoaster

Eða er kannski tóm vit­leysa að hugsa um þetta sem gat í daga­tal­inu? Sem horfnar vikur? Það má hugs­an­lega segja að við höfum aldrei áður fengið jafn­mik­inn tíma að gjöf og akkúrat núna. Öll áttum við að vera að gera eitt­hvað allt annað en að hanga heima hjá okkur, önnum kafin í hvers­dags­leik­anum, önnum kafin að vinna, fara í rækt­ina, sækja börnin, und­ir­búa næsta ferða­lag. En svo er eins og risa­stór hendi hafi sópað öllum plönum heims­byggð­ar­innar út af borð­inu. Kannski eigum við að líta á þetta eins og þegar maður heldur að það sé mið­viku­dagur, en það er í raun þriðju­dagur. Spurn­ingin er bara hvað við ætlum að gera við þennan óvænta tíma sem við fengum til að vera heima hjá okkur.

Nánari umfjöllun í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Í mínu til­viki eru þetta eig­in­konan mín, tæp­lega tveggja ára gamli sonur okkar og ég. Konan mín er þar að auki komin 33 vikur á leið og við ákváðum þess vegna að fara sér­stak­lega var­lega. Óléttar konur eru ekki taldar í sér­stökum áhættu­hópi vegna veirunnar, en maður veit aldrei. Við byrj­uðum því í okkar sótt­kví nokkrum dögum áður en hún var sett á og konan mín hefur ekki farið út síðan. Það er vissu­lega áskorun að hafa lít­inn gutta heima allan dag­inn, fullan af orku og vanan því að fara út, en börn eru fljót að læra og hann er strax orð­inn sáttur við það að vera alinn upp sem inni­köttur. En maður verður samt að hafa ofan af fyrir honum. Við hlaupum til dæmis mikið í kringum stofu­borðið með blöðrum og tón­list, nágrann­anum til mik­illar gleði er ég viss um. Ég er búinn að hlusta svo oft á „Life is a Rollercoaster“ með Ronan Keating og „Never Gonna Give You Up“ með Rick Astley – upp­á­halds­lög stráks­ins míns – að það er farið að ógna geð­heilsu minni meira en fréttir af COVID-19. Ég er líka búinn að heyra Disney-klúbbs hljóð­bók­ina Bambi – Týndi íkorn­inn svo oft að ég er alvar­lega að hugsa um að skrifa dokt­ors­rit­gerð um hana þegar far­aldr­inum lýkur, enda brennur fjöld­inn allur af spurn­ingum á mér um þetta marg­slungna verk. Hvers vegna er týndi íkorn­inn, hún Smá, til dæmis flissandi í byrjun bók­ar­innar þótt hún sé nýbúin að týna mömmu sinni? Og hvers vegna leitar mamma hennar ekki að henni, heldur bíður bara eftir því að Bambi bjargi mál­unum? Getur verið að Smá hafi ekki týnst eftir allt saman, heldur í raun flúið ofbeld­is­fullt heim­ili og brotna æsku?

Þegar þetta eru spurn­ing­arnar sem leita á mann kemur kannski ekki á óvart að fólk telji að öll þessi inni­vera muni splundra fjöl­skyldum og leiða til skiln­aða. Tölur frá Kína virt­ust meira að segja benda til þess, en dregið hefur verið í land með það. Mig grunar nefni­lega að fólk verði bara nán­ara ef eitt­hvað er. Á tímum sem þessum lærir fólk að taka ekki öllu sem sjálf­sögðum hlut og það gildir líka um hvort annað. Ég á nágranna hérna í Barcelona sem ég heyri stundum ríf­ast, en ég hef ekki heyrt bofs í þeim síðan að útgöngu­bannið hófst. Getur verið að þau, eins og aðrir, sjái loks­ins hvað skiptir raun­veru­legu máli? Ég vona að minnsta kosti að það sé ástæðan fyrir þögn­inni frá íbúð nágrann­anna og ekki eitt­hvað annað.

Nánar í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Texti / Óttar M. Norð­fjörð
Myndir / Elo Vázquez

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi