Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Forstjóri hafnar birtingu innherjaupplýsinga: „Man ekki hvernig þetta var orðað“

Forstjóri hafnar birtingu innherjaupplýsinga: „Man ekki hvernig þetta var orðað“
Guðjón Auð­uns­son, for­stjori Reita.

Guðjón Auð­uns­son, for­stjóri fast­eigna­fé­lags­ins Reita, hafnar því alfarið að inn­herj­a­upp­lýs­ingar hafi verið gefnar frá félag­inu áður en það til­kynnti opin­ber­lega um fyr­ir­hug­aða hluta­fjár­aukn­ingu í vik­unni. Hann segir engar slíkar hafa verið til hjá félag­inu fyrr en stjórnin tók ákvörðun um aukn­ing­una síð­ast­lið­inn mánu­dag og því hafi ekki verið hægt að miðla neinum inn­herj­a­upp­lýs­ingum í þreif­ing­unum sem áttu sér stað við hlut­hafa.„Þessu er fljótsvarað. Það er alls ekki svo­leiðis að inn­herj­a­upp­lýs­ingar hafi verið til staðar fyrir birt­ingu til­kynn­ingar mánu­dag­inn síð­asta. Ef það er eitt­hvað sem Kaup­höllin og Fjár­mála­eft­ir­litið skoðar þá er það bara hið besta mál,“ segir Guðjón.

Líkt og Mannlíf greindi frá þykja þreif­ingar Reita á gráu svæði og Kauphöll Íslands mun skoða hvort til­efni sé til rann­sóknar á með­ferð inn­herj­a­upp­lýs­inga fast­eigna­fé­lags­ins. Félagið til­kynnti í vik­unni um boðun hlut­hafa­fundar þann 22. sept­em­ber næst­kom­andi þar sem það hyggst auka hlutafé félags­ins um allt að 200.000.000 hluta eða um 9 millj­arða króna sé horft til núver­andi mark­aðsvirði Reita. Guðjón lýsti þvi yfir í sam­tali við Mark­að­inn að stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins hafi þreifað fyrir áhuga hlut­hafa á mögu­legri þátt­töku í útboð­inu áður en það var til­kynnt opin­ber­lega.

það skiptir höfuð máli að ákvörð­unin um hluta­fjár­aukn­ingu var ekki tekin þegar þessi sam­töl áttu sér stað

Guðjón ítrekar að öll sam­töl sem áttu sér stað hafi verið óform­leg og án allra skuld­bi­dinga. Hann bendir einnig á að sím­tölin hafi ekk­ert endi­lega verið við núver­andi hlut­hafa frekar en aðra. „Þannig er það bara að þú auð­vitað leitar þér upp­lýs­inga og hlerar umhverfið. Maður reynir að átta sig á því hvernig mark­að­ur­inn stendur. En það var aldrei þannig að við færum út með það að hluta­fjár­aukn­ing væri ákveðin og fyrir 24. ágúst voru engar inn­herj­ar­upp­lýs­ingar til. Það var alls ekki til­fellið,“ segir Guðjón.

Hluta­bréf Reita lækk­uðu um tæp­lega 6,5% á þriðju­dag eftir að til­kynnt var um fyr­ir­hugað hluta­fjár­út­boð. Sé horft til síð­astu 30 daga hafa bréf félags­ins lækkað um tæp 18% í verði. Stærstu hlut­hafar Reita eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir og má þar nefna Gildi, Líf­eyr­is­sjóð versl­un­ar­manna og Líf­eyr­is­sjóð starfs­manna rík­is­ins, sem sam­an­lagt eiga um 41% hlut í fast­eigna­fé­lag­inu.

Hafi Reitir gerst brot­legt við lög um verð­bréfa­við­skipti sem hafi skapað ójafn­ræði á mark­aði getur það varðar stjórn­vald­sekt Fjár­mála­eft­ir­lits­ins eins og for­dæmi eru fyrir. Einnig kann að vera að hlut­hafar sem telji sig hafa orðið fyrir tjóni vegna máls­ins vilji sækja skaða­bætur til félags­ins.

Aðspurður hvort það hafi verið viðrað í þreif­ing­unum að hluta­fjár­út­boð væri mögu­lega framundan seg­ist Guðjón ekki muna nákvæm­lega hvernig hlut­irnir voru orð­aðir. „Nei, ég man nú ekki hvernig það var orðað en það skiptir höfuð máli að ákvörð­unin um hluta­fjár­aukn­ingu var ekki tekin þegar þessi sam­töl áttu sér stað og málið því ekki þannig vaxið að það hafi mynd­ast neinar inn­herj­a­upp­lýs­ingar. Það er það sem skiptir megin máli,“ segir Guðjón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi