Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Afstaða Kára umdeild

Afstaða Kára umdeild

Ákvörðun Kára Stef­áns­sonar, for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar, um að hætta skimunum og slíta sam­starfi við land­lækn­is­emb­ættið fær væg­ast sagt mis­jafnar und­ir­tektir meðal almenn­ings. Margir telja ákvörðun Kára rétt­mæta en sumir eru þeirrar skoð­unar að sé for­stjór­inn sé ef til vill full­harður í afstöðu sinni.

„Frá og með deg­inum í dag 6. júlí munum við hætta öllum sam­skiptum við sótt­varn­ar­lækni og land­lækni út af SARS-CoV-2. Síðustu sýnin sem við munum afgreiða eru þau sem ber­ast til okkar á mánu­dag­inn 13. júlí.“ Þetta skrifar Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, ÍE, í opnu bréfi til Katrínar Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, sem birt­ist á Vísi í gær og vakti athygli enda hefur fyr­ir­tækið gegnt stóru hlut­verki í bar­átt­unni gegn útbreiðslu COVID-19.

Í bréf­inu til­kynnti Kári að þætti ís­lenskr­ar erfða­grein­ing­ar í skimun fyr­ir kór­ónu­veirunni væri lokið eft­ir 13. júlí og að fyr­ir­tækið hyggð­ist hætta sam­skiptum við land­lækni vegna kór­ónu­veirunn­ar.

Þá gagn­rýndi Kári stjórn­völd, sér­stak­lega Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, fyrir að ætla að skipa sér­stakan verk­efna­stjóra til að fara yfir málið þegar eng­inn á land­inu sé betur til þess fallin að skima og túlka gögn Íslensk erfða­grein­ing. „Þú ert hins veg­ar á þeirri skoðun að þú haf­ir verk­efna­stjóra sem gæti búið til á þessu betri skiln­ing og hjálpað til við að koma þjóð­inni áfram til fram­tíðar­skipu­lags,“ skrif­ar hann. „Okk­ar skoðun er sú að öll fram­koma þín og heil­brigð­is­mála­ráð­herra gagn­vart ÍE í þessu máli hafi mark­ast af virð­ing­ar­leysi fyr­ir okk­ur, fram­lagi okk­ar og því verk­efni sem við höf­um tekið að okk­ur í þess­um far­aldri.“

Skiptar skoð­anir eru á þess­ari yfir­lýs­ingu Kára, eins og sjá má á sam­fé­lags­miðlum þar sem lands­menn eru óhræddir við að láta skoð­anir sínar í ljós. Á meðan sumir segj­ast hafa fullan skiln­ing af á afstöðu for­stjór­ans í mál­inu finnst öðrum hann vera full­harður.

„Er ég einn um að vera risa­stórt spurn­inga­merki vegna atburða dags­ins í þessum skimun­ar­málum? Sko, skil ég það rétt að ekk­ert samn­ings­sam­band var sett á gagna­vrt ÍE um fram­kvæmd landamæra­skimunar? Skil ég það rétt að þrátt fyrir áætl­anir um tugús­unda króna kostnað við hverja sýna­töku (sem smám saman lækk­aði og lækk­aði) var ekki gert þar ráð fyrir greiðslu til ÍE,“ veltir Kristinn Hrafns­son, tals­maður Wikileaks, fyrir sér á Facebook.

Hjálmar Gíslason, stofn­andi og for­stjóri GRID tekur í svip­aðan streng. „Kári er sér­lund­aður og örugg­lega erf­iður og óút­reikn­an­legur í sam­starfi, en að það sé ekki búið að gera samn­inga við annan eins lyk­il­að­ila og Íslenska erfða­grein­ingu í áætlun um smit­varnir og landamæra­opnun á sama tíma og vonir heilu atvinnu­grein­anna hafa verið hengdar á og all­nokkrum fjár­munum þegar varið í mark­aðs­starf með til­liti til þess að þetta sam­starf haldi áfram er hreint ótrú­legt.“

„Skil Kára Stef­áns­son vel. Hann á í höggi við fólk sem skeytir hvorki um skömm né heiður eins og sést skýrt á fram­göngu rík­is­stjórn­ar­innar gagn­vart nýju stjórn­ar­skránni,“ segir Þor­valdur Gylfason, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands.

Sara Ósk­ars­son pírati skrifar á Facebook: „Geri fast­lega ráð fyrir að ákvarð­ana­fælni, seina­gangur og það að hægri höndin viti ekki hvað sú vinstri sé að gera í rík­is­stjórn­inni sé vanda­málið hér.“

Söngv­ar­inn Daníel Oliver hefur áhyggjur af því hvað taki við þegar þætti Íslenskrar erfða­grein­ingar lýkur. „Korter í að allt fari í steik.“

Ómar R. Valdi­mars­sin lög­fræð­ingur er á létt­ari nótum. „Fastir liðir eins og venju­lega: Komin tími til að ein­hver knúsi Kára og segi honum að hann sé bestur.“

„Nú er rúm vika frá því Kári Stef­áns­son sagði í við­tali að loka yrði land­inu ef hann færi í fýlu. Nú er hann kom­inn í fýlu og spurn­ingin er þá hvort rík­is­stjórnin mun falla á kné og gera eins og henni er sagt, eða hvort land­inu verður lokað frá næst­kom­andi mánu­degi. Þriðji mögu­leik­inn er svo sá að allt í einu verði ekki lengur talið mik­il­vægt að skima við landa­mærin. Stóru orðin eru síst spöruð og lík­legt er að ein­hver verði lát­inn kyngja ælunni. Það verður fróð­legt að mæta á upp­lýs­inga­fund Almanna­varna á morgun og spyrja nokk­urra vel val­inna spurn­ing,“ segir Björn Ingi Hrafns­son, athafna­maður og rit­stjóri Viljans.

„Mér finnst að Svandís og Katrín eigi bara að láta smíða ferða­há­sæti, vel bólstrað með plussi og jafn­vel ein­hverss­konar veld­is­sprota, handa Kára. Það dugar ekki minna til að bregð­ast við svona brot­hættri karl­mennsku,“ skrifar Kristín I. Páls­dóttir á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
6
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ