Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kári Stefáns við forsætisráðherra: „Þetta gengur einfaldlega ekki“

Kári Stefáns við forsætisráðherra: „Þetta gengur einfaldlega ekki“

Íslensk erfða­grein­ing hættir að skima og slítur sam­skiptum við emb­ætti land­læknis.

„Frá og með deg­inum í dag 6. júlí munum við hætta öllum sam­skiptum við sótt­varn­ar­lækni og land­lækni út af SARS-CoV-2. Síðustu sýnin sem við munum afgreiða eru þau sem ber­ast til okkar á mánu­dag­inn 13. júlí,“ skrifar Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, ÍE, í opnu bréfi til Katrínar Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, sem birt­ist á Vísi fyrir skemmstu.

Þar fjallar Kári meðal ann­ars um þátt Íslenskrar erfða­grein­ingar í bar­átt­unni við COVID-19 far­ald­ur­inn og hvernig fyr­ir­tækið hafi lagt sitt af mörkum til að hefta úbreiðslu veirunnar. Til dæmis boð­ist til þess að skima eftir veirunni almennt meðan heil­brigð­is­kerfið skimaði eftir henni í þeim sem voru lasnir eða komu frá svæðum þar sem talin var mikil hætta á smiti. Eina veiru­rann­sókn­ar­stofa heil­brigð­is­kerf­is­ins hafi lent í ves­eni þegar leið á far­ald­ur­inn, því miður, þannig að Íslensk erfða­grein­ing hafi endað á því að höndla nær alla skimun í land­inu um nokk­urra vikna skeið hvort sem um var að ræða lasna eða heil­brigða. Það sé því ekki ólík­legt að sótt­varnir hefðu reynst erf­iðar án aðkomu fyr­ir­tæk­is­ins, sem hafi ekki bara tekið sýni og greint þau heldur hjálpað sótt­varn­ar­lækni og „öðrum sem stóðu í bar­átt­unni að sækja skiln­ing í nið­ur­stöður sem urðu til,“ skrifar Kári.

„Þú gengur út frá því sem vísu að við ætlum að halda áfram að sinna skimun­inni án þess að hafa nokkurn skap­aðan hlut með það að gera hvernig að henni er staðið sem heild í hugsun og verki.“

Þegar opna hafi átt landa­mærin hafi Íslensk erfða­grein­ing hins vegar ekki verið höfð með í ráðum. „Þótt það þætti ekki gagn­legt að hafa okkur með í skipu­lagn­ingu var gengið út frá því sem vísu í því skipu­lagi sem var sett saman að ÍE myndi bjóð­ast til þess að höndla alls konar þætti skimun­ar­innar,“ skrifar Kári. „Við féll­umst á að taka þátt í byrjun (ekki til eilífð­ar­nóns), en þegar við urðum ekki vör við neinar raun­veru­legar áætl­anir um að ein­hver tæki við af okkur sem hefði til þess burði urðum við óró­leg, vegna þess að án þess að sjá fyrir end­ann á okkar fram­lagi gátum við ekki rétt­lætt að halda þessu áfram vegna þess að okkar dag­vinna felst í allt öðru.“

Birtir Kári með þessu skrif­leg sam­skipti sín og for­sæt­is­ráð­herra, þar sem hann kemur því meðal ann­ars á fram­færi þeirri skoðun í tölvu­póst frá 1. júlí að búa þurfi til nýtt afl innan íslensks heil­brigð­is­kerfis til þess að höndla svona mál, Far­alds­fræði­stofnun Íslands, eins og hann orðar það, sem ætti að vera undir stjórn sótt­varna­lænis, innan land­lækn­is­emb­ætt­is­ins, og býðst Kári bæði til að koma að upp­byg­ingu þeirrar stofn­unar og hýsa hana, til að byrja með, innan veggja ÍE. Fallist rík­is­stjórnin ekki á að stofna apparat af þessu tagi fljót­lega muni ÍE „hætta allri aðkomu að skimun og öðrum þáttum sótt­varna, vegna þess að án þess verðum við að halda áfram að van­rækja þá vinnu sem okkur er ætluð“.

Í tölvu­pósti sem er dag­settur 4. júlí þakkar for­sæt­is­ráð­herra for­stjór­anum fyrir starf Íslenskrar erfða­grein­ingar og segir að verið sé að skoða þessa hug­mynd, sér­stökum verk­efna­stjóra verði falið að fara yfir málið og skila til­lögum til rík­is­stjórn­ar­innar eins og fljótt og auðið er, þó ekki síðar en 15. sept­em­ber.

Svarið virð­ist fara þvert í geðið á Kára.

„Það er ljóst á þessu svari þínu að þér er þetta vanda­mál ekki eins brátt og okkur,“ skrifar hann í opna bréf­inu til Katrínar. „Þú gengur út frá því sem vísu að við ætlum að halda áfram að sinna skimun­inni án þess að hafa nokkurn skap­aðan hlut með það að gera hvernig að henni er staðið sem heild í hugsun og verki. Og það sem meira er þér liggur ekk­ert á að setja saman apparat til þess að taka við af okkur. Þetta gengur ein­fald­lega ekki.“

Nið­ur­staðan er sú að Íslensk erfða­grein­ing ætli að hætta skimunum og slíta sam­starfi við land­lækn­is­emb­ættið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina