Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Íslendinganna sárt saknað

Íslendinganna sárt saknað
Mynd / EPA

Margar íslenskar fjöl­skyldur sitja í sárum á Tenerife eftir að allir íslenskir ferða­menn voru reknir af eyj­unni í síð­asta mán­uði. Fjöl­skyld­urnar hafa lífs­við­ur­væri sitt af þjón­ustu við Íslend­inga og bíða spenntar eftir því að þeir fari að streyma aftur til þessa vin­sæla við­komu­staðar þjóð­ar­innar.

Föstu­dag­inn 20. mars fór síð­asta vélin með íslenska ferða­langa frá Tenerife til Íslands en þá viku höfðu íslensku ferða­skrif­stof­urnar skipu­lagt nokkrar neyð­ar­flug­ferðir frá eyj­unni spænsku í sam­ráði við Neyt­enda­stofu og íslensk ferða­mála­yf­ir­völd. Spænsk yfir­völd höfðu þá fyr­ir­skipað brott­flutn­ing allra ferða­manna frá Tenerife og í kjöl­farið lokað fyrir flug með ferða­menn til eyj­unnar. Nærri 400 þús­und erlendir ferða­menn þurftu því að stytta dvöl sína og halda til síns heima. Útgöngu­bann var síðan sett á og þeir fjöl­mörgu Íslend­ingar sem búa á Tenerife eru inni­lok­aðir heima hjá sér og bíða spenntir eftir að bann­inu ljúki. Þeir bíða þó ekki síður spenntir eftir því að íslenskir ferða­menn fjöl­menni aftur til eyj­unnar blóm­legu.

Óvíst með framhaldið

Enn sem komið er hafa íslensku ferða­skrif­stof­urnar ekki fellt niður flug­á­ætlun sum­ars­ins til Tenerife en plönuð eru nokkrar ferðir í viku í allt sumar. Þráinn Vig­fús­son, fram­kvæmda­stjóri ferða­skrif­stof­unnar Vita, segir öryggi far­þeg­anna ávallt haft í fyr­ir­rúmi og er sann­færður um að Íslend­ingar muni aftur flykkj­ast til eyj­unnar. „Varðandi þró­un­ina í sumar munum við bíða og sjá hvernig dregið verður úr tak­mörk­unum bæði hér­lendis og erlendis. Við lögum okkur að ástand­inu og fellum niður þær ferðir sem ekki er raun­hæft að hafa í sölu. Við höfum ávallt öryggi okkar far­þega í fyr­ir­rúmi og bjóðum öllum okkar far­þegum að end­ur­bóka og breyta bók­unum sínum án kostn­aðar,“ segir Þráinn.

„Það hefur gengið ágæt­lega að bóka vet­ur­inn á Tenerife og er nú þegar t.d. upp­selt í jóla- og ára­móta­ferð­ina okkar. Ég held að þegar ástandið lag­ast og fólk geti farið að ferð­ast aftur verði komin nokkur upp­söfnuð þörf hjá fólki að kom­ast í sól og hita. Þannig að við erum bjart­sýn á fram­tíð­ina og að ferða­lög verði áfram eitt­hvað sem fólk lætur eftir sér.“

Tómas Gestsson, fram­kvæmda­stjóri Heims­ferða, segir ferða­skrif­stof­una í start­hol­unum og beðið sé í ofvæni eftir að hægt verði að hefja flug til Tenerife á nýjan leik. „Við erum í raun að bíða eftir við­brögðum stjórn­valda. Upp­haf­lega vorum við að íhuga að byrja í maí, en það mjög ósenni­legt að það verði. Núna virð­ist staðan hér­lendis að vera batna mjög mikið, þannig að við erum enn þá að líta til sum­ars­ins en bíðum átekta. Þetta veltur ekki síður á því hvernig hlut­irnir þró­ast á Spáni á næstu dögum og vikum,“ segir Tómas.

Veit ekki hvað tekur við

Jóhann K. Krist­jáns­son hefur rekið hjóla­leigu og skoð­un­ar­ferða­fyr­ir­tæki á Tenerife og heldur úti vef­síð­unni www.toursandbikes.com

„Ef ég á að vera hrein­skil­inn þá veit ég bara ekki hvað tekur við. Það verður alveg fer­lega súrt ef land­inn kemur ekk­ert til okkar því það mun klár­lega ekki hjálpa til,“ segir Jóhann K. Krist­jáns­son sem rekið hefur hjóla­leigu og skoð­un­ar­ferða­fyr­ir­tæki á Tenerife frá því sum­arið 2018.
Jóhann hefur fram til þessa treyst mikið á við­skipti við íslenska ferða­menn og saknar þeirra mjög. Það sem gæti hjálpað til á árinu, að mati Jóhanns, er nýleg þjón­usta fyr­ir­tæk­is­ins við að selja miða í ýmsa afþr­ey­ingu og mik­ill vöxtur hefur verið þar, að hans sögn. „Kúnna­hóp­ur­inn er sífellt að stækka hjá okkur og það er jákvætt að hluti við­skipta­vin­anna eru erlendir ferða­menn. Núna er staðan bara þannig að maður þarf að hafa fyr­ir­tækið lokað og fram­haldið er mjög óljóst. Það er alveg óhætt að segja að við söknum Íslend­ing­anna,“ segir Jóhann.

„Við reynum að sjá þetta þannig fyrir okkur að þetta sé ekki búið spil.“

Aðspurður von­ast hann til að kom­ast með fjöl­skyld­una til Íslands sem fyrst og ferð­ast inn­an­lands í sumar.
„Við reynum að sjá þetta þannig fyrir okkur að þetta sé ekki búið spil. Fjár­fest­ingin er svo sann­ar­lega gíf­ur­leg og maður er ekki til­bú­inn til þess að kasta því bara frá sér án þess að þrjóskast eitt­hvað við.“

Gæti tapað ævisparn­aðnum

Halla Birg­is­dóttir veit­inga­maður opn­aði veit­inga­stað­inn Bambú fyrir Íslend­inga á Tenerife síð­asta sumar.

„Þetta er auð­vitað mikið sjokk og rosa­lega erfitt and­lega. Ég er hrein­lega með allan ævisparn­að­inn undir og hef lagt allt mitt í þetta,“ segir Halla Birg­is­dóttir veit­inga­maður sem i síð­asta sumar opn­aði veit­inga­stað­inn Bambú fyrir Íslend­inga á Tenerife. Halla ótt­ast að fá til sín fáa sem enga Íslend­inga það sem eftir lifir árs­ins.

„Mér finnst hræði­legt að vera nýbúin að stofna fyr­ir­tæki og þetta er gríð­ar­leg fjár­fest­ing. Það hefur tekið mik­inn tíma og tekið mikið á að koma staðnum af stað. Ég var mjög sátt við við­tök­urnar og það var bjart fram undan. Síðan kom bara þessi skellur og óvissan er mjög óþægi­leg,“ segir Halla og ótt­ast að þurfa að fara aftur á byrj­un­ar­reit þegar ferða­þjón­ustan fer af stað á eyj­unni á nýjan leik.

„Ég mun aldrei skella í lás, upp­gjöf er ekki í boði og ég skal ekki horfa upp á bát­inn minn sökkva.“

„Ég sakna Íslend­ing­anna veru­lega mikið og mér hefur fund­ist ofboðs­lega gaman að vinna við þetta. Nú veit ég ekki hvort ég þurfi að byrja allt upp á nýtt við að koma staðnum á flug eða jafn­vel að finna upp alveg nýtt konsept fyrir annan kúnna­hóp. Við til­hugs­un­ina fæ ég hroll niður hrygg­inn en ég er engu að síður reynsl­unni rík­ari eftir þetta. Ég mun aldrei skella í lás, upp­gjöf er ekki í boði og ég skal ekki horfa upp á bát­inn minn sökkva.“

Snúa aftur með fyrsta flugi

Herdís Hrönn Árna­dóttir og Sævar Lúð­víks­son eru par og reka saman Íslend­inga­bar­inn Nostal­gíu á Tenerife.

Veit­inga­menn­irnir Herdís Hrönn Árna­dóttir og Sævar Lúð­víks­son reka Íslend­inga­bar­inn Nostal­gíu á Tenerife og hafa nú lokað staðnum í bili. Þau ætla að skella sér til Íslands við fyrsta tæki­færi og snúa aftur á bar­inn um leið og fyrstu Íslend­ing­arnir mæta.

„Við höfum það ágætt. Sumarið er róleg­asti tím­inn hjá okkur þannig að þetta kemur svo sem niður á skásta tím­anum upp á rekst­ur­inn. Ég er bjart­sýn­is­mann­eskja en ég sé ekki mögu­leika á að opna aftur fyrr en í fyrsta lagi í haust,“ segir Herdís Hrönn sem vonar að Íslend­ing­arnir hræð­ist ekki að sækja bar­ina þegar þeim verður aftur hleypt til Tenerife.

„Ég er bjart­sýn­is­mann­eskja en ég sé ekki mögu­leika á að opna aftur fyrr en í fyrsta lagi í haust.“

„Við vorum sem betur fer að klára okkar besta rekstr­arár og þökkum vel fyrir það. Fyrir vikið höfum við það mikið í bak­pok­anum að við náum að lifa þetta af. Það er fullt af föstum kostn­aði sem borga þarf. Við söknum Íslend­ing­anna mjög enda stærsti kúnna­hóp­ur­inn okkar og því er til­gangs­lítið að opna fyrr en þeir koma aftur. Óvissan um hvenær þeir koma er hins vegar erfið en það er alveg klárt að við ætlum ekk­ert að hætta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ