Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Stór aðgerðapakki stjórnvalda vegna COVID-19 á lokametrunum

Rík­is­stjórnin og Seðla­bank­inn eru á loka­metr­unum við að und­ir­búa stóran aðgerð­ar­pakka vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Þetta herma heim­ildir Mannlífs. Mót­væg­is­að­gerð­irnar munu miða að því að styrkja hag­kerfið vegna þeirra búsifja sem kór­óna­veiran er að valda íslensku efna­hags­lífi.

Á meðal þess sem verið er að und­ir­búa er lækkun vaxta, en Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri lét í vik­unni í veðri vaka að bank­inn myndi bregð­ast við aðstæð­unum. „Það liggur fyrir að ef það verður mik­ill sam­dráttur í lands­fram­leiðslu þá mun það kalla á það að við reynum að örva hag­kerfið með pen­inga­stefn­unni, svo sem með því að lækka vexti en líka eftir öðrum leiðum,“ sagði Ásgeir á opnum fundi á Hilton hót­eli í vik­unni. Fordæmi eru þegar komin fram fyrir lækkun vaxta vegna kór­óna­veirunnar. Þannig lækk­aði seðla­banki Banda­ríkj­anna óvænt vexti á þriðju­dag, vegna óvissunnar sem uppi er.

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri Mynd / Hákon Davíð

Bindiskylda verði lækkuð

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs er vaxta­lækkun í far­vatn­inu en einnig er verið að skoða hvort minnka eigi bindi­skyldu og létta á eig­in­fjár­kröfu á hendur bönk­unum, til að gera þeim kleift að lána til fyr­ir­tækja og tryggja lausafé. Bindi­skylda er eitt af stjórn­tækjum Seðla­banka til að hafa stjórn á magni lausa­fjár í umferð. Bankinn setur þær kvaðir á lána­stofn­anir að þær hafi ákveðið hlut­fall af inn­lánum á reikn­ingi hjá Seðla­bank­anum. Það er til þess fallið að draga úr getu banka til útlána.

Búist er við Seðla­banki til­kynni um þessa ákvarð­anir sínar í vik­unni og bíði ekki til næsta vaxta­á­kvörð­un­ar­dags.

Seðla­bank­inn

Aðgerð­irnar sem í und­ir­bún­ingi eru snúa líka að rík­is­fjár­málum. Eftir því sem Mannlíf kemst næst stendur jafn­framt til að örva hag­kerfið, á þessum óvenju­legu tímum, með stórum rík­is­fram­kvæmdum. Þar verður horft til þess að flýta sumum af þeim aðgerðum sem rík­is­stjórnin hafði áður sett á tíu ára fram­kvæmda­á­ætlun. Um þetta verður einnig til­kynnt í vik­unni, sam­kvæmt sömu heim­ildum, en lík­legt þykir að Seðla­bank­inn og rík­is­stjórnin muni til­kynna um aðgerðir sínar sam­eig­in­lega.

Katrín Jak­obs­dóttir sagði í hádeg­is­fréttum RÚV í dag að rík­is­stjórnin hafi þegar verið farin að und­ir­búa aðgerðir vegna kóln­unar í hag­kerf­inu. Veiran setti þær aðgerðir í nýtt sam­hengi. Allar þjóðir stæði frammi fyrir mjög miklum áhrifum af völdum veirunnar. Þess vegna væri verið að und­ir­búa aðgerðir bæði í rík­is­fjár­málum og hvað varðar pen­inga­stefn­una og efna­hags­málin. Hún sagði að rík­is­stjórnin hefði fundað með Seðla­bank­anum í vik­unni og að annar fundur væri fyr­ir­hug­aður. Fram kom í frétt­inni að til stæði að auka opin­bera fjár­fest­ingu vegna stöð­unnar.

Mikil áhrif á flug og ferðaþjónustu

Icelandair til­kynnt í gær að 80 flug­ferðir yrðu felldar niður í mars­mán­uði, vegna COVID-19-far­ald­urs­ins. Alþjóða­sam­tök flug­fé­laga til­kynntu í vik­unni að þau gerðu ráð fyrir að evr­ópsk flug­fé­lög töp­uðu minnst tæpum átta­tíu millj­örðum íslenskra króna vegna útbreiðslu veirunnar. Aðal­hag­fræð­ingur Íslands­banka, Jón Bjarki Bentsson, lét í vik­unni hafa eftir sér að ef allt færi á besta veg yrði fækkun far­þega á bil­inu sjö til tíu pró­sent. Ef veiran næði mik­illi útbreiðslu yrðu töl­urnar hins vegar tveggja stafa. „Það inni­heldur þá íslensk flug­fé­lög og þau flug­fé­lög sem fljúga til og frá land­inu,“ sagði Jón Bjarki.

Far­ald­ur­inn getur gengið nærri fleiri atvinnu­greinum en flug­rekstri og ferða­þjón­ustu. Miklar lækk­anir hafa orðið á hluta­bréfa­mark­aði í vik­unni, svo dæmi sé tekið. Fjöl­mörgum við­burður hefur síð­ustu daga verið aflýst eða frestað, jafnt stórum sem smáum. Nettómót­inu í körfu­bolta, sem er þrjú þús­und manna sam­koma í Reykja­nesbæ, var frestað fyrir helgi, Páll Óskar Hjálmtýs­son hefur frestað 50 ára afmæl­is­tón­leikum, stórri mat­ar­sýn­ingu í Hörpu hefur verið slegið á frest og for­svars­menn stór­sýn­ing­ar­innar Verk og vit hafa frestað við­burð­inum til hausts­ins. Stjórn­mála­flokkar hafa frestað lands­þingum, fyr­ir­tæki árs­há­tíðum, ásamt fjöl­mörgum minni og stærri við­burðum.

Stórir íþróttaviðburðir fram undan

Þá má nefna að ekki hefur verið úti­lokað að stórum íþrótta­við­burðum, svo sem lands­leiks Íslands og Rúmeníu í umspili fyrir EM í knatt­spyrnu, verði frestað eða þeir fari fram fyrir luktum dyrum. Úrslita­keppnir í hand­bolta og körfu­bolta eru fram undan en áhorf­enda­lausir leikir geta valdið við­kvæmum rekstri íþrótta­fé­laga miklum fjár­hags­legum skaða. Ljóst má vera að þeir sem koma að rekstri íþrótta- og menn­ing­ar­starf­semi halda niðri í sér and­anum þegar Almanna­varnir svara spurn­ingum um hugs­an­legt sam­komu­bann á kom­andi vikum.

Mannlíf hefur haft fregnir af því að kór­óna­veiran hafi þegar haft áhrif á starf­semi útflutn­ings­fyr­ir­tækja. Einn fisk­út­flytj­andi orð­aði það þannig í sam­tali við Mannlíf að lítið þyrfti til svo mark­aðir lok­uð­ust. Kór­óna­veiran hefði ekki valdið honum sölu­bresti en að hann hefði þurft að færa sig á milli mark­aða. Ástandið væri mjög við­kvæmt. Ljóst er að þetta gildir um fleiri útflutn­ings­greinar.

Hér eru aðeins nokkur dæmi rakin um áhrif veirunnar á atvinnu­líf, menn­ingu og íþróttir. Viðbúið þykir að útbreiðsla kór­ónu­veirunnar muni hafa tals­verð áhrif á íslenskt efna­hags­líf. Við því hyggj­ast Seðla­banki Íslands og rík­is­stjórnin bregð­ast í vik­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum