Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

„Reikningarnir eru kannski ekki margir en öll launin mín fara í þá“

„Reikningarnir eru kannski ekki margir en öll launin mín fara í þá“
Elzbieta Kolacz

Elzbieta Kolacz er 44 ára gömul og hefur starfað á leiks­skóla í tæp­lega 13 ár. Hún hóf nám á Leik­skóla­brú, námi sem kennt er í Keili í Reykja­nesbæ, en hætti eftir að kom í ljós að tveggja ára nám myndi aðeins skila henni um 5.000 kr. launa­hækkun á mán­uði.

„Ég flutti til Íslands frá Póllandi og byrj­aði á að þrífa hótel, þar var ég í sex ár. Síðan fór ég í fæð­ing­ar­or­lof í eitt ár. Þegar ég fór að leita að vinnu eftir fæð­ing­ar­or­lofið þá benti vin­kona mín mér á að sækja um vinnu á leik­skóla,“ segir Elzbieta. „Ég vildi læra íslensk­una betur og vin­kona mín sagði að vinnan á leik­skól­anum væri góð leið til þess og svo var þetta tæki­færi til að fá pláss fyrir barnið mitt. Ég elska líka börn.“

Elzbieta, sem er með stúd­ents­próf frá Póllandi, byrj­aði að vinna í eld­húsi á leik­skóla, en síðan var henni boðið að vinna inni á leik­skóla­deild þar sem hún hóf starf sem leið­bein­andi. Í dag er hún svo­kall­aður starfs­maður 2.

Sjá einnig: „Fólk á að geta haft svig­rúm með launin sín, sama hvaða starfi það gegnir“

Tveggja ára nám skilar litlu í launaumslagið

Elzbieta hefur tekið nám­skeið, fyrst voru það íslensku­nám­skeið til að ná betri tökum á tungu­mál­inu. „Fyrir ári síðan reyndi ég að fara í Leik­skóla­brú en það var svo­lítið erfitt fyrir mig bæði vegna tungu­máls­ins og eins vegna þess að námið var kennt á laug­ar­dögum en ég var þá í auka­vinnu og þetta gekk ekki vel. Ég byrj­aði en hætti,“ segir Elzbieta. „Ég kann­aði líka hvað launin mín myndu hækka eftir að nám­inu var lokið og fékk þau svör að það væri kannski 5.000 krónur brúttó. Og það var eig­in­lega ekki mögu­leiki fyrir mig að halda áfram námi sem tekur tvö ár. Vinkona mín ákvað samt að láta sig hafa það og hélt áfram.“

Elzbieta á mann og einn son sem er 14 ára. Maður Elzbietu vinnur einnig hjá Reykja­vík­ur­borg og í lág­launa­starfi. Elzbieta vinnur frá kl. 9-17 og fyrir þann vinnu­tíma fær hún útborg­aðar 270-280 þús­und krónur. „Stundum er smá­vegis yfir­vinna eða eitt­hvað auka,“ segir hún.

Fjöl­skyldan er í leigu­hús­næði, sem þau greiða 230.000 krónur fyrir, áður voru þau með bíla­lán sem er upp­greitt. „Svo eru það bara þessir venju­legu reikn­ingar; raf­magn, matur í skól­anum og slíkt. Reikn­ing­arnir eru kannski ekki margir, en öll launin mín fara í þá,“ segir Elzbieta. „Ég er í sjúkra­þjálfun og hana þarf að greiða og nýlega fór ég í hnéað­gerð.“

Fjöl­skyldan leyfir sér ekki mikið. Sonurinn er í skát­unum og Elzbieta segir að á nokk­urra mán­aða fresti þá fari þau í bíó. „Stundum förum við í IKEA og borðum, stundum vill son­ur­inn panta sér pizzu. Stöku sinnum biður hann um eitt­hvað meira og þá verð ég að segja, „því miður, það verður að bíða þar til í næsta mán­uði.“ Við erum eig­in­lega alltaf á núlli, stundum er smá­vegis pen­ingur eftir, en aldrei nóg til að spara eitt­hvað,“ segir Elzbieta og bætir við að af og til finni hún sér auka­vinnu þegar spara þarf fyrir ferð. Þá leyfa þau sér að fara í frí til Póllands til for­eldra sinna, en ekk­ert annað því slíku hafa þau ekki efni á.

„Stundum þegar er til smá­vegis pen­ingur þá leyfum við okkur eitt­hvað, eins og um dag­inn þegar við keyptum okkur örbylgju­ofn. Á nokk­urra mán­aða fresti þá getum við kannski leyft okkur að kaupa eitt­hvað.“

Launa­seð­ill Elzbietu.

Lesa má nánar um málið í Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ