Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Mannshvörf á Íslandi: „Mikilvægt fyrir fólk að fá lúkningu“

Mannshvörf á Íslandi: „Mikilvægt fyrir fólk að fá lúkningu“

Manns­hvörf valda bæði óhug og sam­kennd meðal íslensku þjóð­ar­innar, enda íbúar fáir, sam­býlið þétt og allir þekkja alla eða tengj­ast. Okkur finnst óhugn­an­legt að ein­stak­lingur geti horfið eins og jörðin hafi gleypt hann án nokk­urrar skýr­ingar. Hin óleysta gáta um hvað gerð­ist, hvers vegna og hvernig veldur ætt­ingjum og vinum hug­ar­angri og umræðan um manns­hvörf og þá ein­stak­linga sem horfnir eru lifa lengi með fólki og leita ítrekað upp í umræðu og umfjöllun. Sumir lög­reglu­menn telja fulla þörf á að stofna „cold case“ deild, sem meðal ann­ars gæti skoðað eldri manns­hvörf.

Mannlíf fjallar um tíu manns­hvörf frá árinu 1945. Til við­bótar er fjallað um eitt mál þar sem Íslend­ingur sneri heim eftir að hafa verið tal­inn lát­inn í 12 ár.

„Lög­reglu­emb­ættin ann­ast leit þegar ein­stak­lingur hverfur, við komum ekki inn í manns­hvarfs­mál fyrr en form­legri leit er hætt og ein­hverjir mán­uðir eru liðnir frá því, “ segir Runólfur Þór­halls­son, for­maður kennsla­nefndar og aðstoð­ar­deild­ar­stjóri í grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra. „Við tryggjum að við­kom­andi lög­reglu­emb­ætti fylli út alþjóð­leg skjöl, svokölluð AM- og PM skjöl, um hinn horfna. Það er okkar aðkoma að manns­hvörfum.“

Runólfur Þór­halls­son, for­maður kennsla­nefndar og aðstoð­ar­deild­ar­stjóri í grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra.

Á skjölin sem byggja á stöðlum Interpol eru skráðar ítar­legar upp­lýs­ingar um hinn horfna sem nýt­ast kennsla­nefnd við að bera kennsl á við­kom­andi, þar á meðal almennar upp­lýs­ingar, eins og nafn og fæð­ing­ar­dagur, sér­kenni á borð við ör og húð­flúr auk upp­lýs­inga um lækni og tann­lækni við­kom­andi. Runólfur segir skjölin þó ekki fyllt út í öllum leit­ar­málum. „Ef vís­bend­ingar eru um að hvarfið hafi verið með vilja, getur verið að skjölin séu ekki útfyllt og við­kom­andi fari því ekki á horfinna manna skrá.

Þegar lík­ams­leifar finn­ast fer síðan ákveðið ferli í gang og við aðstoðum lög­reglu­emb­ættin við þau mál. Tækni­deild lög­regl­unnar og lög­reglu­emb­ætti bera hit­ann og þung­ann af mál­unum. Við tryggjum að rétt­ar­meina­rann­sókn fari fram og hvaða kennsl eru mögu­leg: er hægt að fara í tann­lækna­stað­fest­ingu, þarf að fara í DNA eða er mögu­legt að taka fingraför, það eru þessi þrjú helstu kennsl,“ segir Runólfur. „Það er allur gangur á því hversu langan tíma tekur að bera kennsl á lík­ams­leifar. Það er meg­in­reglan að hægt sé að ná DNA-sýni og tím­inn að fá það greint tekur ekki langan tíma, getur hlaupið á vikum, mesta lagi mán­uðum. Tækni­deildin hér heldur utan um DNA-sýni, en við fáum stað­fest­ingu og leitum til Sví­þjóðar með þau. Það hefur hins vegar komið upp sú umræða að við getum farið að sinna þess­ari grein­ingu hér á landi.“

Manns­hvörf frá 1945

Kennslanefnd starfrækt í rúm 30 ár

Kennsla­nefnd rík­is­lög­reglu­stjóra hefur starfað frá árinu 1989, en hlut­verk hennar er að bera kennsl á óþekkt lík eða lík­ams­leifar. Undir kennsla­nefnd heyra rann­sókn­ar­lög­reglu­menn, tækni­menn lög­reglu; sér­fræð­ingur á líf­tækni­sviði (DNA), rétt­ar­læknir, rétt­artann­læknar, meina­fræð­ingur og læknir. Líkt og fram kemur í árs­skýrslum lög­regl­unnar tók rík­is­lög­reglu­stjóri þá ákvörðun árið 2014 að efla nefnd­ina, meðal ann­ars vegna stór­auk­ins ferða­manna­straums til lands­ins með auk­inni hættu á að bera þurfi kennsl á fleiri ein­stak­linga en fyrr, bæði ef ein­stak­lingar far­ast eða hópslys verða. Árið 2017 var fjölgað í nefnd­inni, en í henni eru þrír starfs­menn, og tæki voru keypt sem auð­velda störf tækni­manna, meðal ann­ars hand­röntgentæki sem auð­veldar störf rétt­artann­lækna í nefnd­inni, bæði á vett­vangi stór­slyss og við lík­skoðun og krufn­ingar og sér­stök mynda­vél ætluð rétt­artann­læknum til mynda­töku af munn­holi.

Skráin yfir horfna menn er meðal ann­ars byggð á upp­lýs­ingum frá lög­reglu­stjórum lands­ins sem ber að til­kynna manns­hvarf innan þriggja mán­aða frá því að það er til­kynnt, gömlum skjala­skrám og ann­ars konar geymslu­formum. Upp­lýs­ingar koma frá Slysa­varn­ar­fé­lag­inu sem svo hét, en í ein­hverjum til­vikum eru blaða­úr­klippur einu upp­lýs­ingar um við­kom­andi manns­hvörf.

„Við höfum rætt það margir lög­reglu­menn, sér­stak­lega þeir sem komnir eru á aldur, að við teljum fulla þörf á að vera með svona „cold case“-deild. Manns­hvörf eru einmitt vett­vangur sem gæti verið mjög snið­ugt að garfa í og væri gagn­legt fyrir lög­regl­una, en ákæru­sviðið var á síð­asta ári með 6.300 mál skráð og á meðan svo er þá er ekki tími til að skoða eldri mál. Þarna er sókn­ar­færi að nýta þá sem komnir eru á aldur til að koma inn í minnst hálfu starfi til að garfa í gömlun málum. Við í kennsla­nefnd­inni höfum, þegar tími vinnst til, farið á Þjóð­skjala­safnið og borið saman dag­setn­ingar og fleira, og gramsað þar í gömlum skjölum. Allavega að reyna að finna meira en gamlar blaða­úr­klippur.“

Elísabet Bahr Ing­ólfs­son
Hannes Pálsson

210 manns skráðir horfnir

Kennsla­nefnd heldur skrá yfir óupp­lýst manns­hvörf, í henni eru nöfn 120 ein­stak­linga, sem horfið hafa frá árinu 1945 og telj­ast enn týndir, 1 kona og 119 karlar. Skráin er fyrsta heild­stæða skrá yfir manns­hvörf á Íslandi en tölu­verð vinna liggur að baki hennar. Í árs­skýrsl­unni eru nöfn ein­stak­linga ekki birt, en upp­lýs­ingar eru birtar um árið sem við­kom­andi hvarf og aldur hans þegar hann hvarf, kyn, rík­is­fang, hvort hvarfið var á sjó eða landi og hvar talið er að við­kom­andi hafi horfið, til dæmis í Reykja­vík eða Skjálf­anda­flóa. Á skránni frá 1945 eru 65 manns­hvörf á sjó, 10 ein­stak­lingar sem hafa horfið hér á landi eru með erlent rík­is­fang, og stað­setn­ing þriggja manns­hvarfa er skráð óljós. Þrír ein­stak­lingar eru á lista yfir fólk sem hefur horfið erlendis á þess­ari öld, auk nokk­urra eldri mála sem flest eru tengt sjó­slysum, það yngsta frá árinu 1991, að sögn Runólfs. „Jón Þröstur Jónsson sem hvarf í Dublin á Írlandi í fyrra er kom­inn í skrána. Við höldum sér­stak­lega utan um manns­hvörf erlendis. Fjöldi horfinna ein­stak­linga fer eftir hvaða tíma við miðum við, við höldum utan um horfinna manna skrá og á henni eru, frá upp­hafi skrán­ingar, 210 manns,“ segir Runólfur. „Frá árinu 1945 eru þeir 120, í mál­unum sem eru eldri er kom­inn ákveð­inn ómögu­leiki í að stað­festa ein­hver kennsl.“

Sjá einnig: 120 manns­hvörf á Íslandi síðan 1945

Saknæmt athæfi skoðað í örfáum málum

Af þeim 120 manns­hvörfum frá 1945 sem eru á skrá kennsla­nefndar eru ein­ungis örfá mál þar sem rann­sakað var hvort sak­næmt afhæfi hafi átt sér stað. „Það fór tals­verð vinna í mál Valgeirs Víð­is­sonar og einnig Guð­mundar- og Geir­finns­málið, sem eru þau mál sem hafa einnig vakið mesta athygli. Meðan ekki er hægt að leggja fram skýr gögn um sak­næmt athæfi þá heita málin manns­hvörf,“ segir Runólfur.

Guð­mundur Ein­ars­son og Geir­finnur Ein­ars­son

„Mikilvægt fyrir fólk að fá lúkningu“

Í Mannlífi 31. jan­úar birt­ist við­tal við Birgittu Jóns­dóttur, en með hjálp DNA-grein­ingar tókst nú í jan­úar að bera kennsl á höf­uð­kúpu föður hennar, Jóns Ólafs­sonar, sem hvarf á aðfanga­dag árið 1987. Höf­uð­kúpan sem fannst árið 1994 var rann­sökuð á þeim tíma sem hún fannst með þeirri tækni og aðferðum sem til voru á þeim tíma, en síðan lá höf­uð­kúpan í geymslu lög­regl­unnar þar til hún var send í DNA-grein­ingu í fyrra. Nafn Jóns er því farið út af skránni um horfna menn.

Sjá einnig: Það verður að opna umræð­una um sjálfs­víg

„Við sáum það, eins og hjá Birgittu, hvað mik­il­vægt er fyrir fólk að fá lúkn­ingu í þessi mál og því erum við að fara í það verk­efni að byggja upp DNA-grunn til að stytta þennan grein­ing­ar­tíma. Ef við náum í ætt­ingja allra þeirra sem eru á horfinna manna skrá og þeir veita sam­þykki sitt þá er hægt að vinna málin strax. Þetta eru erfið mál og það tekur veru­lega á fjöl­skyldu og vini að fá ekki skýra nið­ur­stöðu,“ segir Runólfur Þór­halls­son, for­maður kennsla­nefndar og aðstoð­ar­deild­ar­stjóri í grein­ing­ar­deild rík­is­lög­reglu­stjóra.

„Ekki voru til DNA-sýni úr ætt­ingjum Jóns, en vinna er hafin við safna sýnum frá ætt­ingjum ein­stak­linga sem eru skráðir í gagna­grunni kennsla­nefndar sem óupp­lýst manns­hvörf. Ekki er ljóst hversu mörg sýnin verða, en lík­legt að þau muni skipta tugum. Runólfur segir fólk taka jákvætt í beiðni um DNA. „Við höfum fengið nokkrar fyr­ir­spurnir og nokkrir eru á leið­inni til okkar og aðrir búnir að veita sýni. Við ætlum að leyfa tím­anum aðeins að líða áfram og leyfa fólki að melta þetta áður en við förum í grein­ing­ar­vinnu að hafa uppi á mögu­legum ætt­ingjum. Og ein­hvers staðar þarf að draga lín­una, hversu langt aftur í tím­ann við viljum fara,“ segir Runólfur og telur lík­leg­ast að byrjað verði á yngri mál­unum.

Matthias Hinz og Thomas Grundt
Jón Þröstur Jónsson
Guð­laugur Krist­manns­son
Halldór Heimir Ísleifs­son
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina