Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fjölskyldufríið breyttist í martröð: Uppskurður, RS-vírus, sandstormur og kórónaveira

Fjölskyldufríið breyttist í martröð: Uppskurður, RS-vírus, sandstormur og kórónaveira

Langþráð frí fimm manna fjöl­skyldu frá Grund­ar­firði varð martröð lík­ast þegar fjöl­skyldu­fað­ir­inn þurfti í aðgerð á sjúkra­húsi á Tenerife, yngsta barnið smit­að­ist af RS-vírus, sand­stormur frá Sahara haml­aði flugi og kór­óna­veiran greind­ist í ferða­mönnum á svæð­inu. „Við hugsum okkur alla­vega tvisvar um áður en við förum aftur til Tenerife,“ segir fjöl­skyldu­fað­ir­inn Tómas Freyr Krist­jáns­son.

„Já, þetta hefur verið aðeins öðru­vísi en áætlað var,“ segir Tómas Freyr þegar hann er spurður um upp­lifun fjöl­skyld­unnar í frí­inu. „Þetta frí hafði verið lengi í bígerð. Ég hafði lofað kon­unni minni, Guðrúnu Jónu Jós­eps­dóttur, fríi erlendis þegar hún væri búin að eign­ast þriðja barnið okkar, sem fædd­ist í sept­em­ber á síð­asta ári. Þá pönt­uðum við ferð út 3. jan­úar í ár. Það setti hins vegar strik í reikn­ing­inn að í júlí á síð­asta ári veikt­ist systir hennar, Berglind Rósa Jós­eps­dóttir, sem var mjög náin okkur, af krabba­meini og féll svo frá 33 ára gömul þann 30. des­em­ber. Eðlilega hættum við þá við ferð­ina sem við vorum búin að bóka en eftir jarð­ar­för­ina ákváðum við að kúpla okkur aðeins út og ákváðum að fara í ferð til Tenerife frá 4. til 18. febr­úar.“

Kúla á stærð við tennisbolta í maganum

Ferðin byrj­aði vel og allt lék í lyndi en fljót­lega fór að síga á ógæfu­hlið­ina.
„Við áttum hérna ágæta sex daga,“ útskýrir Tómas. „Þangað til að ég veikt­ist skyndi­lega, fór að fá hita og verk í mag­ann en vissi ekk­ert hvað var að. Aðfara­nótt þriðju­dags­ins 11. febr­úar var ég orð­inn við­þols­laus þannig að það var kall­aður til læknir sem kom og kíkti á mig og grun­aði að um botn­langa­kast væri að ræða. Ég var fluttur með sjúkra­bíl á spít­ala í Los Cristianos, þar sem við vorum og var kom­inn í aðgerð klukkan þrjú á þriðju­deg­inum.“

Veik­indin reynd­ust ekki stafa frá botn­lang­anum heldur var um að ræða sjúk­dóm­inn Meckel’s diverticulum, sekk­sjúk­dóm í dig­ur­girni, sem ekki er mjög algengur. Aðgerðin gekk mjög vel og Tómas var útskrif­aður laug­ar­dag­inn 15. febr­úar. Hann við­ur­kennir að sér hafi ekki lit­ist á blik­una þegar hann heyrði sjúk­dóms­grein­ing­una.

„Eftir að ég fór í skanna á sjúkra­hús­inu var mér sagt að það væri kúla á stærð við tenn­is­bolta í mag­anum á mér,“ segir hann. „Manni er krabba­mein nátt­úr­lega ofar­lega í huga og ég ótt­að­ist það versta. En sem betur fer reynd­ist sá ótti ástæðu­laus, kúlan var bara skorin burt og ég var útskrif­aður á eðli­legum tíma og fór aftur á hót­elið. Ég mátti samt lítið gera og var hálf­gerð byrði á fjöl­skyld­unni og eig­in­lega búinn að eyði­leggja fríið.“

Fimm mánaða barnið flutt í forgangi á spítala

Ekki var þó hörm­ungum fjöl­skyld­unnar lokið við útskrift fjöl­skyldu­föð­ur­ins, þær voru rétt að byrja.
„Á sunnu­dags­morgn­inum, 16. febr­úar, veik­ist litli fimm mán­aða sonur okkar, Breki Berg, heift­ar­lega,“ heldur Tómas sög­unni áfram. „Við fórum með hann á spít­al­ann í Los Cristianos þar sem hann var strax lagður inn og síðan fluttur með for­gangi dag­inn eftir á barna­spít­al­ann í Santa Cruz og konan mín fór auð­vitað með. Þar kom í ljós að hann var kom­inn með RS-vírus og var settur í önd­un­ar­grímu til að hjálpa honum að anda. Þetta voru mjög krefj­andi aðstæður, konan mín fór ein með hann því ég mátti ekki fara með og þar fyrir utan vorum við auð­vitað með hin börnin okkar tvö sem eru sex og fjórtán ára þannig að ég þurfti að sjá um þau. Við náðum reyndar að leigja okkur bíl og heim­sækja þann litla og mömmu hans tvisvar í Santa Cruz.“

Ógöngum fjöl­skyld­unnar var þó engan veg­inn lokið því í ljós kom að ítalski lækn­ir­inn sem greind­ist með kór­óna­veiru-smit var á sama spít­ala og Breki litli.

Lestu við­talið í heild sinni í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð