Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þórdís fær illa á baukinn fyrir COVID-djammið

Þórdís fær illa á baukinn fyrir COVID-djammið

COVID-djamm Þórdísar Kol­brúnar R. Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra Íslands, hefur vakið hörð við­brögð víða á sam­fé­lags­miðlum. Frétta­blaðið greindi fyrst frá því að hún hafi varið laug­ar­deg­inum með vin­konu­hópi sínum og kíkti út á lífið. Hún birti sjálf myndir af þessu á sam­fé­lags­miðlum en óhætt er að segja að þar hafi tveggja metra reglan verið möl­brotin.

Hún bar fyrir sig að að sótt­varn­ar­reglur á veit­inga­stöðum hafi verið fylgt og að hafi farið „út á lífið“ og hafi verið komin heim um mið­nætti. Að vísu loka allir skemmti­staðir og veit­inga­hús klukkan ell­efu. Á Facebook sagði Þórdís meðal ann­ars: „Ég átti lang­þráðan frídag með æsku­vin­konum mínum sem mér þykir vænt um og dag­ur­inn, sem ég hafði hlakka mikið til, var nær­andi. En dag­ur­inn í dag síður og ein­fald­ara hefði verið að ákveða að vera ekki með þeim.“

Gilda aðrar reglur?

Þó sumum finn­ist þetta stormur í vatns­glasi þá hafa við­brögð margra lands­manna verið hörð. Jóhann Páll Jóhanns­son, blaða­maður á Stund­inni, skrifar til að mynda á Facebook: „Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan Þórdís Kolbrún skrif­aði grein í Morg­un­blaðið undir yfir­skrift­inni „Þetta veltur á okkur“ þar sem hún hædd­ist að gagnrýni á stjórnvöld og sagði að það væri „okkar eigin hegðun“ sem réði úrslitum í baráttunni við veiruna, ábyrgðin almenn­ings. Margir hafa tekið hana á orð­inu, fært fórnir, frestað vina­hitt­ingum og sætt sig við skert lífsgæði til að fylgja ítrustu til­mælum sóttvarn­ar­yf­ir­valda.“

Hann heldur svo áfram og segir: „Á upp­lýs­inga­vef stjórn­valda er fólk beðið um að fylgja eft­ir­far­andi reglu: „Hvar sem fólk kemur saman og í allri starf­semi þarf að hafa hafa a.m.k. 2 metra á milli ein­stak­linga sem ekki deila heim­ili.“ Þetta eru fyr­ir­mæli sem stjórn­völd ætl­ast greini­lega til að almenn­ingur fari eftir. Ef það gilda ein­hverjar aðrar reglur um t.d. ráð­herra, æðstu stjórn­endur rík­is­ins eða fólk sem er skráð í Sjálf­stæð­is­flokk­inn, þá er langeðli­leg­ast að það sé bara tekið skýrt fram svo fjöl­miðlar séu ekki að valda Þórdísi Kolbrúnu og vin­konum hennar óþæg­indum að ósekju.“

Gamla fólkið fær ekki „langþráð frí“

Flestir sýna Þórdísi stuðn­ing á hennar eigin Facebook-síðu en þó eru sumir sem hjóla í hana. „Hefði ekki verið hægt að taka lang­þráð frí og hvíld með vin­konum og sýna um leið gott for­dæma og fara eftir regl­unum? Það eru mjög margir þreyttir á ástand­inu en við berum sam­eig­in­lega ábyrgð á að styðja hvort annað til að halda það út. Heilsa og hagur þjóðar veltur á því. Mér finnst súrt að sjá þetta þegar við vitum öll að til dæmis gamla fólkið okkar og lang­veikir ein­stak­lingar geta ekki tekið „lang­þráð frí“. Það er hægt að hitt­ast í garði heima með öruggri fjar­lægð, það er hægt að fara í göngur og margt fleira. Meira að segja með vin­kon­unum,“ skrifar Inga Björk Mar­grétar Bjarna­dóttir, for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sam­fylk­ing­ar­innar,“ í athuga­semd.

Selma nokkur tekur undir þetta og skrifar: „Sorry en þetta snýst ekki um að kom­ast í lang­þráð frí, sitja á bar eða aðrir við­burðir og fólki kemur ekki við hvar þú verð þínum frí­tíma en fólk sem býr ekki á sama heim­ili og maður sjálfur þarf 2 metra reglan að gilda. Sumarfrí, helg­ar­frí eða aðrir við­burðir skiptir ekki máli. Ég bý ein og fólk sem ég hitti sama hvort eru börnin mín, systk­ini eða aðrir nánir ætt­ingjar og vinir gildir 2 metra reglan og ég á alveg jafn ynd­is­legar stundir með þeim. Mann­eskja i þeirri stöðu sem þú ert þarft að fylgja fyr­ir­fyr­ir­mælum sem gefin eru af rík­i­s­tjórn­inni og ert þú einn af ráð­herrum þar sem tekur þátt í að gefa þau fyr­ir­mæli.“

Þórður fer eftir öllum reglum

Á Twitter er djam­mið líka for­dæmt af mörgum og má sjá nokkur dæmi um það hér fyrir neðan. Óskar Steinn Jón­ínu­son Ómarsson, vara­for­seti Ungra jafn­að­ar­manna, bendir á að af sam­fé­lags­miðlum Þórdísar að dæma þá hafi hún fengið tals­vert fríi í sumar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi