Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Pabbi er alltaf með mér“

„Pabbi er alltaf með mér“
Helgi faðir Gísla

Gísli Már Helgason var 12 ára gam­all þegar faðir hans lést af slys­förum. Bugaður af sorg full­orðn­að­ist hann hratt, og fimm árum seinna þegar mið­ill sagð­ist vera með skila­boð frá föður hans að handan ákvað ung­ling­ur­inn að treysta því.  Í stað þess að bera skila­boð frá látnum föður segir Gísli mið­il­inn hafa brotið á sér, og það hafi markað líf hans. Mörgum árum síðar reyndi hann sjálfs­víg og í margar vikur var honum vart hugað líf.

Í við­tali við Mannlíf segir Gísli frá föð­ur­miss­inum, dómi yfir ger­anda, sjálfs­vígstil­raun­inni, og sál­ar­friðnum og ást­inni sem hann býr að í dag.

Sjá einnig: Inga birtir slá­andi myndir af Gísla Má berj­ast fyrir lífi sínu: „Ég ákvað greini­lega að besta leiðin væri að deyja“

„Ég verð að segja eins og er, það var léttir. Mér leið bara rosa­lega vel, get best lýst því sem gleði,“ segir Gísli aðspurður um hvernig til­finn­ing það hafi verið þegar dómur var kveð­inn upp yfir Þórhalli Guð­munds­syni miðli vegna kyn­ferð­is­brots. Föstu­dag­inn 5. júní stað­festi Lands­réttur 18 mán­aða fang­els­is­dóm Hér­aðs­dóms Reykja­ness yfir Þórhalli, fyrir að hafa brotið á rúm­lega tví­tugum dreng árið 2010. Árið 2013 ákvað Gísli að kæra Þórhall, og mættu báðir og gáfu skýrslu hjá lög­reglu, en málið fór ekki lengra, þar sem brotið var fyrnt.

Árið 1993, þegar Gísli var 17 ára gam­all, kynnt­ist hann Þórhalli á Siglu­firði. Mynd / Aðsend

Árið 1993, þegar Gísli var 17 ára gam­all, kynnt­ist hann Þórhalli á Siglu­firði. Síðar þegar Gísli var fluttur til Reykja­víkur hitti hann Þórhall aftur, sem sagð­ist vera með skila­boð frá látnum föður hans. Gísli fór á fund hjá Þórhalli og segir að þar hafi Þór­hallur brotið á honum með því að fróa honum án hans sam­þykkis. Það var sam­bæri­legt brot og Þór­hallur fékk dóm fyrir nú í júní. Gísli segir að dóm­ur­inn hafi verið opin­ber við­ur­kenn­ing á að Þór­hallur hafi einnig brotið gegn honum. „Mér finnst það. Þegar ég sagði mömmu frá því á sínum tíma að Þór­hallur hefði brotið gegn mér, þá nafn­greindi hún hann í færslu á Facebook og fékk rosa­lega mik­inn skít fyrir það, veit ég. Af því að hann var ekki dæmdur og ég var ekki búinn að kæra hann þegar ég sagði henni frá. En hún trúði mér strax og stóð með mér, hún missti vini vegna þessa máls,“ segir Gísli, sem hringdi í móður sína strax og hann sá fréttir um dóm­inn á föstu­dag. „Mér heyrð­ist hún bara fara að gráta, hún var svo glöð.“

Helgi faðir Gísla Mynd / Aðsend

„Pabbi er alltaf með mér“

Gísli er fæddur árið 1976, og þegar hann var átta ára skildu for­eldrar hans. Gísli flutti með föður sínum til Siglu­fjarðar, en móðir hans flutti til Reýkja­víkur. „Ég fékk að ráða hvar ég vildi búa, og ég er nátt­úr­lega strákur og valdi pabba,“ segir Gísli. „Hann er alltaf með mér,“ bætir hann við og bendir blaða­manni á mynd af föður sínum sem hangir á veggnum fyrir ofan stofu­sófann [Viðtalið við Gísla er tekið í gegnum Facetime, þar sem hann er búsettur í Svíþjóð].

Lestu nánar um málið í Mannlífi

Þann 26. júlí árið 1988 drukkn­aði Sigurjón Helgi Ást­valds­son, faðir Gísla, við Siglunes í óveðri, hann var 31 árs að aldri. Gísli var bug­aður af sorg eftir frá­fall föður síns, en aðspurður seg­ist hann enga aðstoð hafa fengið vegna sorg­ar­innar.

„Andlát pabba var það erf­ið­asta sem hefur komið fyrir mig og ég átti mjög erfitt með að fyr­ir­gefa honum, mér fannst hann hafa svikið mig. Áfallið mót­aði mig og gerði mig að þeim manni sem ég er í dag, ég náði aldrei aftur að verða krakki,“ segir Gísli. „Ég vildi bara vera eins og pabbi, hann var sterkastur og bestur og ég vildi vera hann ein­hvern veg­inn.“

Eftir föð­ur­miss­inn valdi Gísli að búa hjá móð­ur­ömmu sinni í stað þess að flytja til móður sinnar í Reykja­vík. „Ég vildi ekki fara suður með mömmu, ég vildi bara vera hjá ömmu. Mér fannst svo langt að fara á skíði í Reykja­vík, ég gat bara tekið skíðin á axl­irnar og gengið upp í fjall heima í Ólafs­firði. Ég hélt ég myndi verða áfram sami strákur og ég var, og ætl­aði að verða bestur á skíðum og þess háttar, en eins og ég segi þá breytt­ist ég.“

Hann seg­ist hafa brengl­ast eitt­hvað við frá­fall föður síns og sorg­ina, byrj­aði fljót­lega að drekka, en seg­ist aldrei hafa prófað annað en áfengi. „Þetta var svona konur og brenni­vín,“ segir Gísli og brosir. Þrátt fyrir drykkju, stund­aði hann skíði af miklum krafti og var góður, að eigin sögn.  „Ég stund­aði alltaf skíði á Ólafs­firði og var mjög góður þótt ég hafi verið aðeins að sulla. Ég keppti fyrir Ísland á Ólymp­íu­leikum Æskunnar árið 1992, og var ung­linga­meist­ari í svigi árið 1993.“

Lestu við­talið við Gísla í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina