Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

95 sýni verið rannsökuð hér á landi vegna COVID-19: 2 sýni í greiningu

95 sýni verið rannsökuð hér á landi vegna COVID-19: 2 sýni í greiningu
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Nið­ur­stöður úr rann­sókn 10 sýna sem tekin voru í gær liggja fyrir og eru þau öll nei­kvæð fyrir veirunni sem veldur COVID-19 sjúk­dómi. Enn eru 2 sýni í grein­ingu hjá sýkla- og veiru­fræði­deild Land­spít­ala. Vonast er til að nið­ur­staða úr þeim liggi fyrir síðar í dag eða á morgun. Kemur þetta fram í til­kynn­ingu frá Almanna­varna­deild.

Alls hafa 95 sýni verið rann­sökuð hér á landi og aðeins eitt af þeim reynd­ist vera jákvætt fyrir COVID-19. Sá ein­stak­lingur, maður á fimmtu­dags­aldri sem nýverið var á Norður-Ítalíu, er enn í ein­angrun á Land­spít­ala. Honum heils­ast vel, en líkt og komið hefur fram sýnir hann dæmi­gerð ein­kenni sjúk­dóms­ins (hósti, hiti og bein­verkir). Hafa ber í huga að veiran veldur ekki alvar­legum veik­indum hjá yfir­gnæf­andi hluta fólks.

Viðbúnaður vegna farþega frá Ítalíu

Fyrir helgi lýsti almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra yfir hættu­stigi vegna COVID-19 í sam­vinnu við sótt­varna­lækni og er sem fyrr unnið sam­kvæmt Lands­á­ætlun um heims­far­aldur. Áhættu­mat og skil­greind hættu­svæði eru óbreytt en end­ur­metin dag­lega.

Síðdegis í gær lenti flug­vél Icelandair á Kefla­vík­ur­flug­velli eftir flug frá Veróna á Ítalíu. Um borð voru um 180 far­þegar sem höfðu dvalið í norð­ur­hluta lands­ins. Sér­stakur við­bún­aður var við­hafður vegna þessa, þar á meðal var heil­brigð­is­starfs­fólk á staðnum til að koma upp­lýs­ingum til far­þega um skil­yrði fyrir heima­sótt­kví,  kynn­ingu á síma 1700 sem fólk­inu er ráð­lagt að hringja í finni það fyrir ein­kennum (hósti, hiti, bein­verkir, mæði) og aðrar upp­lýs­ingar í tengslum við COVID-19. Þrír far­þegar upp­lýstu heil­brigð­is­starfs­fólk um að þau fyndu fyrir flensu­ein­kennum og voru sýni tekin hjá þeim til grein­ingar.

Laug­ar­dag­inn 7. mars er von á öðrum hópi til lands­ins frá Veróna á Ítalíu og verður sami við­bún­aður við­hafður þá.

10 íslendingar í sóttkví á Tenerife

Starfs­fólk sótt­varna­læknis er í góðu sam­bandi við 10 Íslend­inga sem eru í sótt­kví á H10 Costa Adeje Palace hót­el­inu á Tenerife. Hefur hóp­ur­inn verið hvattur til að fylgja fyr­ir­mælum spænskra heil­brigð­is­yf­ir­valda en þau bera ábyrgð á sótt­kvínni og á þeim ein­stak­lingum sem þar eru. Borg­ara­þjón­usta utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hefur jafn­framt verið fólk­inu innan handar og sér um sam­skipti við spænsk yfir­völd vegna máls­ins. Ekki er vitað hvenær sótt­kví verður aflétt á hót­el­inu eða hvenær von er á fólk­inu til Íslands.

Að end­ingu lýsir almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra yfir ánægju að und­an­þágu­beiðnir hafi feng­ist frá verk­falli félags­manna Eflingar svo hægt verði að sinna sorp­hirðu og þrifum á hjúkr­un­ar­heim­ilum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Sótt­varna­læknir minnir á að ein­stak­lingar, með búsetu á Íslandi, sem hafa verið á skil­greindum áhættu­svæðum og snúa heim eru hvattir til að halda sig heima í 14 daga eftir að þeir hafa yfir­gefið skil­greind áhættu­svæði, sjá leið­bein­ingar til ein­stak­linga í sótt­kví. Ef þeir fá ein­kenni frá önd­un­ar­færum, sér­stak­lega með hita, skulu þeir hafa sam­band við Lækna­vakt­ina í síma 1700 eða sína heilsu­gæslu sím­leiðis en ekki mæta óboð­aðir á sjúk­linga­mót­tökur.

Að óbreyttu verður næsti upp­lýs­inga­fundur almanna­varna og sótt­varna­læknis á morgun, mánu­dag­inn 2. mars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina