Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Íslendingar sem trúa ekki á COVID æfir yfir grímuskyldu: „Þetta stefnir bara í eina átt“

Íslendingar sem trúa ekki á COVID æfir yfir grímuskyldu: „Þetta stefnir bara í eina átt“
For­síðu­mynd hóps­ins Coviðspyrnan er þessi skop­mynd. Hún er nokkuð lýsandi fyrir hug­myndir margra þar. Ekki kemur fram hver teikn­aði hana.

Á dög­unum var tekin upp grímu­skylda í fram­halds- og háskólum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að koma í veg fyrir frek­ari útbreiðslu á COVID. Þetta þótti nokkuð óum­deilt meðal flestra enda mark­miðið að stöðva plág­una sem flestir hata. Innan hóps­ins Coviðspyrnan varð þó allt brjálað. Innan hóps­ins eru nokkrir þræðir um málið og margar athuga­semdir við hvern þráð. Hópurinn telur tæp­lega þús­und Íslend­inga sem ýmist efast um til­vist COVID eða finnst ríkið ganga of langt.

Linda Jóhanns­dóttir er mjög virk innan hóps­ins og er óhætt að segja að henni lít­ist ekki á blik­una. Hún stofnar þráð og skrifar: „Við verðum að reyna að stoppa þessa grímu­skyldu ung­menn­ana okkar núna. Þetta er bara upp­hafið af skelfi­legri stefnu sem mun skaða unga fólkið og við bara getum ekki látið þetta yfir þau ganga. Ég mæli með að við spyrjum þrjár spurn­ingar og sendum á alla þing­menn og fálka­orðu­tríóið, við öll, hvert og eitt einu sinni á dag, alla daga þar til við fáum svör. Það mun virki­lega pirra þetta fólk og gera þeim lífið erfitt. Spurn­ing­arnar mega bara snúa að þessu nýjasta, grímu­skylda ung­menna. Hvað segið þið um það? Næst verður grímu­skylda í barna­skólum, svo grímu­skylda í búðum, úti, alls­staðar, svo bólu­setn­ing. Þetta stefnir bara í eina átt.“

Grímur hættulegri en COVID

Hún spyr svo nokkrurra spurn­inga: „Ein spurn­ing: Afhverju þarf ungt fólk, sem hvorki smitar né veik­ist alvar­lega af Covid að vera með grímur allan dag­inn í skóla? Hver eru vís­inda­legu rökin fyrir þessu (ef ein­hver)? Önnur til­laga að spurn­ingu: Hefur ein­hver hugsað út í skað­legar afleið­ingar af 8 klst grímunotkun, and­legar og lík­am­legar fyrir unga fólkið okkar?“

Nokkur fjöldi virð­ist alveg sam­mála Lindu og almenn nið­ur­staða að senda þessar spurn­ingar á sem flesta rík­is­starfs­menn og skóla­stjóra. Ein kona Kristín Johansen, eig­andi skó­búð­ar­inar Fló, birtir skjá­skot af tölvu­pósti sínum til skóla­stjóra Versló. Hún seg­ist von­svikin og útskýrir: „Grímur hefta súr­efn­is­flæði í lík­amann! Það er nauð­syn­leg­asta fyrir frumur til að vinna á veirum/vírusum er m.a. súr­efni! Þetta er því galið!“ Hún seg­ist því hafa ákveðið að dóttir hennar muni ekki nota grímu.

Þessi umræða heldur svo áfram þar til ein kona segir: „Skólinn er ekki þess virði að þurfa að beigja sig fyrir svona fífla­skap“.

Ráðamenn fá bréf daglega

Þetta er þó hvergi nærri eini þráð­ur­inn um þetta mál­efni innan þessa hóps. Í öðrum þræði er því velt upp hvernig megi stoppa grímu­skyldu með vísan til laga. „Meira kjaftæðið! Verð bara reið að sjá þetta. Að venju­legir Íslend­ingar skuli láta plata sig svona í að veikja ónæm­is­kerfi barn­anna okkar! Það mik­il­væg­asta sem við þurfum er súr­efni  Hvar eru for­eldr­arnir? Ég myndi ekki sætta mig við þetta,“ segir Dóra Sig­urð­ar­dóttir og fær nokkur fjölda læka.

Því svarar Helga Vilborg Sig­ur­jóns­dóttir trú­boði: „Við erum nokkur að vinna í þessu en ég vildi óska að það væru fleiri for­eldrar sem sjá hversu fárán­legt þetta er og myndu taka slag­inn með okkur“. Í þeim þræði upp­lýsir fyrr­nefnd Linda að ráða­menn Íslands fái dag­lega bréf frá henni. Erna Ýr Öldu­dóttir, sem hefur vakið athygli fyrir öfga­kenndar skoð­anir í ýmsum mál­efnum, skrifar þar: „Það er engin laga­stoð fyrir ýmsu af því sem stjórn­völd eru að skylda og sekta fólk til að gera.“

„Hvernig er fólk svona heimskt?“

Inga G. Hall­dórs­dóttir er svo með ákveðið ráð til að stöðva grímu­skyldu. „Það sem ég held að þurfi að ger­ast er að ein­hver neitar að nota grímu vegna þess að það vantar vís­inda­legan rök­stuð­ing fyrir því að nota hana og er rekin út fyrir það, tekur það upp og fer í mál. Þá þurfa þeir að sanna að það sé rétt­læt­an­legt að bera upp svona grímu­skyldu. Það þarf held ég eitt­hvað svo­leiðis að ger­ast. Þá er bara spurn­ing hver­ing farið er að því, hvort þurfi lög­fræð­ing með í slag­inn. Þurfum að leggj­ast yfir það hvernig veið getum borið okkur að við það.“

Í þriðja þræð­inum um grímu­skyld­una eru með­limir hóps­ins miður sín og segja þetta ömur­legt. Einn fárra karla sem tjáir sig, Páll Heimir Einarson, skrifar þar: „Viđ erum ađ gera börnin ađ tauga­hrùgum. Þau verđa hrædd viđ allt.“

Því svarar Agnes Thor­steins: „Nú þarf að byrja að mót­mæla. Hvernig er fólk svona heimskt?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Bókaunnendum gefst færi á að kynnast tveimur íslenskum skáldsögum og nýrri þýðingu áður en jólabókaflóðið skellur á.
Frétt

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag