Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skelfilegar tölur frá lögreglu: Sjálfsvígum snarfjölgar í Covid-faraldri

Skelfilegar tölur frá lögreglu: Sjálfsvígum snarfjölgar í Covid-faraldri
Mynd / Skjáskot RÚV

Sjálfs­vígstil­fellum hér á landi hefur fjölgað um 67 pró­sent frá því í fyrra. Tölur gefa til kynna að fleiri hafi mögu­lega fallið fyrir eigin hendi í kór­ónu­veiru­faldr­inum heldur en úr Covid-19. Vís­bend­ingar um þetta má finna í bráða­birgða­tölum lög­reglu sem liggja nú til með­ferðar hjá Land­lækni.

Hlut­fallið á mögu­lega eftir að breyt­ast hjá emb­ætti land­læknis því nú fer í hönd tíma­frekt ferli til stað­fest­ingar dána­meina þeirra ein­stak­linga sem lög­reglan hefur skráð hjá sér sem sjálfs­víg. Hildur Guðný Ásgeirs­dóttir, verk­efn­is­stjóri lýð­heilsu hjá Land­lækn­is­emb­ætt­inu, segir töl­urnar gefa alvar­legar vís­bend­inar um tíðni sjálfs­víga í covid-far­aldr­inum en þær beri þó að túlka með varúð því um sé að ræða bráða­birgða­töl­fræði.

Bæði emb­ætti land­læknis og rík­is­lög­reglu­stjóra neita aftur á móti að afhenda töl­urnar og vísa á hvort annað. Samkvæmt áreið­an­legum heim­ildum Mannlífs hefur sjálfs­vígum fjölgað nokkuð á tíma­bil­inu sem kór­ónu­veiran hefur herjað á landið og harðar sótt­varn­ar­að­gerðir með til­heyr­andi ein­angrun verið í gangi. Tölur lög­regl­unnar sýna að það hafa 30 ein­stak­lingar svipt sig lífi á meðan þeir voru 18 tals­ins sam­kvæmt skrán­ingu lög­reglu á sama tíma í fyrra. Það er aukn­ing um 12 látna, eða því sem nemur 67 pró­senta aukn­ingu, sem er tveimur fleiri en lát­ist hafa úr Covid-19 hér­lendis í far­aldr­inum. Sé horft til árs­ins 2018 til sam­an­burðar þá höfðu 22 fallið fyrir eigin hendi á sama tíma­punkti, sem er 36 pró­sentum minna en í ár.

Þetta ástand sem töl­urnar gefa til kynna hefur valdið miklum áhyggjum í heil­brigð­is­kerf­inu og þá ekki síst þeim hluta þess sem hlúir að geð­sjúkum. Embætti land­læknis tók bráða­birgða­tölur lög­reglu það alvar­lega að boðað var til sam­ráðs­fundar í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu með aðilum þeirra stofn­ana og sam­taka sem sinna þjón­ustu sem tengj­ast sjálfs­vígum. Sá fundur fór fram 2. sept­em­ber síð­ast­lið­inn. Þar voru áður­nefndar tölur lagðar fyrir hóp­inn, sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs. Heil­brigð­is­ráðu­neytið neitar einnig að afhenda fund­ar­gerð frá áður­nefndum sam­ráðs­fundi þar sem töl­fræðin var til umfjöll­unar. Ráðu­neytið vísar á Land­lækni til svara.

„Mik­il­vægt er að grípa ein­stak­linga sem gætu fundið fyrir sjálfs­vígs­hugs­unum strax og beina þeim í átt­ina að hjálp­inni.“
Hildur Guðný Ásgeirs­dóttir. Mynd / Skjáskot RÚV

Þöggun virð­ist ríkja yfir töl­unum og þeir sem málið vinna neita að opna bæk­urnar þrátt fyrir ítrek­aðar óskir Mannlífs þess efnis og vísa hver á annan. Hildur Guðný ítrekar mik­il­vægi þess að fara var­lega í túlkun bráða­birða­talna lög­regl­unnar því nú þurfi að ráð­ast í tíma­frekt ferli til stað­fest­ingar dán­ar­meina. Eins og áður sagði telur hún þó aðspurð að töl­urnar gefa alvar­lega vís­bend­ingu um það ástand sem er hjá fólki sem glímir við and­lega sjúk­dóma. Sam­ráðs­hópur um sjálfs­vígs­for­varnir hefur reglu­lega komið saman frá því að far­ald­ur­inn hófst hér á landi til þess að vinna gegn óheilla­þró­un­inni.

„Áhættu­þættir sjálfs­víga eru margir þar sem flókið sam­spil félags­legra, umhverfis og lík­am­legra þátta koma saman. Aukið álag eins og verður í heims­far­aldri getur haft áhrif á líðan ein­stak­linga og því er að sjálf­sögðu mik­il­vægt að fylgj­ast sér­stak­lega vel með og grípa til aðgerða er varða sjálfs­vígs­for­varnir. Ef byggt er á fyrri rann­sóknum, þá hefur helsta áhyggju­efnið verið að langvar­andi aukn­ing á atvinnu­leysi geti haft áhrif á tíðni sjálfs­víga, eins og sást víða erlendis í kjöl­far krepp­unnar 2008,“ segir Hildur Guðný og bætir við:

„Mik­il­vægt er að grípa ein­stak­linga sem gætu fundið fyrir sjálfs­vígs­hugs­unum strax og beina þeim í átt­ina að hjálp­inni.“

Fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir er minnt á Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, og net­spjallið. Þjálfaðir og reynslu­miklir sjálf­boða­liðar á öllum aldri svara þeim sím­tölum og spjöllum sem ber­ast. Fullum trún­aði er heitið, núm­erið er ókeypis og opið allan sól­ar­hring­inn.
Píeta sam­tökin bjóða einnig upp á þjón­ustu í síma 552-2218 fyrir fólk í sjálfs­vígs­hættu og með sjálfs­skaða­hegðun. Númerið er opið allan sól­ar­hring­inn.
Þá er einnig hægt að ná net­spjalli við hjúkr­un­ar­fræð­inga í gegnum vef­inn heilsu­vera.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi