Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

„Ég hugsa að ég væri dáinn ef Árný væri ekki með“

Daði Freyr Pét­urs­son kom, sá og sigr­aði í annað sinn sem hann og Gagna­magnið tóku þátt í Söngvakeppn­inni, með lagið Think About Things. Það er samið til 10 mán­aða gam­allar dóttur hans og eig­in­konu hans, Árnýjar Fjólu Ásmunds­dóttur. Lagið hefur fengið mikla athygli erlendis og segir Daði hana vel­komna, þótt áreitið sé gríð­ar­lega mikið nú í aðdrag­anda Eurovision-keppn­innar í Rott­er­dam í Hollandi. Hann seg­ist ætla að nýta tæki­færið til fulln­ustu, enda ekki sjálf­gefið að fá slíkt tæki­færi.

„Ég hugsa að ég væri dáinn ef Árný væri ekki með“
„Já

Þegar við­talið fer fram er lagið efst í veð­bönkum um sigur í Eurovision og segir hann þá stöðu ótrú­lega. „Að vera efstur er spark í rass­inn og gefur manni von um að það sé mögu­leiki að vinna, en við búumst ekki við að vinna,“ segir Daði. „En við ætlum að reyna það,“ botnar Árný.

Er athyglin og áreitið mikið erlendis frá?

„Rosalega mikið,“ segja hjónin bæði í kór. „Bæði frá Eurovision-heim­inum og öðrum, það eru ótrú­lega mörg tæki­færi í boði sem ég þarf að fara yfir með Árna Hrafni umboðs­manni mínum.“

Er athyglin stressandi?

„Já, hún er það, en ég hef ekki svo miklar áhyggjur af keppn­inni. Ég held að við munum alveg ná að skila okkar atriði vel, en það fylgir þessu alls konar athygli sem er ekki jákvæð. Þegar maður lendir í öðru sæti er athyglin bara jákvæð, núna fær maður alls konar gagn­rýni og skila­boð frá fólki sem hélt með öðrum í keppn­inni,“ segir Daði.

„Þetta eru ekki bara Íslend­ingar, heldur erlendir miðlar líka,“ segir Árný.

Daði kinkar kolli og segir: „Ég tek erlendu gagn­rýn­ina ekki inn á mig. Mér finnst hins vegar leið­in­legt að sjá Íslend­inga halda því fram að á RÚV hafi greini­lega verið búið að ákveða fyrir fram að við færum áfram, að þetta væri bara eitt­hvað svindl, þegar sann­leik­ur­inn er sá að við tókum bara þátt eins og aðrir kepp­endur. Það var leið­in­legt að sjá fólki finn­ast við ekki eiga þetta skilið því ég gaf mig allan í þetta.“

Þau segja að þess vegna hafi verið gott þegar nið­ur­stöður úr síma­kosn­ing­unni sýndu svart á hvítu að þau unnu afger­andi sigur í keppn­inni.

Sjá einnig: Eiga 10 ára sleikaf­mæli í sumar: „Árný varð bara allt í einu svona geggjað skotin í mér“

Allar Eurovision-klisjurnar í einu lagi

Think About Things er eftir Daða, lag og texti, atriðið og útfærsla þess. „Ég vissi ekki nákvæm­lega dans­sporin og sú hug­mynd að vera með tvo hljóð­nema á standi kom svo­lítið seint, en ég vissi alltaf að ég vildi vera með ákveð­inn dans þannig að lagið þurfti að vera „upbeat“. Ég vildi vera með dramat­ískan kafla í byrjun þannig að ef þú hefur aldrei heyrt eða séð lagið áður færðu á til­finn­ing­una að ein­hver kraft­ball­aða sé að fara að byrja. Svo vildi ég kynna inn með­limi Gagna­magns­ins, þannig að þetta byrjar á hljóm­borð­inu, fer yfir í bass­ann, síðan koma tromm­urnar inn og svo stelp­urnar síð­ast, áður en ég kem inn,“ segir Daði. „Og ég vissi að ég vildi hafa annan dramat­ískan kafla þar sem vind­vélin kemur inn. Kaflann þar sem við horfum í mynda­vél­arnar samdi ég út frá því að vera með skýr skil í lag­inu, og svo upp­hækk­unin af því að þetta er Eurovision. Bara allt sem við vitum að hefur virkað í Eurovision, við settum það inn.“

„Reyndum að vera með allar Eurovision-klisjurnar og troða þeim inn í eitt atriði. Enda lagið samið fyrir Eurovision,“ segir Árný.

Mannlíf kom út í dag

„Já, þakka þér fyrir, það finnst mér líka, lagið er samið svo­leiðis,“ segir Daði þegar blaða­maður segir að honum finn­ist lagið betra á ensku. „Enska útgáfan er alvöru­lagið og útgáfan sem ég vildi að væri spiluð. Ég tók upp demó af texta sem sam­an­stóð bara af „random“ orðum og það var lengi planið að hafa hann þannig,“ segir Daði og brestur í söng: „Skóhorn, rúllug­ard­ína.“ Og við bættum nöfn­unum okkar við hér og þar og eitt­hvað fleira, þetta voru bara orð af handa­hófi.“

„Við vorum samt hrædd um að sá texti yrði of mikið grín og fólk myndi kannski taka honum illa. Eins og okkur væri ekki alvara með þessu, sem okkur var og vildum nátt­úr­lega kom­ast áfram,“ segir Árný.

„Þetta er allt hug­ar­heimur Daða, líka mynd­bandið, sögu­þráð­ur­inn í því og öll útsetn­ing,“ segir Árný.

„Já, ég hef pælt mjög mikið í þessu. Árný var ekki alltaf jafn­spennt þegar ég var að tala um Eurovision, ég hef varla talað um annað í heilt ár,“ bætir Daði við.

„Það hafa komið tíma­bil þar sem þetta var mjög þreytt,“ segir Árný og þau brosa bæði. „Hann hugsar svo mikið um þetta að hann gleymir að borða og sofa.“

„Ég hugsa að ég væri dáinn ef Árný væri ekki með.“

„Reyndum að vera með allar Eurovision-klisjurnar og troða þeim inn í eitt atriði. Enda lagið samið fyrir Eurovision,“ segir Árný. Mynd / Hallur Karlsson

Lestu við­talið við Árný og Daða í heild sinni í Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag