Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sunnudagurinn langi

Sunnudagurinn langi
Mynd / Elo Vázquez

Þriðj­ungur heims er nú ann­að­hvort í sótt­kví eða útgöngu­banni vegna COVID-19 heims­far­ald­urs­ins. Margir upp­lifa hræðslu enda sér ekki fyrir end­ann á þess­ari vá. Rit­höf­und­ur­inn Óttar M. Norð­fjörð er búsettur í Barcelona ásamt eig­in­konu sinni, Eloísu Vázquez, og ungum syni þeirra. Hér skrifar hann um útgöngu­bannið á Spáni og hina und­ar­legu síð­ustu daga.

Árið 1700 hurfu ell­efu dagar úr íslenska daga­tal­inu. Fólk sem fór að sofa mið­viku­dag­inn 17. nóv­em­ber vakn­aði mánu­dag­inn 29. nóv­em­ber, því júl­íska tíma­tal­inu var skipt út fyrir það gregor­íska til að laga inn­byggða skekkju sem hafði vaxið í gegnum ald­irnar og orsakað ell­efu auka­daga þegar hér var komið sögu. Ég á nokkra vini sem hefðu ein­fald­lega misst af afmæl­is­deg­inum sínum það árið. Frekar fúlt. En Íslend­ingar í þá daga bjuggu nátt­úr­lega enn þá í mold­ar­kofum, liðu mat­ar­skort og með­al­ævi­lengd var í kringum 35 ár, svo kannski var pulsupartí ekki ofar­lega á dag­skrá hvort sem er.

Í dag varð mér hugsað til þess­ara ell­efu horfnu daga fyrir rúm­lega 300 árum, því þegar ég skrifa þetta er ég á ell­efta degi í hálf­gerðri sótt­kví og til­finn­ing mín fyrir þeim er ein­hvern veg­inn svipuð. Það er eins og síð­ustu dagar hafi hrein­lega horfið, enda höfum við sem búum hér á Spáni lifað í ein­hvers konar tómi, í ein­hvers konar tíma­leysi, frá því að neyð­ar­á­standi var lýst yfir í land­inu og útgöngu­bann sett á. Frum­sýn­ingar bíó­mynda, tón­leikar, íþrótta­við­burðir, hátíðir, afmæl­is­veislur og annað sem átti að fara fram í mars og apríl hefur verið blásið af eða fært aftar. Árið 2020 er árið sem vor­inu var frestað fram á haust.

„Ég er búinn að hlusta svo oft á „Life is a Rollercoaster“ með Ronan Keating og „Never Gonna Give You Up“ með Rick Astley – upp­á­halds­lög stráks­ins míns – að það er farið að ógna geð­heilsu minni meira en fréttir af COVID-19.“

Life is a Rollercoaster

Eða er kannski tóm vit­leysa að hugsa um þetta sem gat í daga­tal­inu? Sem horfnar vikur? Það má hugs­an­lega segja að við höfum aldrei áður fengið jafn­mik­inn tíma að gjöf og akkúrat núna. Öll áttum við að vera að gera eitt­hvað allt annað en að hanga heima hjá okkur, önnum kafin í hvers­dags­leik­anum, önnum kafin að vinna, fara í rækt­ina, sækja börnin, und­ir­búa næsta ferða­lag. En svo er eins og risa­stór hendi hafi sópað öllum plönum heims­byggð­ar­innar út af borð­inu. Kannski eigum við að líta á þetta eins og þegar maður heldur að það sé mið­viku­dagur, en það er í raun þriðju­dagur. Spurn­ingin er bara hvað við ætlum að gera við þennan óvænta tíma sem við fengum til að vera heima hjá okkur.

Í mínu til­viki eru þetta eig­in­konan mín, tæp­lega tveggja ára gamli sonur okkar og ég. Konan mín er þar að auki komin 33 vikur á leið og við ákváðum þess vegna að fara sér­stak­lega var­lega. Óléttar konur eru ekki taldar í sér­stökum áhættu­hópi vegna veirunnar, en maður veit aldrei. Við byrj­uðum því í okkar sótt­kví nokkrum dögum áður en hún var sett á og konan mín hefur ekki farið út síðan. Það er vissu­lega áskorun að hafa lít­inn gutta heima allan dag­inn, fullan af orku og vanan því að fara út, en börn eru fljót að læra og hann er strax orð­inn sáttur við það að vera alinn upp sem inni­köttur. En maður verður samt að hafa ofan af fyrir honum.

Við hlaupum til dæmis mikið í kringum stofu­borðið með blöðrum og tón­list, nágrann­anum til mik­illar gleði er ég viss um. Ég er búinn að hlusta svo oft á „Life is a Rollercoaster“ með Ronan Keating og „Never Gonna Give You Up“ með Rick Astley – upp­á­halds­lög stráks­ins míns – að það er farið að ógna geð­heilsu minni meira en fréttir af COVID-19. Ég er líka búinn að heyra Disney-klúbbs hljóð­bók­ina Bambi – Týndi íkorn­inn svo oft að ég er alvar­lega að hugsa um að skrifa dokt­ors­rit­gerð um hana þegar far­aldr­inum lýkur, enda brennur fjöld­inn allur af spurn­ingum á mér um þetta marg­slungna verk. Hvers vegna er týndi íkorn­inn, hún Smá, til dæmis flissandi í byrjun bók­ar­innar þótt hún sé nýbúin að týna mömmu sinni? Og hvers vegna leitar mamma hennar ekki að henni, heldur bíður bara eftir því að Bambi bjargi mál­unum? Getur verið að Smá hafi ekki týnst eftir allt saman, heldur í raun flúið ofbeld­is­fullt heim­ili og brotna æsku?

Þegar þetta eru spurn­ing­arnar sem leita á mann kemur kannski ekki á óvart að fólk telji að öll þessi inni­vera muni splundra fjöl­skyldum og leiða til skiln­aða. Tölur frá Kína virt­ust meira að segja benda til þess, en dregið hefur verið í land með það. Mig grunar nefni­lega að fólk verði bara nán­ara ef eitt­hvað er. Á tímum sem þessum lærir fólk að taka ekki öllu sem sjálf­sögðum hlut og það gildir líka um hvort annað. Ég á nágranna hérna í Barcelona sem ég heyri stundum ríf­ast, en ég hef ekki heyrt bofs í þeim síðan að útgöngu­bannið hófst. Getur verið að þau, eins og aðrir, sjái loks­ins hvað skiptir raun­veru­legu máli? Ég vona að minnsta kosti að það sé ástæðan fyrir þögn­inni frá íbúð nágrann­anna og ekki eitt­hvað annað.

Ný heimsmynd

Sjálfur hef ég byrjað að haga mér öðru­vísi síðan að veiru­far­ald­ur­inn skall á, enda hefur hún neytt mann til að breyta lífs­mynstri sínu. Ég er til dæmis byrj­aður að skammta morg­un­múslíið mitt, því ég vil ekki fara í búð­ina sem selur það, enda er hún stór og vin­sæl og ávísun á smit. Í gær braut strák­ur­inn minn flugna­spað­ann okkar – lífs­nauð­syn­legt tól í landi moskítóflug­unnar – en í stað þess að henda honum og reyna að kaupa nýjan teip­aði ég þann gamla saman. Og svo eru það blöðr­urnar sem ég minnt­ist á að framan. Þær eru óvænt orðnar það verð­mætasta sem við eigum, enda hvetja þær strák­inn okkar til að hlaupa um stof­una og fá smá­vegis útrás, en gall­inn er hins vegar sá að þær eru byrj­aðar að missa loftið. Undir eðli­legum kring­um­stæðum myndi ég henda þeim og kaupa nýjar, en ég hef ekki hug­mynd um hvar ég get keypt blöðrur í Barcelona þessa síð­ustu og verstu. Einungis búðir sem selja nauð­synja­vörur fá að opna og mér skilst að blöðrur telj­ist enn ekki til þess hér í landi. Ég er þess vegna byrj­aður að end­ur­nýta þær með því að losa hnút­inn á þeim með alls kyns króka­leiðum og blása í þær aftur. Aldrei á ævinni hefði mér dottið það í hug áður. Kór­ónu­veiran ræðst nefni­lega ekki bara á fólk, heldur líka á sjálfar und­ir­stöður þess kerfis sem við höfum byggt okkur. Hún neyðir okkur til nýtni og að draga saman seglin.

Það er raunar magnað að sjá hversu hratt hlut­irnir geta breyst. Við Íslend­ingar fengum auð­vitað smá­æf­ingu í því í hrun­inu. Þá varð líka eitt­hvert rof í veru­leik­anum sem saug allt til sín svo ekk­ert annað komst að. Það sama er uppi á ten­ingnum nú. Á aðeins örfáum dögum hefur sjálf heims­myndin orðið önnur. Götur eru að mestu tómar eins og í heimsenda­mynd og þær fáu hræður sem læð­ast um með grímur og hanska fara var­lega um. Það er eng­inn að flýta sér lengur, það er eng­inn seinn lengur. Það er búið að hægja á öllu og fólk sýnir hvert öðru meiri til­lits­semi og þakk­læti en áður. Barcelona virkar líka hreinni, loftið er ekki eins mengað vegna mun minni umferðar og öll kvöld fer fólk út á svalir til að klappa fyrir hetj­unum sínum, heil­brigð­is­starfs­mönnum lands­ins. Lófatakið og gleð­iópin eru svo há að þau dynja um allt hverfið mitt á slag­inu átta. Það er eins og vírus­inn hafi ýtt á end­ur­ræs­ingu heims­ins og fengið okkur öll til að stoppa og hugsa um þá átt sem við vorum að æða í, hvert í sínu horni. Hann er að neyða okkur til sam­stöðu og sam­hugs einmitt þegar við þurftum mest á því að halda. Spurn­ingin er bara hvort þetta verði var­an­legt eða hvort allt detti í sama farið um leið og þessu lýkur.

Höfrungar og hnattræn hlýnun

En burt­séð frá því hvað ger­ist seinna meir, þá höfum við að minnsta kostið fengið inn­sýn í heim sem virk­aði örlítið fram­andi og jafn­vel ómögu­legur áður. Það hafa til dæmis ljós­myndir verið að ganga á Netinu sem sýna síkin í Feneyjum hrein og höfr­unga synda upp að bökkum hennar. Þetta var reyndar ekki alveg svo gott, höfr­ung­arnir voru í raun við strendur ítölsku eyj­unnar Sardiníu og skít­ur­inn í feneysku síkj­unum er enn til staðar en þyrl­ast síður upp sökum færri báta, en að loft­mengun hafi snar­minnkað í Kína og á Ítalíu er hins vegar engin flökku­saga. Í febr­úar lækk­aði losun koltví­sýr­ings í Kína um heil 25 pró­sent en landið ber ábyrgð á þriðj­ungi allrar los­unar í heim­inum svo um gríð­ar­lega háar tölur er að ræða er að ræða. Ástæðan er að sjálf­sögðu ein­föld, tíma­bundin lokun ýmissa verk­smiðja og marg­falt minni umferð í lofti, á láði og legi. Þegar vís­inda­menn hafa verið að vara við hlýnun jarðar sáu lík­lega fáir fyrir að nokkuð í lík­ingu við þetta gæti gerst og það á jafn­stuttum tíma. Kannski væri ein­fald­lega best ef það væri fram­vegis sett á útgöngu­bann í heim­inum í einn mánuð á ári, til dæmis í jan­úar eða febr­úar á landi eins og Íslandi, mán­uð­ina sem eng­inn þolir hvort sem er. Ætli það myndi duga til að stöðva hnatt­ræna hlýnun? Og það eina sem við þyrftum að gera væri að hanga heima hjá okkur og horfa á sjón­varpið? Frekar góður díll, ef þið spyrjið mig.

Ég hef meira að segja verið að næra áhuga minn á sam­sær­is­kenn­ingum aðeins að und­an­förnu og velt fyrir mér hvort kór­ónu­veiran sé í raun bara ein alls­herjar blekk­ing. Sett af stað af fámennum hópi til að sporna við hlýnun jarðar. Þetta er næstum of full­komið. Að breiða út óvin sem eng­inn sér. Sem er sama um kyn­þátt og trú­ar­brögð. Sem sam­einar fólk og neyðir það til að vera heima hjá sér og þannig draga úr neyslu og menga minna. Auðvitað er það ekki svo og fólk er í bráðri hættu, en það er bara eitt­hvað við tíma­setn­ing­una sem virkar hálf­ó­trú­legt. Einmitt þegar heim­ur­inn þurfti mest á því að halda að vakna, þá kemur veira sem lamar allt og krefur okkur um að end­ur­meta lífsmáta okkar. Það er nán­ast eins og það sé verið að æfa okkur í því að berj­ast við gróð­ur­hús­á­hrif, hina stóru vána sem ógnar mann­kyni nú um þessar mundir.

„Við erum komin svo óþægi­lega nálægt plág­unum tíu í Gamla testa­ment­inu að ég er að hugsa um að setja Biblíuna sem fylgdi íbúð­inni í fryst­inn.“

Bossa nova

Eins og þið sjáið er ég dott­inn í heimsósóma, en er annað hægt á þessum fárán­legu tímum sem við lifum á, þar sem mið­alda­sjúk­dómar ganga yfir, dýra­teg­undir deyja út hægri-vinstri, flóð þykja lík­leg til að eyða út stór­borgum og núna síð­ast, engi­sprettu­far­aldur í Afríku. Við erum komin svo óþægi­lega nálægt plág­unum tíu í Gamla testa­ment­inu að ég er að hugsa um að setja Biblíuna sem fylgdi íbúð­inni í fryst­inn. Ég skal reyndar við­ur­kenna hér og nú að ég var með „upp­lifa plágu á tímum sam­fé­lags­miðla“ á bucket-list­anum mínum, en núna sé ég að það er ekk­ert gaman, nema kannski fyrir allt það fal­lega sem maður hefur séð. Sam­stöð­una um víða ver­öld og hjálp­sem­ina á milli fólks og þjóða, að ógleymdum ítalska söngnum á svöl­unum þar í landi. Maður hefur ein­fald­lega mestar áhyggjur af því að svo skæð veira ber­ist í fjöl­mennar flótta­manna­búðir eða fátæk­ari ríki heims með verri heil­brigð­is­kerfi, því þá er líf millj­óna manna í alvöru í hættu. Það er á ábyrgð okkar allra að láta það ekki ger­ast, meðal ann­ars með því að halda okkur heima­fyrir og þvo okkur um hend­urnar. Ein­fald­ara verður það varla.

Það er auð­vitað ögn klikkað að maður sé kom­inn í þessa stöðu, að tala fyrir hand­þvotti og inni­veru til að bjarga manns­lífum, að vakna á morgn­ana og vita að maður sé að upp­lifa skrítn­ustu daga ævi sinnar. Ég fór til dæmis í tvær furðu­leg­ustu búð­ar­ferðir lífs míns þessa síð­ustu ell­efu daga. Í annarri ferð­inni voru flestar hillur tómar og fólk á fullu að hamstra síð­ustu mat­vör­urnar sem enn voru í boði. Í kjöt­deild­inni var ekk­ert eftir nema kassi með svína­feiti. Ég vona að svína­feitin taki það ekki of per­sónu­lega. Í hinni ferð­inni var eng­inn annar í mat­vöru­versl­un­inni nema ég, hillur þó vel troðnar líkt og ein­ungis fyrir mig, og á meðan ég ýtti kerrunni um eins og Palli var einn í heim­inum ómaði kósí lyftu­tón­list undir úr hátöl­urum. Ég leit örugg­lega út eins og ein­hver sturl­aður ein­valdur sem heimt­aði að fá að versla einn í risa­stórum súper­mark­aði.

Einna skrítn­ast í þessu öllu saman er þó kannski biðin. Það veit eng­inn hvað ger­ist næst. Það eina sem maður getur gert er að bíða og vona eftir fréttum um að ástandið sé byrjað að lag­ast. Eða bíða og vona eftir dag­setn­ingu um hvenær útgöngu­bann­inu verði loks aflétt. Tvær vikur? Fjórar vikur? Sex vikur? Ég las ein­hvers staðar að Nýja-Sjáland væri að hugsa um að setja 18 mán­aða sótt­kví í land­inu ef far­ald­ur­inn heldur áfram að breið­ast út. Bið og óvissa. Óvissa og bið. Engin furða að fólk viti ekki hvað það á að gera við sjálft sig. Ég sá myndir frá Banda­ríkj­unum þar sem íbúar voru að setja upp jóla­skreyt­ingar. Í mars. Þeir sögð­ust vilja „lýsa upp myrkrið“, en ég held að ástæðan sé önnur. Þetta eru súr­r­eal­ískir tímar og þá gerir fólk súr­r­eal­íska hluti. Ein­hverra hluta vegna hef ég til dæmis verið að hlusta óeðli­lega mikið á brasil­íska bossa nova tón­list í sótt­kvínni. Hvern hefði grunað að sam­badjass, þessi leik­andi létta en trega­fulla músík, væri hið full­komna tón­list í miðjum heims­far­aldri?

Eftirminnileg afmælisveisla

Fyrir ein­hverjum árum hélt ég að ég hefði fæðst í besta heimi allra mögu­legra heima eins og þýski heim­spek­ing­ur­inn Leibniz kall­aði það. Þegar ég var að alast upp á níunda ára­tug síð­ustu aldar var upp­gangur í heim­inum og hvergi nein ógn. Það var reyndar tals­vert talað um gatið á óson­lag­inu, en það var hvort sem er svo langt í burtu, og Saddam Hussein varð vin­sæll á þeim tíunda, en hann var líka ein­hvers staðar lengst úti í buska. Upp úr alda­mótum er eins og það hafi byrjað að halla undan fæti. Setjum 11. sept­em­ber sem upp­hafið. Að fljúga varð allt í einu hættu­legt. Hryðju­verka­árásir gátu gerst alls staðar. Síðan fengum við okkar eigin banka­krísu, þá stærstu síðan 1929, og um svipað leyti fóru gróð­ur­hús­á­hrifin að taka sífellt meira pláss í frétt­unum. En í stað þess að fá sterka þjóð­ar­leið­toga til að tækla það erf­iða mál gaf heim­ur­inn okkur hár­koll­u­sta­tífið Donald Trump og lukkutröllið Boris Johnson. Og þegar maður hélt að ástandið gæti varla orðið miklu skrítn­ara ákveður eitt stykki heims­plága að heilsa upp á. Þessi besti heimur allra mögu­lega heima sem ég trúði á í sak­leysi mínu virkar nú ansi fjar­lægur.

Ég ætl­aði að byrja á skáld­sögu um þetta allt saman, enda efni í heilt bóka­safn, þótt það væri vissu­lega smá­sjokk að fatta að þetta er í grunn­inn sögu­þráður kvik­mynd­ar­innar The Shining – hjón með ungan son fara í ein­angrun og fjöl­skyldu­fað­ir­inn hefst handa við skrif á skáld­sögu. En örvæntið ekki, mér tókst ekki einu sinni að byrja á bók­inni og hætti fljótt við hana, því þegar ég sat fyrir framan tölv­una og lok­aði aug­unum kom ekk­ert. Hausinn minn er svo smit­aður af veirunni að ég get varla hugsað um neitt annað. Ég er lítið að pæla í for­tíð­inni og ég er lítið að pæla í fram­tíð­inni. Ég hef lík­lega aldrei áður verið jafn­mikið í núinu. Kór­ónu­veiran er hin full­komna núvit­und. Nema kannski fyrir það litla atriði að við hjónin eigum von á okkar öðru barni eftir nokkrar vikur. Við reynum að gera okkar besta til að und­ir­búa komu þess, en í svona óvissu­á­standi er það erfitt. Spænska amman suður í Andalúsíu ætl­aði til dæmis að koma hingað til okkar og hjálpa til, en hver veit hvort það gangi upp. Við eigum líka eftir að kaupa barna­vagn handa barn­inu til að koma því heim af spít­al­anum, en við höfum ekki hug­mynd um hvort búðir muni verða opn­aðar á ný áður en það mætir. En við erum samt poll­ró­leg. Við reddum okkur. Fólk á erf­iðum tímum reddar sér alltaf, því þá áttar það sig á því hvað skiptir í raun og veru máli.

Ellefu dagar. Ellefu furðu­legir dagar síðan að við fjöl­skyldan fórum í sótt­kví. Dagar sem virð­ast nán­ast þurrk­aðir út af daga­tal­inu eins og þessir fyrir þremur öldum. Allt er á pásu, fram­tíð­inni hefur verið slegið á frest. Ef fólk vantar nafn á þetta tíma­bil sting ég upp á Sunnu­dag­ur­inn langi, því allir dagar eru eins og sunnu­dagur. Eins og óend­an­lega langur sunnu­dagur þar sem maður er heima í kósífötum með fjöl­skyld­unni. Sömu sögu er að segja um bæj­ar­lífið, allt er lokað og ein­ungis örfáir á ferli eins og zombí í leit að ein­hverjum að bíta. Eða hnerra á, í þessu til­viki. Það er ljóst að neyð­ar­á­standið á Spáni og útgöngu­bannið mun vara eitt­hvað áfram. Það þýðir fleiri horfna daga af alm­an­ak­inu, fleiri gleymd afmæli, en konan mín er einmitt ein þeirra sem átti afmæli í miðri sótt­kví. Hún var byrjuð að skipu­leggja veislu heima hjá okkur og bjóða ýmsum vinum, en það var auð­vitað allt blásið af og í stað­inn héldum við þrjú okkar eigið litla partí. Ég setti brasil­ískan bossa nova á og við bök­uðum köku úr því sem við áttum til í eld­hús­inu, því hún vildi ekki að ég hætti mér út úr húsi að óþörfum. Kakan var betri en við áttum von á og treg­inn í tón­list­inni hvarf í eitt and­ar­tak. Þetta verður eft­ir­minni­leg­asta afmæli sem ég hef nokkurn tíma farið í.

Texti / Óttar M. Norð­fjörð
Myndir / Elo Vázquez

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi