Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Biskup hafnar kröfum séra Skírnis

Biskup hafnar kröfum séra Skírnis

Agnes Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, hefur hafnað kröfum séra Skírnis Garð­ars­sonar um að bisk­upinn dragi yfir­lýs­ingar sínar til baka hvað varðar þjón­ustu­lok prests­ins og að honum verði heim­ilað að snúa aftur í emb­ætti sitt fyrir kirkj­una. Kröf­urnar voru lagðar fram af Sigurði Kára Krist­jáns­syni, lög­manni Skírnis, sem stað­festir að höfnun Agnesar hafi borist í dag.

„Biskup hefur hafnað okkar kröfum og nú verða næstu skref tekin. Mér finnst lík­legt að málið fari þennan far­veg eins og lagt var upp með,“ segir Sigurður Kári. Skjól­stæð­ingur hans íhugar nú mjög alvar­lega að fara í mál við kirkj­una og biskup líkt og hann hafði boðað í sam­tali við Mannlíf. Þar mun hann krefj­ast bæði miska- og skaða­bóta.

Sigurður Kári Krist­jáns­son

„Ég hef falið lög­mönnum að sækja rétt minn gagn­vart bisk­upi,“ sagði Skírnir sem var rek­inn úr emb­ætti hér­aðs­prests á Suð­ur­landi. Hann seg­ist ekki vilja tjá sig frekar um brott­rekstur sinn en hann hefur verið gerður útlægur frá Þjóð­kirkj­unni og má ekki vinna nein prests­verk í hennar nafni.

Sjá meira hér: Prestur sækir rétt sinn gagn­vart bisk­upi Íslands

Biskup hafði viku til að svara séra Skírni en tók sér rúmar tvær til þess. Agnes stað­festi þjón­ustu­lok prests­ins fyrir kirkj­una í yfir­lýs­ingu og sagði þar ástæð­una vera brot á trún­að­ar­skyldu. Hún sagði það einnig mis­skiln­ing í fjöl­miðlaum­fjöllun að prest­ur­inn hafi verið rek­inn því rétt­indi séra Skírnis verði að öllu virt sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ingi. Sigurður Kári segir hins vegar um aug­ljósan brott­rekstur að ræða.

Sjá hér: Augljós brott­rekstur

Þrátt fyrir til­raunir Mannlífs þá hefur Agnes end­ur­tekið neitað við­tali og vísað ein­göngu í áður­nefnda yfir­lýs­ingu sína. Þá sömu yfir­lýs­ingu og kraf­ist var að hún dragi til baka. Séra Skírnir er í veik­inda­leyfi og vill ekki láta hafa neitt eftir sér um stöðu mála, annað en stað­fest­ingu þess efnis að ætla nú að sækja rétt sinn gagn­vart Agnesi biskup.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð