Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Prestur sækir rétt sinn gagnvart biskupi Íslands

Prestur sækir rétt sinn gagnvart biskupi Íslands
Séra Skírnir Garð­ars­son.

„Ég hef falið lög­mönnum að sækja rétt minn gagn­vart bisk­upi,“ segir séra Skírnir Garð­ars­son, sem nýverið var rek­inn úr emb­ætti hér­aðs­prests á Suð­ur­landi. Hann seg­ist ekki vilja tjá sig frekar um brott­rekstur sinn en hann hefur verið gerður útlægur frá Þjóð­kirkj­unni og má ekki vinna nein prests­verk í hennar nafni.

Agnesi Sig­urð­ar­dóttur, bisk­upi Íslands, hefur verið sent bréf frá lög­manni séra Skírnis, Sigurði Kára Krist­jáns­syni hæstar­rétt­ar­lög­manni, þar sem þess er kraf­ist að bisk­upinn dragi yfir­lýs­ingar sínar til baka hvað varðar þjón­ustu­lok prests­ins og að honum verði heim­ilað að snúa aftur í emb­ætti sitt fyrir kirkj­una. Biskup hefur viku til að svara séra Skírni sem mun fara fram á miska- og skaða­bætur frá kirkj­unni verði ekki orðið við kröf­unum.

Ekki rekinn, segir biskup

Agnes stað­festi þjón­ustu­lok prests­ins fyrir kirkj­una í nýlegri yfir­lýs­ingu og segir þar ástæð­una vera brot á trún­að­ar­skyldu. Hún segir það hins vegar mis­skiln­ing í fjöl­miðlaum­fjöllun að prest­ur­inn hafi verið rek­inn því rétt­indi séra Skírnis verði að öllu virt sam­kvæmt ráðn­ing­ar­samn­ingi. Þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir Mannlífs þá neitar Agnes við­tali og vísar í áður­nefnda yfir­lýs­ingu sína. Þá sömu yfir­lýs­ingu og nú er kraf­ist að hún dragi til baka. Séra Skírnir er í veik­inda­leyfi þessa dag­ana og vill ekki láta hafa neitt eftir sér um stöðu mála, annað en stað­fest­ingu þess efnis að ætla nú að sækja rétt sinn gagn­vart Agnesi biskup.

Í annað sinn

Líkt og Mannlíf hefur áður greint frá er þetta í annað sinn sem séra Skírnir hrökkl­ast úr emb­ætti sínu fyrir Bisk­ups­stofu en í báðum til­vikum hafnar Agnes því að hafa rekið hann. Hvorki nú sem hér­aðs­prest né áður sem sókn­ar­prest í Lága­fells­sókn. Í við­tali við Stundina á sínum tíma full­yrti séra Skírnir hins vegar að biskup hafi sett honum afar­kosti, ann­að­hvort yrði hann fluttur eða rek­inn. „Biskup setti mér þá kosti að skrifa undir eða að ég yrði færður til með handafli. Eftir nokkra fundi skrif­aði ég nauð­ugur undir. En ég var bug­aður og lét undan ítrek­uðum þrýst­ingi, sím­tölum og tölvu­póstum frá Bisk­ups­stofu. Það var svo harka­lega að þessu staðið að ég fékk ekki einu sinni að kveðja söfnuð minn,“ sagði Skírnir við Stundina árið 2018. Í yfir­lýs­ingu bisk­ups segir Agnes þetta vera mis­skiln­ing og segir prest­inn hafa sjálfan óskað eftir flutn­ingi í starfi.

Engin svör

Samkvæmt lögum má ekki reka prest nema að und­an­geng­inni skrif­legri áminn­ingu. Það var ekki gert í til­felli séra Skírnis en biskup hefur talið það óþarfa þar sem ekki væri verið að reka prest­inn. Mannlíf hefur ítrekað óskað svara hjá Bisk­ups­stofu og spurt þar meðal ann­ars hvort ekki hafi komið til greina að fram­lengja and­mæla­frest séra Skírnis í ljósi þess að prest­ur­inn væri í veik­inda­leyfi. Biskup hefur engu svarað og þar liggja nokkrar ósvar­aðar spurn­ingar sem bíða svara.

Agnes Sig­urð­ar­dóttur, biskup Íslands

Spurn­ingar Mannlífs til Agnesar Sig­urð­ar­dóttur, bisk­ups Íslands:

1) Gildir ekki lengur um presta það ákvæði laga um opin­bera starfs­menn sem veitir þeim rétt til and­mæla, og skrif­legrar áminn­ingar áður en til upp­sagnar kemur?

Sjá grein 21: https://www.althingi.is/lagas/150a/1996070.html

2) Ef þið teljið ákvæðið enn gilda um presta, hvers vegna var Skírni Garð­ars­syni ekki veitt skrif­leg áminn­ing í þessu til­viki?

3) Kom ekki til greina af hálfu Bisk­ups­stofu að fresta and­mæla­rétti Skírnis Garð­ars­sonar og ákvörðun ykkar fram yfir það tíma­bil sem við­kom­andi hafði sýnt fram á veik­indi sín?

4) Hvernig ætlið þið að mæta kröfum séra Skírnis Garð­ars­sonar sem nú hafa verið sendar Bisk­ups­stofu?

Sagt hefur verið frá því að tölvu­póstum séra Skírnis Garð­ars­sonar hafi verið lekið til Bisk­ups­stofu er hann starf­aði sem sókn­ar­prestur í Lága­fells­sókn. Eftir því sem Mannlíf kemst næst úrskurð­aði nefnd innan Þjóð­kirkj­unnar í þá veru að brotið hafi verið gegn Skírni og í úrskurði Per­sónu­verndar frá 24.10.2017 er það einnig stað­fest að áfram­send­ing tölvu­pósta Skírnis hafi verið ólög­mæt.

5) Ætlar biskup að beita sér gagn­vart því að brotið hafi verið á séra Skírni Garð­ars­syni er hann starf­aði sem sókn­ar­prestur í Lága­fells­sókn, eins og úrskurð­irnir sýna?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina