Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Átakafundur Reita – Hluthafar reiðir og lásu stjórnendum pistilinn

Átakafundur Reita – Hluthafar reiðir og lásu stjórnendum pistilinn
Guðjón Auð­uns­son, for­stjori Reita.

Hlut­hafar fast­eigna­fé­lags­ins Reita tók­ust á á hluta­fundi félags­ins sem hald­inn var í dag á Hótel Hilton. Á fund­inum lagði stjórn fyr­ir­tæk­is­ins fram til­lögu um heim­ild til þess að auka hlutafé Reita um allt að 120 millj­ónir hluta. Tillagan var sam­þykkt en upp­haf­lega hafði stjórn Reita hug á því að auka hlutafé um 30 pró­sent eða 200 millj­ónir hluta en vegna óánægju hlut­hafa var fallið frá því. Enn ríkir hins­vegar mikil reiði meðal hlut­hafa fyr­ir­tæk­is­ins sem vilja að stjórn þess minnki útgáfu hluta­fjár enn frekar ef ekki á að koma til flótta minni hlut­hafa.

Óánægðir hluthafar og engin ávöxtun

Óhætt er að segja að á fund­inum hafi komið fram skýr óánægja hlut­hafa með til­lögu stjórnar og stjórn­hætti félags­ins. Baldvin Val­týs­son var einn þeirra sem tók til máls og tal­aði hann fyrir hönd fjár­fest­inga­fé­lags­ins Kirkju­stígs ehf.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs sagð­ist Baldvin ekki geta orða bund­ist vegna óánægju sinnar og stjórn­hátta fyr­ir­tæk­is­ins. Hann sagði til­lögu stjórnar Reita skaða almenna hlut­hafa og að ekki hafi verið gætt hófs eða jafn­ræðis. „Allur aðdrag­andi og fram­kvæmd á þess­ari aðgerð er til þess fall­inn að rýra traust stjórn­ar­innar á mark­aði,” sagði Baldvin.

Baldvin sagði ekki nauð­syn­legt að ráð­ast í svo umfangs­mikla hluta­fjár­hækkun og það geti bein­línis skaðað hags­muni almennra hlut­hafa. Samkvæmt heim­ild­ar­mönnum Mannlífs á fund­inum bætti hann svo við:

„Allir grein­endur og mark­aðs­að­ilar urðu furðu lostnir enda lækk­uðu bréfin strax um rúm 6 pró­sent. Það fer ekki saman hljóð og mynd.“

Reitir skráðu sig í Kauphöll Íslands í mars árið 2015 og var upp­hafs­gengi fyr­ir­tæk­is­ins 63,85 en við lokum mark­aða stóð gengi Reita í 46,10. Bréf félags­ins hafa því lækkað um 28 pró­sent á þeim fimm árum sem liðin eru frá skrán­ingu.

Meirihluti hluthafa á móti

Líf­eyr­is­sjóðir, fjár­fest­inga­sjóðir, trygg­inga­fé­lög og ýmsir einka­fjár­festar voru í hópi þeirra 29 hlut­hafa sem voru á móti til­lögu stjórnar Reita sem sam­þykkt var á fund­inum í dag. Hins­vegar greiddu 21 hlut­hafi með til­lög­unni sem var sam­þykkt með meiri­hluta greiddra atkvæða og náðu stórir hlut­hafar þannig að knýja fram umrædda til­lögu. Um 51 pró­sent hluta­fjár er í eigu fimm stærstu hlut­hafa fyr­ir­tæk­is­ins sem eru allir líf­eyr­is­sjóðir. „Félagið þarf ekki að fara í hluta­fjár­út­boð þar sem staða félags­ins er sterk,“ hafði Baldvin á orði á fund­inum.

Kauphöllin rannsakar „þreifingar“ forstjórans

Gustað hefur í kringum Guðjón Auð­uns­son for­stjóri Reita und­an­farið en Mannlíf fjall­aði nýlega um „þreif­ingar“ Guðjóns við stærstu hlut­hafa fyr­ir­tæk­is­ins í aðdrag­anda umrædds hlut­hafa­fundar. Kaup­höllin er með málið í skoðun og hefur ekki lokið rann­sókn sinni og FME vill ekki tjá sig um mála­vexti. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs kunna „þreif­ingar“ for­stjór­ans að hafa valdið ójafn­ræði meðal fjár­festa á mark­aði sem gæti varðað við lög um verð­bréfa­við­skipti. Í þeirri skoðun skiptir máli hvers kyns upp­lýs­ingar Guðjóns voru, við hverja hann ræddi og hvort þeir aðilar hafi nýtt sér upp­ræddar upp­lýs­ingar og átt við­skipti með bréf í Reitum eða öðrum fast­eigna­fé­lögum. Inn­herj­a­upp­lýs­ingar telj­ast almennt þær upp­lýs­ingar sem hafa verð­mót­andi áhrif á fyr­ir­tæki á mark­aði þegar þær eru gerðar opin­berar. Hluta­bréf í Reitum lækk­uðu um 6 pró­sent við til­kynn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins um aukn­ingu hluta­fjár og höfðu þá fallið um 18 pró­sent á 30 dögum fyrir umrædda til­kynn­ingu. Viðræður Guðjóns, hvort sem þær voru form­legar eða óform­legar, kunna því að hafa haft áhrif á ákvarð­anir fjár­festa á mark­aði.

Kauphöll Íslands vildi ekki tjá sig um málið í dag þegar eftir því var leitað. Að öðru leyti en því að stað­festa að rann­sókn hafi farið fram. Hvort henni væri lokið fékkst ekki upp­lýst og heldur ekki hvort málið hafi mögu­lega verið sent áfram til FME.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ