Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einkaviðtal við bakvörðinn: „Ég var meðhöndluð eins og stórglæpamaður“

Einkaviðtal við bakvörðinn: „Ég var meðhöndluð eins og stórglæpamaður“
Anna Aurora Waage. Mynd / Skjáskot af Twitter|Anna Aurora Waage. Mynd / Skjáskot af Twitter

„Ég lýsi algjör­lega yfir sak­leysi mínu. Það er bara verið að reyna koma á mig ein­hverri sök og drulla yfir mig,“ segir Anna Aurora Waage Ósk­ars­dóttir sem hand­tekin var í gær vegna ásak­ana um að hafa villt á sér heim­ildir og þjófnað sem bak­vörður á Hjúkr­un­ar­heim­il­inu Bergi í Bol­ung­ar­vík. Hún hefur ráðið sér lög­mann til að stefna Gylfa Ólafs­syni for­stjóra Heil­brigð­is­stofn­unar Vest­fjarða og lög­reglu­stjór­anum á Vest­fjörðum.

Anna Aurora full­yrðir að hún hafi ekk­ert að fela og að hún hafi frá upp­hafi sýnt fulla sam­vinnu. Hún seg­ist ekki hafa fengið það upp­gefið hvað átti að hafa horfið. „Þeir leit­uðu í öllu hjá mér og fundu ekki neitt. Síðan vildi lög­reglan meina það að ég væri að reyna að smita sjálfa mig og aðra af COVID. Ég hló bara,“ segir Anna Aurora.

„Þeir leit­uðu í öllu hjá mér og fundu ekki neitt. Síðan vildi lög­reglan meina það að ég væri að reyna að smita sjálfa mig og aðra af COVID. Ég hló bara.“

Í gær­kvöldi voru sýni sem tekin voru úr bak­varða­sveit­inni á Bergi flutt til Reykja­víkur og í morgun fékkst það stað­fest að öll sýnin voru nei­kvæð. Bak­verð­irnir geta því áfram sinnt heim­il­is­fólk­inu en grunur var um að Anna Aurora væri smituð.

Sjá einnig: Bak­vörð­ur­inn á lög­manns­stofu og starfar sem for­falla­kenn­ari

„Í morgun fékk ég stað­fest­ingu þess efnis að ég mæld­ist nei­kvæð. Eitthvað hlýt ég að hafa gert rétt í vinn­unni varð­andi hlífð­ar­fatnað og annað. Ég lærði allt saman áður, um hvernig ég ætti að verja mig og aðra. Það gerði ég í nám­inu og einnig var það rifjað upp núna áður en ég fór af stað. Ég fór algjör­lega eftir öllum leið­bein­ingum og kennslu,“ segir Anna Aurora og ítrekar að hún hafi lokið sjúkra­liða­námi erlendis. Alveg frá upp­hafi hafi hún gert grein fyrir menntun sinni og það einnig við yfir­menn á Bergi.

Sjá einnig: Falski bak­vörð­ur­inn á fram­boðs­lista í síð­ustu kosn­ingum – „Harm­leikur“ segir fyrr­ver­andi sam­starfs­maður

„Ég sagði allan tím­ann frá því að ég væri með erlent próf en ekki íslenskt, sem ætti eftir að meta. Úti er þetta sem sjúkra­liða­próf og síðan er ég líka með annað próf sem er ígildi háskóla­gráðu. Ég til­kynnti það strax á minni umsókn að ég væri með erlend próf og það voru allir með­vit­aðir um það enda til­kynnti ég það líka strax við kom­una vestur. Það gerði ég um leið og ég mætti og það stóð á öllum plöggum. Það var allt uppi á borðum frá upp­hafi, ég var alls ekk­ert að reyna að falsa neitt.“

Anna Aurora sat um tíma sem stjórn­ar­maður Fram­sókn­ar­fé­lags Mos­fells­bæjar og hefur verið virk í starfi flokks­ins. Sem bak­vörður fyrir vestan leggur hún ríka áherslu á að hún hafi aldrei verið ein á vakt og að þær vaktir sem hún sinnti hafi verið næt­ur­vaktir þar sem engin lyfja­gjöf fór fram. Þá seg­ist hún frá upp­hafi hafa sýnt lög­reglu sam­vinnu og boð­ist til að taka öll þau próf sem þyrfti.

Sjá einnig: Gátum ekki tekið neina áhættu varð­andi bak­vörð­inn

„Ég er aldrei ein á vakt og var aldrei að reyna að ganga í starf hjúkr­un­ar­fræð­ings og ég sagði þeim líka að ég væri ekk­ert til­búin í það. Ég var bara á næt­ur­vöktum þar sem ég sinnti almennri umönnun og bjöllu­kalli. Ég fer þarna í góðum til­gangi einum. Mér finnst það grafal­var­legt að gefa það í skyn að ég hafi verið að setja sjálfa mig, sam­starfs­fólk og sjúk­linga í hættu,“ segir Anna Aurora og er ekki par hrifin af fram­göngu Gylfa Ólafs­sonar og lög­regl­unnar í sinn garð. Enda ætli hún sér að stefna báðum aðilum.

„Það er mjög óábyrgt og ófag­legt af for­stjór­anum að tala með þessum hætti. Þetta er mjög alvar­legt og ég mun stefna honum ásamt lög­reglu­stjóra Ves­fjarða.  Ég var ekki að hugsa um sjálfan mig heldur sjúk­ling­ana. Annað væri mjög óeðli­legt. Að lenda svo í þessu er alveg skelfi­legt, þetta er eins og ein­hver lyga­saga.“

„Að lenda svo í þessu er alveg skelfi­legt, þetta er eins og ein­hver lyga­saga.“

Jón Bjarni Krist­jáns­son er lög­maður Önnu Auroru og sendi hann í morgun frá sér yfir­lýs­ingu þar sem ásak­anir á hendur henni eru sagðar fjar­stæðu­kenndar. Sjálf segir hún ljóst að mál­efni bak­varða­sveit­ar­innar hafi verið unnin í of miklum flýti. Sem dæmi þá hafi bak­vörð­unum ekki enn borist ráðn­ing­ar­samn­ingar vegna vinn­unnar.

Aðspurð um líð­an­ina eftir hand­tök­una seg­ist hún í algjöru sjokki. „Mér var mjög brugðið og hef bara aldrei lent í svona. Ég hef alltaf verið með hreina saka­skrá og aldrei verið hand­tekin. Þarna var ég með­höndluð eins og stór­glæpa­maður. Þeir voru ekki með neitt á mig enda bauðst ég til að gang­ast undir öll próf. Ég hef ekk­ert að fela,“ segir Anna Aurora.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina