Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skilgreining á útbreiðslu, ekki alvarleika sjúkdóms

Skilgreining á útbreiðslu, ekki alvarleika sjúkdóms
|Á Ítalíu hafa 229 greinst með Covid-19 og sex lát­ist. Fólk er víða farið að hamstra mat af ótta við fram­haldið. Mynd / epa

Þrátt fyrir að kór­óna­veiran SARS-CoV-2 hafi náð nokk­urri útbreiðslu í a.m.k. sex ríkjum heims hefur Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin (WHO) ekki enn lýst yfir heims­far­aldri.

Nokkur munur er á því hvernig „heims­far­aldur“ (e. pandemic) er skil­greindur milli ríkja og stofn­ana en vert er að hafa í huga að skil­grein­ingin snýr að útbreiðslu, ekki alvar­leika.

Samkvæmt nýj­ustu tölum hafa 80.239 greinst með Covid-19; sjúk­dóm­inn af völdum SARS-CoV-2. Alls hafa 77.780 greinst í Kína og þar af hafa 2.666 lát­ist. Utan Kína hafa 2.459 greinst í 33 ríkjum og 34 lát­ist. Á síð­ustu 24 klukku­stundum greindust fyrstu til­vik Covid-19 í Afganistan, Bahrain, Írak og Óman.

Heims­far­aldri er lýst yfir þegar nýr sjúk­dómur sem fólk hefur ekki myndað ónæmi gegn breið­ist út víða um heim. Sumir miða við veru­lega útbreiðslu á tveimur eða fleiri heims­álfum en vana­lega þarf það skil­yrði að vera upp­fyllt að sjúk­dóm­ur­inn breið­ist hratt út mann frá manni. Það er t.d. ekki nóg að um sé að ræða ein­stak­linga sem hafa smit­ast í upp­runa­land­inu og ferð­ast heim, svokölluð „vísi­til­felli“ (e. index case), eða ein­stak­linga sem sá hefur smitað, heldur við­var­andi smit manna á milli á við­kom­andi ríki.

Yfir­lýs­ing um heims­far­aldur hefur ekk­ert að gera með alvar­leika sjúk­dóms, fjölda smit­aðra né fjölda lát­inna. Engu að síður er til­gang­ur­inn að setja ríki og þjóðir í við­bún­að­ar­stöðu, hvetja þau til að taka yfir­stand­andi far­aldur alvar­lega og gera ráð fyrir fjár­út­látum, auknu álagi á heil­brigð­is­kerfið og trufl­anir á dag­legu lífi, svo dæmi séu tekin.

Ein ástæða til að draga það í lengstu lög að lýsa yfir heims­far­aldri er hins vegar að forð­ast það að yfir­lýs­ingin hafi þver­öfug áhrif; að í stað þess að vinna heil­brigð­is­kerfum heims­ins gagn þá grípi múgæs­ing um sig og álagið á heil­brigð­is­kerfin auk­ist gríð­ar­lega, að ástæðu­lausu.

Spurt og svarað á vef­síðu Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar.

Sér­fræð­ingar benda t.d. á að lang­flestir sem smit­ast af SARS-CoV-2 muni aðeins finna fyrir mildum ein­kennum, eins og um væri að ræða hefð­bundna flensu. Stjórn­völd verði hins vegar að gera ráð fyrir stór­auknum fjölda sjúk­linga á sjúkra­stofn­unum, eiga nauð­syn­leg lyf á lager og vera til­búin að grípa til ráð­staf­ana á borð við að vara við eða banna fjölda­sam­komur. Þá verði almenn­ingur að gera ráð fyrir að þurfa að halda sig heima.

Hvað varðar við­búnað á Íslandi segja heil­brigð­is­yf­ir­völd sig vera vel í stakk búin. Páll Matth­í­as­son, for­stjóri Land­spít­ala, hefur m.a. ítrekað að spít­al­inn eigi fjölda önd­un­ar­véla, en einn alvar­legri fylgi­fiska Covid-19 er slæm lungna­bólga. Þá hefur mbl.is eft­ir­far­andi eftir Ölmu D. Möller land­lækni: „Okkur gekk mjög vel í svínaflens­unni og það má mikið vera ef við klúðrum þessu.“

Á Ítalíu hafa 229 greinst með Covid-19 og sex lát­ist. Fólk er víða farið að hamstra mat af ótta við fram­haldið. Mynd / epa

Engin lyf eru til við Covid-19 og margir mán­uðir í bólu­efni. Nokkur eru þó í þróun og hafa yfir­völd í Kína verið að gera til­raunir með ýmis veiru­lyf, m.a. lyf sem notað hefur verið HIV-veirunni.

Útbreiðsla HIV veirunnar á 9. ára­tug síð­ustu aldar er dæmi um heims­far­aldur, sem stendur raunar enn yfir. Annað dæmi er áður­nefnd „svínaflensa“. WHO lýsti yfir heims­far­aldri vegna flensunnar í júní 2009 og sagði henni lokið í ágúst 2010.

Í upp­hafi var talið að um 20 þús­und manns hefðu lát­ist af völdum sjúk­dóms­ins en rann­sóknir leiddu í ljós að fjöldi lát­inna var á bil­inu 150 til 575 þús­und. Þess ber þó að geta að áætlað er að 11 til 21% heims­byggð­ar­innar hafi smit­ast.

Upp­lýs­ingar á vef Land­lækn­is­emb­ætt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina