Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eiga 10 ára sleikafmæli í sumar: „Árný varð bara allt í einu svona geggjað skotin í mér“

Daði Freyr Pét­urs­son kom, sá og sigr­aði í annað sinn sem hann og Gagna­magnið tóku þátt í Söngvakeppn­inni, með lagið Think About Things. Það er samið til 10 mán­aða gam­allar dóttur hans og eig­in­konu hans, Árnýjar Fjólu Ásmunds­dóttur. Lagið hefur fengið mikla athygli erlendis og segir Daði hana vel­komna, þótt áreitið sé gríð­ar­lega mikið nú í aðdrag­anda Eurovision-keppn­innar í Rott­er­dam í Hollandi. Hann seg­ist ætla að nýta tæki­færið til fulln­ustu, enda ekki sjálf­gefið að fá slíkt tæki­færi.

Eiga 10 ára sleikafmæli í sumar: „Árný varð bara allt í einu svona geggjað skotin í mér“
Árný Fjóla Ásmunds­dóttir og Daði Freyr Pét­urs­son Mynd / Hallur Karlsson

Hjónin kynnt­ust árið 2009 í söng­leik í Fjöl­brauta­skóla Suð­ur­lands, þar lék Árný og Daði spil­aði á bassa. „Við byrj­uðum ekki saman fyrr en í lok 2010,“ segir Daði. „Það leið alveg tími frá því að við kynnt­umst þar til við urðum vinir og svo óvart urðum við kærustupar,“ segir Árný.

„Já, það var alveg óvart,“ segir Daði.

Aðspurð um hvort þetta hafi þá ekki verið ást við fyrstu sýn svara þau bæði neit­andi. En hvað varð svo til að ástin kvikn­aði? „Árný varð bara allt í einu svona geggjað skotin í mér,“ segir Daði.

„Nei, það var öfugt,“ segir Árný.

„Nei, það var öfugt,“ segir Daði, „þú varst geð­veikt skotin í mér.“

„Ég alla vega kyssti þig fyrst á Hró­arskeldu 2010,“ botnar Árný.

Þannig að þið þurftuð að skipta um umhverfi til að verða skotin? „Já, við urðum að fara til útlanda, við eigum sem sagt tíu ára sleikaf­mæli í sumar,“ segir Árný. „Við ætl­uðum að fara á Hró­arskeldu til að fagna því, en það verður lík­lega ekki,“ bætir Daði við. „En samt, Hatari fékk boð um að spila á Hró­arskeldu í fyrra og ég veit ekki hvort búið er að fylla upp í slottið. Ég væri alveg til í að spila þar, ég kannski hringi eitt­hvert.“

For­eldrar beggja búa fyrir austan. „Ég er eig­in­lega fædd og upp­alin úti í fjósi á Skeið­unum, sem sagt Skeiða- og Gnúp­verja­hreppi og hef verið þar nán­ast alla mína tíð og fjöl­skylda mömmu í nokkra ætt­liði, ég veit ekk­ert betra en sveit­ina,“ segir Árný.

Sjá einnig: „Ég hugsa að ég væri dáinn ef Árný væri ekki með“

Árið 2014 flutti parið til Berlínar í Þýska­landi þar sem Daði fór í nám við DBS Musik í upp­töku- og tón­list­ar­gerð. „Ég var að klára námið þegar við vorum í keppn­inni 2017 og hafði eig­in­lega engan tíma til að taka þátt. Við bjugg­ust bara eig­in­lega ekki við því að kom­ast áfram. Við vorum ekki til­búin þá en erum miklu betur und­ir­búin núna.“

Fjöl­skyldan unir hag sínum vel í Berlín, er nýflutt í íbúð í 100 ára gömlu húsi, sem Daði segir nýja íbúð fyrir þeim og stað sem þau sjá fyrir sér að búa í í góðan tíma. „Það væri draum­ur­inn að eiga íbúð á báðum stöðum. En svo borgar sig ekki að fljúga mikið á milli fyrir kolefn­is­fótsporin en við erum á fullu við að gróð­ur­setja tré.“

Daði er með eitt her­bergi á heim­il­inu fyrir stúdíó. Árný býður upp á íslenska leið­sögn um Berlín, og er í fjar­námi í mann­fræði við Háskóla Íslands, þar sem hún er að skrifa loka­rit­gerð sína, um Eurovision, nema hvað. „Ég skoða þar hvernig þjóðir birta sína ímynd í gegnum keppn­ina, hvað þær vilja standa fyrir á sviði og hvernig fólk kýs að túlka landið sitt.“

Þau segja ódýr­ara að leigja, lifa og búa í Berlín en hér heima, þótt það sé svo­lítið skrýtið að búa erlendis og það í stór­borg. Þau segja að þó að stór­fjöl­skyld­unnar njóti ekki við ytra, eigi þau fjöl­skyldu í íslenskum vinum sínum í Berlín. „Við eigum marga góða vini og flesta Íslend­inga, enda búa mjög margir Íslend­ingar í Berlín, við þekkjum bara brot af þeim þó að okkur finn­ist við þekkja mjög marga hér,“ segir Daði.

„Við erum dug­leg að koma heim og þá er ég bara í sveit­inni og næ að jarð­tengja mig. Stefnan er að flytja ein­hvern tíma heim, kannski þegar dóttir okkar byrjar í skóla en við erum ekki farin að huga að því enn þá, það eru fimm ár í það alla vega,“ segir Árný.

Hvernig er að búa saman og vinna saman? „Við höf -um búið saman síðan við byrj­uðum saman, síð­ustu tíu ár bara,“ segir Árný og hlær. „Við erum mjög mikið saman, það er bara fínt og okkur kemur mjög vel saman. Það munar alveg um það að við kunnum að tala hvort við annað og tölum bara manna­mál,“ segir Daði.

„Við reynum að leysa deilu­mál hratt og auð­veld­lega, það kemur alveg þreyta, en þá reynum við að breyta til. Mér finnst til dæmis gott að vera ein og hleð batt – eríin best í sveit­inni,“ segir Árný. Daði seg­ist aftur á móti fá aukna orku úr því að fara út og hitta fólk, enda oft­ast einn í stúd­íó­inu. Þegar þau eru spurð um áhuga­mál fyrir utan tón­list – ina seg­ist Árný hafa áhuga á mat­ar­gerð og Daði spilar í Nintendo.

„Þú ert líka mikið á YouTube. Þú ert eig­in­lega algjört nörd,“ segir Árný. „Nei, ég myndi frekar segja að ég sé lúði en nörd. Nörd muna alls konar, eru í tölum og landa­fræði og slíku, ég er meira í því að hafa áhuga á nör­da­legum hlutum en ég myndi ekki kalla mig nörd, þar sem ég er ekki nógu snjall.“

Hvernig er verka­skipt­ingin á heim­il­inu? „Já, komdu með það,“ segir Árný og hlær. „Nei, kom þú með það,“ segir Daði á móti.

„Daði er með helstu inn­kom­una fjár­hags­lega þannig að heima er hann í vinn­unni. Ég sé meira um heim­il­is­störfin og elda, enda hef ég áhuga á því. Á morgn -ana skipt­umst við á að vakna með dóttur okkar og hitt fær að sofa aðeins lengur. Hvorugt okkar þarf að mæta neitt á ákveðnum tíma, nema þegar ég er með leið­sögn,“ segir Árný.

Mannlíf kom út í dag

Lestu við­talið við Árný og Daða í heild sinni í Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi