Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ögurstund fram undan í ferðaþjónustu

Ögurstund fram undan í ferðaþjónustu
|Guðný Hjalta­dóttir

Stjórn­endur ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja hafa margir hverjir þegar afskrifað sum­arið. Flestir þeirra sem Mannlíf hefur rætt við þessa dag­ana segj­ast geta lifað af mánuð eða tvo, með aðstoð stjórn­valda, en að svo þyng­ist róð­ur­inn veru­lega. Þeir spá því sumir að fjöl­mörg fyr­ir­tæki gætu farið í þrot. Númer hafa verið tekin af rútum og sum­ar­starfs­fólki til­kynnt að krafta þess sé ekki þörf.

Þórir Garð­ar­son, stjórn­ar­for­maður Mynd / Aðsend

„Okkar áætlun gengur út á það að leggj­ast í híði,“ segir eig­andi lít­ils ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækis um stöð­una sem uppi er vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Nær engir ferða­menn eru eftir á land­inu og ef sam­töl Mannlífs við stjórn­endur ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja eru lýsandi fyrir grein­ina alla, þá eru menn nán­ast búnir að afskrifa sum­arið. Ef þær spár ræt­ast blasir fjölda­gjald­þrot við grein­inni.

Mannlíf hefur und­an­farna daga rætt við stóra og smáa aðila í ferða­þjón­ustu. Sam­an­dregið telja þeir sig flestir geta lifað apríl- og maí­mánuð af, með stuðn­ingi rík­is­ins, en að brekkan verði afar brött ef júní, júlí og ágúst verða ónýtir. Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki ganga því mörg hver plank­ann. „Það mun auð­vitað ekk­ert vera þannig enda­laust að maður geti lifað af ein­hverju smá­vegis eigin fé sem maður hefur getað safnað upp,“ segir einn þeirra sem ótt­ast hið versta. Hann á von á því að það geti tekið hjólin sex til tólf mán­uði að byrja að snú­ast á nýjan leik.

„Þetta var búið eftir helg­ina. Það er ekk­ert af fólki eftir. Við höfum lagt stærstum hluta okkar flota.“

Svo virð­ist sem flest ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki muni nýta sér úrræði stjórn­valda um hluta­bætur að fullu. Í þeim felst að starfs­fólkið þiggur 75 pró­sent atvinnu­leys­is­bætur en vinnu­veit­and­inn greiðir þann fjórð­ung sem upp á vantar, upp að ákveðnu hámarki. Á sam­tölum Mannlífs við stjórn­endur ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækja má heyra að þetta úrræði komi í veg fyrir ótal upp­sagnir. Tveir þeirra benda þó á að til lengri tíma sé ómögu­legt að greiða 25 pró­sent af launum starfs­fólks ef ekki kemur króna í kass­ann.

Bílarnir teknir af númerum

Eitt af þeim úrræðum sem ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki hafa gripið til er að taka hóp­ferða­bíla og aðra fyr­ir­tækja­bíla af núm­erum og losna þannig við kostnað af trygg­ingum og bif­reiða­gjöldum. Þetta hafa bæði stór og smá fyr­ir­tæki gert en Mannlíf greindi einmitt frá því á vef sínum www.man.is á mánu­dag­inn að Gray Line hefði þá þegar tekið 80 pró­sent flot­ans af núm­erum. Þórir Garð­ars­son, stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins, sagði við það tæki­færi að umsvif fyr­ir­tæk­is­ins væru um eitt pró­sent af því sem áður var. Hann sagði að fyr­ir­tækið yrði senni­lega að reiða sig á lán­ar­drottna til að geta staðið undir því að greiða 25 pró­sent af launum starfs­fólks, með enga inn­komu.

Björn Ragn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Kynn­is­ferða.

Fleiri fyr­ir­tæki hafa gripið til þess ráðs að taka bíla af núm­erum. Þeirra á meðal er fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið Your Day Tours. Fyr­ir­tækið var stofnað árið 2015 og sér­hæfir sig í dags­ferðum. Það rekur sjö litlar rútur en rætt er við einn af eig­endum fyr­ir­tæk­is­ins í þess­ari umfjöllun. Sömu sögu er að segja af Reykja­vík Excursions – Kynn­is­ferðir ehf., þar sem 400 manns starfa. Um hund­rað starfs­menn félags­ins keyra um það bil 50 vagna fyrir Strætó bs. en önnur starf­semi liggur niðri. „Þetta var búið eftir helg­ina. Það er ekk­ert af fólki eftir. Við höfum lagt stærstum hluta okkar flota,“ segir Björn Ragn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Kynn­is­ferða. Hann segir aðspurður að fyr­ir­tækið muni nýta sér hluta­bætur stjórn­valda fyrir um 300 manns.

Í svari Sam­göngu­stofu við fyr­ir­spurn Mannlífs um afskráðar bif­reiðar í eigu fyr­ir­tækja kemur í ljós að 14 þús­und far­ar­tæki voru skráð úr umferð í byrjun mán­að­ar­ins. Gera má ráð fyrir að þessi tala hafi hækkað tölu­vert núna allra síð­ustu daga. Til sam­an­burðar voru 13.700 bílar skráðir úr umferð í apríl í fyrra, en þess má geta að fall WOW air fyrir sléttu ári var reið­ar­slag fyrir ferða­þjón­ust­una.

Ferðalög Íslendinga geta skipt höfuðmáli

Eitt af þeim úrræðum sem stjórn­völd hafa kynnt er staf­rænt gjafa­bréf í ferða­þjón­ustu inn­an­lands. Í þetta ver ríkið hálfum öðrum millj­arði. Hver íbúi á Íslandi sem náð hefur 18 ára aldri fær fimm þús­und krónur til að nota upp í kaup hjá ferða­þjón­ustu­að­ila. Þá hefur ríkið boðað mikið mark­aðsá­tak á erlendri grundu þegar rofar til í COVID-far­aldr­inum.

„Íslend­ingar munu lítið ferð­ast til útlanda á þessu ári. Það skiptir máli að við Íslend­ingar verðum dug­legir að nýta okkur íslenska ferða­þjón­ustu.“

Þeir ferða­þjón­ustu­að­ilar sem Mannlíf hefur rætt við binda ekki miklar vonir við að Íslend­ingar muni flykkj­ast í þær ferðir sem útlend­ingar hafa verið dug­leg­astir að kaupa und­an­farin ár, svo sem ferð um Gullna hring­inn eða að elta uppi norð­ur­ljós. Sumir benda á að þarna séu þó tæki­færi og fyr­ir­tækin þurfi að vera snjöll í að mark­aðs­setja ferðir sem Íslend­ingum kunni að þykja eft­ir­sóttar, svo sem fyrir starfs­menn fyr­ir­tækja.

„Íslend­ingar munu lítið ferð­ast til útlanda á þessu ári. Það skiptir máli að við Íslend­ingar verðum dug­legir að nýta okkur íslenska ferða­þjón­ustu,“ segir einn við­mæl­andi. Annar seg­ist nú vera að leggja höf­uðið í bleyti hvernig hægt sé að ná til Íslend­inga. Hann gerir ekki ráð fyrir tekjum frá útlend­ingum næstu mán­uði, svo ein­hverju nemi.

Tómlegt við Geysi

Mábil Gróa Más­dóttir, hót­el­stjóri á Hótel Geysi, segir að það sé eins og að fara 20 ár aftur í tím­ann að horfa yfir Geys­is­svæðið núna. Svæðið er eitt alvin­sælasta ferða­manna­svæði lands­ins, eins og kunn­ugt er. Mábil segir að nú séu þar aðeins fáeinir Íslend­ingar á stangli. „Það er varla að maður sjái ferða­mann á ferli,“ segir hún.
Hótelinu, sem hjá starfa um 50 manns, var lokað eftir að sam­komu­bann stjórn­valda var hert í vik­unni. Eigendur hót­els­ins reka líka veit­inga­stað­ina Geysir Glíma, Kantína og Súpa. Mábil segir að Glíma sé opin frá 10 til 17, aðal­lega svo að fólk geti kom­ist á sal­erni, ef það heim­sækir svæðið.

Sumarfólk fær enga vinnu

Nánari umfjöllun í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Mábil segir aðspurð að þannig hafi hitt á að samn­ingar við nokkuð margt starfs­fólk hafi verið að renna út. Því hafi all­nokkrir farið til síns heima; fólk sem hafi ætlað að hætta í mars eða apríl. „Við náðum líka að stoppa þá sem búið var að ráða fyrir sum­arið,“ útskýrir hún en fleiri ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki hafa brugðið á það ráð að segja upp samn­ingum sem þeir höfðu gert við sum­ar­starfs­menn. Í þeim til­vikum er upp­sagn­ar­frest­ur­inn stuttur.

Mábil segir að útspil stjórn­valda hafi hjálpað mikið til. Hún á von á að hafa fólk í 25 pró­sent starfs­hlut­falli í apríl og maí, eins og heim­ild er fyrir. „Við erum búin að gera áform ef þetta heldur áfram í apríl og maí. Svo verður róð­ur­inn þyngri því það er engin inn­koma. Við verðum bara að end­ur­meta stöð­una þá.“ Hún bendir á að þessi staða sé uppi hjá fjöl­mörgum atvinnu­greinum. „Það er alveg sama hvort þú horfir á stórt eða smátt fyr­ir­tæki – já, eða mömmu þína – það eru allir í þess­ari stöðu.“ Hún ótt­ast að veiran muni hafa áhrif út þetta ár og jafn­vel fram á það næsta. Miklu máli skipti að við­spyrnan verði sterk.

Lestu ítar­lega umfjöllun um málið í helg­ar­blað­inu Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi