Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna Margrét á batavegi eftir baráttu við COVID-19: „Fyrsti góði dagurinn“

Anna Margrét á batavegi eftir baráttu við COVID-19: „Fyrsti góði dagurinn“
Anna Margrét Jóns­dóttir. Mynd / Aðsend

Anna Margrét Jóns­dóttir athafna­kona og ferða­mála­fröm­uður sem greind­ist á dög­unum með COVID-19 er loks farin að bragg­ast eftir sextán daga veik­indi og ein­angrun. Hún seg­ist þó enn vera nokkuð veik­burða og hvetur almenn­ing til að fara að fyr­ir­mælum heil­brigð­is­yf­ir­valda.

„Nú er ég búin að vera inni­lokuð í sextán daga og þetta er fyrsti góði dag­ur­innn. Fyrsti dag­ur­inn sem ég vakna ekki á morgn­ana hóstandi úr mér slími, sem ég hósta hrein­lega ekki úr mér lungun. Ég er loks­ins farin að sjá fyrir end­ann á þessu, þótt ég sé ekki komin með bragð­skynið aftur og enn frekar slöpp,“ segir Anna Margrét, sem greind­ist með COVID-19 veiruna í síð­ustu viku og er nú loks farin að skríða saman eftir að hafa veikst heift­ar­lega.

Eins og kunn­ugt er birti Anna Margrét stöðu­upp­færslu á Facebook síð­asta mið­viku­dags­kvöld þar sem hún sagði frá veik­indum sínum. Í kjöl­farið greindi hún frá því í fjöl­miðlum að hún og eig­in­maður hennar, Árni Harð­ar­son aðstoð­ar­for­stjóri Alvogen, hefðu smit­ast af veirunni þegar þau voru með vinum sínum á skíða­ferða­lagi í Selva á ítalíu. Hún segir að svo virð­ist sem aðstæður á svæð­inu, meðal ann­ars skíða­kláfar þar sem fólk var í miklu návígi hvert við annað, hafi verið kjörað­stæður fyrir veiruna því átta af tíu í hópnum hafi greinst með veiruna eftir heim­komu.

„Fyrsti dag­ur­inn sem ég vakna ekki á morgn­ana hóstandi úr mér slími, sem ég hósta hrein­lega ekki úr mér lungun“

Lá sárlasin og var alveg að drepast

Anna Margrét segir að þetta hafi byrjað sem væg flensa, háls­bólga og kvef. Í ljósi umræð­unnar um COVID-19 hafi hún ákveðið að leita til heilsu­gæsl­unnar á Sel­tjarn­ar­nesi, þar sem sýni var tekið og að kvöldi sama dags hafi hún fengið sím­tal frá Má Krist­jáns­syni yfir­lækni smit­sjúk­dóma á Land­spít­al­anum, sem greindi henni frá því að hún væri með veiruna. Við tóku margra daga veik­indi sem náðu að hennar sögn hámarki á tíunda degi.

„Þá lá ég og var ógeð­lega lasin, bara að drep­ast,“ segir hún og getur þess að bæði eig­in­mað­ur­inn og sonur þeirra hjóna, sem smit­að­ist af for­eldrum sínum, hafi farið mun betur út úr veik­ind­unum en hún. Sömu sögu sé að segja um vina­hjón þeirra, sem veikt­ust líka í frí­inu. Eig­in­konan hafi veikst mikið, en eig­in­mað­ur­inn ekki og heldur ekki sonur þeirra. Því sé ljóst að veikin leggst mis­jafn­lega á fólk.

Fer í próf á föstudag

Spurð hvernig heim­il­is­lífið sé eig­in­lega búið að vera þessa 16 daga segir hún eig­in­mann­inn og son­inn hafa reynst sér vel í veik­ind­unum. Sömu­leiðis heil­brigð­is­starfs­fólk sem hún getur ekki dásamað nóg, og vini og ætt­ingja, þar á meðal dóttur þeirra, sem hafa stokkið til og keypt mat og aðra nauð­synja­vöru handa fjöl­skyld­unni á meðan hún þurfti að vera í ein­angrun.

Hvað reiknar þú með að þurfa að vera marga daga til við­bótar heima hjá þér?

„Við förum í test á fimmtu­dag til að athuga hvort við erum laus við veiruna og fáum úr því skorið á föstu­dag,“ svarar Anna Margrét. „Vonandi reyn­ist svo vera því þá get ég farið að send­ast fyrir hina sem eru í sótt­kví, það er alveg á hreinu.“

„Maður vill ekki að einhver sem er veikur fyrir fái þetta“

Anna Margrét brýnir fyrir almenn­ingi að fara að fyr­ir­mælum heil­brigð­is­starfs­fólks í þessum efnum. „Það er mik­il­vægt að þeir sem veikj­ast sýni þol­in­mæði og fari eftir settum reglum. Ég á til dæmis for­eldra og aðra ást­vini sem ég myndi aldrei vilja smita og þess vegna gætti ég að því að fara eftir því í einu og öllu sem þetta frá­bæra fólk í fram­varða­línu heil­brigð­is­kerf­is­ins hefur ráð­lagt fólki að gera. Maður vill ekki að ein­hver sem er veikur fyrir fái þetta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi