Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Fólk á að geta haft svigrúm með launin sín, sama hvaða starfi það gegnir“

Michael Bragi Whalley er 36 ára gam­all og hefur starfað á leik­skól­anum Hömrum í 19 ár. Hann er leið­bein­andi 2 á Hömrum og situr auk þess í samn­inga­nefnd Eflingar. Michael hefur unnið auka­vinnu í 11 ár til að geta greitt mán­að­ar­lega reikn­inga og ná endum saman.

„Fólk á að geta haft svigrúm með launin sín, sama hvaða starfi það gegnir“
Michael Bragi Whalley vinnur í leik­skóla alla daga og fjóra daga í viku og aðra hvora helgi starfar hann sem þjón­ustu­full­trúi í fjar­skipta­fyr­ir­tæki.||

„Ég fór í starfskynn­ingu hér þegar ég var við nám í Borg­ar­holts­skóla og starfið heill­aði mig alveg, að vinna með börnum,“ segir Michael aðspurður um af hverju hann valdi þetta starf. Hann byrj­aði sem sum­ar­starfs­maður og síðan í auka­vinnu með námi, og hóf svo að vinna þar í fullu starfi eftir nám.

Michael hefur farið á hin og þessi fag­nám­skeið sem hafa bætt launa­kjör hans að ein­hverju leyti. „En við erum þá bara að tala um pínu­litla hækkun á launum, maður gerir það sem þarf til að fá aðeins meira í vas­ann. Síðan er það reynslan og starfs­ald­ur­inn sem er metið. Þeir sem byrja ófag­lærðir fara í launa­flokk „starfs­maður 2“ sem eru með þeim lægst laun­uðu í Reykja­vík í dag og við erum að berj­ast við að hækka all­veru­lega, ásamt öðrum launum innan Eflingar,“ segir hann.

„Leik­skóli er góður vinnu­staður til að vinna á, ef maður setur launin til hliðar. Starfs­manna­kjarn­inn hér á Hömrum hefur verið sá sami, þannig að ég hef unnið með sama fólk­inu, sama kjarn­anum öll árin sem tíðkast ekki mikið á leik­skólum ef miðað er við launa­kjörin. Hér er góður starfsandi og frá­bær leik­skóla­stjóri og sam­starfs­menn.“

„Það er búið að skora á Dag B. Egg­erts­son borg­ar­stjóra að svara því hvort að hann geti lifað á þessum launum, hann vill ekki svara, hann hlýtur að vita upp á sig sök­ina.“

Sjá einnig: „Reikn­ing­arnir eru kannski ekki margir en öll launin mín fara í þá“

Tvö störf í 11 ár

Michael vinnur í leik­skól­anum frá klukkan 8-16 en fjóra daga í viku starfar hann sem þjón­ustu­full­trúi í fjar­skipta­fyr­ir­tæki frá klukkan 16.45-20 og aðra hvora helgi vinnur hann þar frá klukkan 12-19. „Ástæðan fyrir því að ég hef unnið í 19 ár á leik­skóla er sú að 11 ár af þeim tíma hef ég unnið tvær vinnur. Ástæðan fyrir því að ég hef hald­ist við í leik­skól­anum er sú að ég er í auka­vinnu og ég þarf að gera það til að geta borgað hús­næð­is­lánin, til að geta borgað reikn­inga og geta átt ofan í fjöl­skyld­una og á,“ segir Michael sem á konu og stjúp­dóttur í fram­halds­skóla. „Tími minn með fjöl­skyld­unni er mjög lít­ill og hefur verið það sein­ustu árin. Ég hefði viljað eiga meiri tíma með fjöl­skyld­unni.“

Michael fær útborgað frá leik­skól­anum 290 þús­und krónur á mán­uði. Eftir greiðslu hús­næð­is­láns, bíla­láns og ann­arra reikn­inga, á hann 60 þús­und krónur eftir af þeim launum. „Þannig að það er mjög lítið eftir sem á að duga út mán­uð­inn. Þess vegna þarf ég að vinna tvö störf. Það kostar að reka bíl, það kostar allt, föt á barnið og allt,“ segir Michael.

„Ef ég væri einn ætti ég ekki bíl og stað­reyndin er sú að ef ég væri einn væri ég ekki með hús­næð­is­lán. Það fer eng­inn í gegnum greiðslu­mat á svona launum. Ég hef verið á leigu­mark­aði áður en mest­megnis búið í for­eldra­húsum. Ég og konan værum ekki í eigin hús­næði nema vegna aðstoðar frá for­eldrum mínum við að kom­ast í gegnum greiðslu­mat,“ segir hann.

Sólveig Anna Jóns­dóttir for­maður Eflingar talar til félags­manna Mynd / Aðsend

„Dagur etur saman faglærðu og ófaglærðu fólki“

Hann segir að langstærsti hluti þeirra sem vinna á þessum launum séu konur, eins og Sólveig Jóns­dóttir for­maður Eflingar hafi marg­nefnt. „Launin eru frá 230-260 þús­und krónur útborgað á mán­uði, og á þessum launum borgar fólk leigu. Hvernig getur fólk lifað á þessum launum, þetta er ekki hægt. Þetta eru mest­megnis konur og fjöldi þeirra eru ein­stæðar mæður,“ bendir Michael á. „Það er búið að skora á Dag B. Egg­erts­son borg­ar­stjóra að svara því hvort að hann geti lifað á þessum launum, hann vill ekki svara, hann hlýtur að vita upp á sig sök­ina,“ heldur hann áfram.

Aðspurður út í orð borg­ar­stjóra um höfr­unga­hlaup, segir hann að það orð sé fyrst og fremst barna­leikur. „Þannig að það er svo­lítið verið að skemma það orð fyrir börnum. Ég er ekki sam­mála Degi og hann hefur greini­lega ekki kynnt sér kjörin sem Eflingu eru boðin í dag. Dagur er bara að spila leið­in­legan leik, hann etur saman fag­lærðu og ófag­lærðu fólki og reynir að fá þá fag­lærðu inn í deil­una. Hann hagar sér bara leið­in­lega og barna­lega. Það er opin­bert að Dagur er með 2,2 millj­ónir í laun á mán­uði, gæti hann skipt á launum við ein­stak­ling sem er með 260 þús­und krónur á mán­uði? Fólk á að geta haft svig­rúm með launin sín, sama hvaða starfi það gegnir, sér­stak­lega fólk sem er í 100 pró­sent starfi.“

Lesa má nánar um málið í Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina