Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fólk með sjúkdóma óttast um líf sitt

Fólk með sjúkdóma óttast um líf sitt
Heil­brigð­is­starfs­maður tekur sýni í „bíla­lúgu“ í Suður-Kóreu. Mynd / epa|Pétur Magn­ús­son.|Sandra Björk Birg­is­dóttir.|Sigurður E. Sig­urðs­son.|Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir.

Fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma ótt­ast mjög að smit­ast af kór­óna­veirunni, að sögn for­manns Öryrkja­banda­lags Íslands. Þeim sem eru veikir fyrir stafar meiri ógn af veirunni en þeim sem eru hraustir. Línur Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins hafa verið rauð­gló­andi und­an­farna daga. Öryrkjar og aldr­aðir eru áber­andi í hópi inn­hringj­enda.

„Margir öryrkjar eru með alvar­lega und­ir­liggj­andi sjúk­dóma og eru þess vegna í meiri hættu en aðrir,“ segir Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands í sam­tali við Mannlíf. Þeim sem eldri eru og þeim sem eru með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma stafar mesta ógnin af Covid19-far­aldr­inum, sem stafar af kór­óna­veirunni en um 20 til­felli hafa greinst hér á landi þegar þetta er skrifað. Á blaða­manna­fundi á þriðju­dag­inn kom fram að margir mán­uðir gætu liðið áður en far­ald­ur­inn verður um garð geng­inn.

Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir.

Þuríður segir að margir með­limir Öryrkja­banda­lags­ins séu hræddir vegna ástands­ins og ótt­ist mjög hið versta. „Fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma ótt­ast bara um líf sitt. Það kemur ber­lega í ljós í sam­tölum þar sem þetta fólk er að tjá sig,“ segir Þuríður um öryrkja. Hún segir afar sorg­legt að lesa fréttir um að fólk hafi hunsað til­mæli Land­læknis um að halda sig í sótt­kví. „Það er ofboðs­lega sorg­legt ef fólk er ekki að taka til­mæl­unum alvar­lega um að vera í sótt­kví. Það getur sett þá sem eru veikir fyrir í mikla hættu,“ segir Þuríður

Þórunn Sveins­björns­dóttir, for­maður Lands­sam­bands eldri borg­ara, segir í sam­tali við Mannlíf að margt eldra fólk sé búið „gamla góða æðru­leys­inu“ og taki þessum fréttum af ró. „Fólk veit að það getur hallað undan fæti þegar það eld­ist. Fólk með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma reynir að verja sig og umgang­ast ekki eins mikið annað fólk,“ segir hún, aðspurð hvernig eldri borg­arar bregð­ist við frétt­unum. Hún vekur athygli á því að eldra fólk fylgist oft mjög vel með fréttum og fari að fyr­ir­mælum, þó að net­notkun sé ef til vill ekki almenn. „Eldri borg­arar eru mjög dug­legir að þvo hendur og fyr­ir­byggja smit­leiðir,“ útskýrir hún.

Hún segir þó að þessum fréttum geti fylgt kvíði og ein­mana­leiki. „Þá mæðir á hjálp­ar­síma Rauða kross­ins. Aldraðir sem eru ein­mana heima hjá sér, og reyna kannski að forð­ast sam­neyti við fólk á meðan þetta gengur yfir, finnur oft fyrir ein­mana­leika. Ég gæti trúað því að sím­tölum í hjálp­ar­sím­ann hafi fjölgað,“ segir hún.

Þrefalt fleiri svara í símann

Það má til sanns vegar færa. Hjá hjálp­ar­síma Rauða kross­ins loga allar línur. Þar svara sex til sjö manns í sím­ann þegar þetta er skrifað en þörfin er metin jafn­óðum. Á venju­legum degi, þegar er ekk­ert sér­stakt er í gangi í sam­fé­lag­inu, svara tvær mann­eskjur í sím­ann.

Sandra Björk Birg­is­dóttir.

Sandra Björk Birg­is­dóttir, verk­efna­stjóri Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins 1717, segir að bæði öryrkjar og aldr­aðir séu áber­andi í hópi inn­hringj­enda síð­ustu daga og vikna. Hún tekur þó fram að bæði kyn, fólk af ýmsum aldri og fólk sem til­heyrir fjöl­breyttum þjóð­fé­lags­hópum hringi í hjálp­ar­sím­ann. „En þetta hefur auk­ist núna, með til­komu þess­arar veiru. Fólk er að hringja í okkur þegar það er kvíðið og líður illa yfir þessu.“ Hún segir að hjálp­ar­sím­inn sé öllum opinn. „Við erum til staðar fyrir alla. Við veitum fólki upp­lýs­ingar og þær leið­bein­ingar sem gott er að fara eftir. Við erum mjög fljót að fá nýj­ustu fréttir og miðlum þeim svo til þeirra sem hringja inn.“

Spurð hvað brenni helst á fólki svarar Sandra því til að margir hringi inn til að spyrja hvort þeir eigi að gera eitt­hvað sér­stakt eða gæta sín á hinu eða þessu. „Eldra fólkið er kannski ekki með tölvur og Net eins og yngra fólkið. Það les frekar dag­blöðin.“ Hún bendir á að upp­lýs­ing­arnar geti breyst svo hratt að fólk geti þurft að sækja sér nýrri upp­lýs­ingar en þær sem birt­ast í dag­blöð­unum. „Svo stundum hringir fólk vegna þess að því finnst það þurfa að tala við ein­hvern. Og við erum til staðar fyrir þá líka.“

Þeir elstu í mestri hættu

Greining Worldometers á tveimur skýrslum, ann­ars vegar frá Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni og hins vegar frá Stofnun sjúk­dóma­eft­ir­lits og sjúk­dóma­varna í Kína, sem sam­tals fjalla um 128 þús­und til­felli smita, sýna að líkur á dauða eru meiri eftir því sem fólk eld­ist.

Alls hafa 14,8 pró­sent þeirra sem eru 80 ára og eldri og veikst hafa af COVID-19, lát­ist. Hlut­fallið er átta pró­sent hjá þeim sem eru á aldr­inum 70 til 79 ára. 3,6 pró­sent þeirra sem hafa veikst á aldr­inum 60-69 ára hafa lát­ist en 1,3 pró­sent þeirra sem eru á aldr­inum 50-59 ára. Hlutfall dauðs­falla hjá þeim sem eru yngri er á bil­inu 0,2 til 0,4 pró­sent. Engin börn yngri en níu ára hafa lát­ist af völdum veirunnar. Tekið skal fram að ekki öll 128 þús­und til­vikin hafa verið stað­fest á rann­sókn­ar­stofu, heldur eru þau til­vik einnig tekin með þegar sterkur grunur leikur á smiti.

Þegar and­lát af völdum COVID-19 eru skoðuð eftir kynjum kemur í ljós að 2,8 pró­sent allra karla sem smit­ast hafa, hafa lát­ist, en 1,7 pró­sent kvenna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi