Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

„Alveg klár vísbending að tíðni sjálfvíga er að aukast“

„Alveg klár vísbending að tíðni sjálfvíga er að aukast“

Þeim hefur fjölgað um ríf­lega helm­ing frá því í fyrra til­fell­unum þar sem fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir leitar til Píeta sam­tak­anna. Aukn­ingin nemur raunar 121 pró­senti. Fram­kvæmda­stjóri sam­tak­anna segir skýrar vís­bend­ingar uppi um fjölgun sjálfs­víga.

Sem dæmi þá voru sjálfs­vígs­við­tölin hjá Píeta sam­tök­unum 310 tals­ins í síð­asta mán­uði á meðan þau voru 140 tals­ins á sama tíma í fyrra. Samtökin sinna for­varn­ar­starfi gegn sjálfs­vígum og sjálfs­skaða. Kristín Ólafs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Píeta sam­tak­anna, hefur miklar áhyggjur. „Hjá okkur merkjum við gíf­ur­lega aukn­ingu og við höfum að sjálf­sögðu miklar áhyggjur. Það blasir við. Það er alveg óhætt að full­yrða það að okkur er að líða verr núna en und­an­farið. Tölur gefa það klár­lega til kynna,“ segir Kristín.

Vís­bend­ingar eru um að sjálfs­vígstil­fellum hér á landi hafi fjölgað um 67 pró­sent frá því í fyrra. Tölur gefa til kynna að fleiri hafi mögu­lega fallið fyrir eigin hendi í kór­ónu­veiru­faldr­inum heldur en úr Covid-19. Vís­bend­ing­arnar má finna í bráða­birgða­tölum lög­reglu sem liggja nú til með­ferðar hjá Land­lækni.

„Það er sannað og vitað að félags­leg ein­angrun hefur áhrif á geð­heilsu fólks.“

Hlut­fallið á mögu­lega eftir að breyt­ast hjá emb­ætti land­læknis því nú fer í hönd tíma­frekt ferli til stað­fest­ingar dána­meina þeirra ein­stak­linga sem lög­reglan hefur skráð hjá sér sem sjálfs­víg. Hildur Guðný Ásgeirs­dóttir, verk­efn­is­stjóri lýð­heilsu hjá Land­lækn­is­emb­ætt­inu, segir töl­urnar gefa alvar­legar vís­bend­ingar um tíðni sjálfs­víga í covid-far­aldr­inum en þær beri þó að túlka með varúð því um sé að ræða bráða­birgða­töl­fræði.

Sjá meira hér: Skelfi­legar tölur lög­reglu – Sjálfs­vígum snar­fjölgar í covid-far­aldri.

Tölur lög­regl­unnar sýna að það hafa 30 ein­stak­lingar svipt sig lífi í ár, á meðan þeir voru 18 tals­ins sam­kvæmt skrán­ingu lög­reglu á sama tíma í fyrra. Það er aukn­ing um 12 látna, eða því sem nemur 67 pró­senta aukn­ingu, sem er tveimur fleiri en lát­ist hafa úr Covid-19 hér­lendis í far­aldr­inum. Sé horft til árs­ins 2018 til sam­an­burðar þá höfðu 22 fallið fyrir eigin hendi á sama tíma­punkti, sem er 36 pró­sentum minna en í ár.

Kristín leggur áherslu á að það sé ekki hægt að benda á harðar sótt­varn­ar­reglur einar sem orsaka­vald og hún segir það jákvætt að fólk sé að leita sér hjálpar. Aðspurð seg­ist hún hjart­an­lega sam­mála því að ekki megi þó loka aug­unum fyrir afleið­ingum sótt­varn­ar­að­gerð­anna. „Það er sjálf­sagt hægt að kenna Covid um. Það er sannað og vitað að félags­leg ein­angrun hefur áhrif á geð­heilsu fólks. Á sama tíma þarf að bera virð­ingu fyrir ástand­inu eins og það er. Það má samt ekki loka aug­unum fyrir vanda­mál­inu því það er hópur fólk sem finnst þetta afskap­lega erfitt. Við verðum að geta gripið það fólk og hjálpað því,“ segir Kristín sem telur að íslenskt sam­fé­lag sé rétt að byrja glímuna við áhrif far­ald­urs­ins. Aðspurð segir hún við­bragðs­að­ila í sjálfs­vígs­vörnum koma til með að bæta enn frekar í aðstoð­ina.

„Rann­sóknir sýna að áhrif far­ald­urs byrja að koma fram mán­uðum á eftir. Það þarf að líta þetta mjög alvar­legum augum. Það er alveg klár vís­bend­ing um það að tíðni sjálf­víga er að aukast og við berum þá sam­fé­lags­legu ábyrgð að hjálpa hvert öðru.“

Fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir er minnt á Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, og net­spjallið. Þjálfaðir og reynslu­miklir sjálf­boða­liðar á öllum aldri svara þeim sím­tölum og spjöllum sem ber­ast. Fullum trún­aði er heitið, núm­erið er ókeypis og opið allan sól­ar­hring­inn.
Píeta sam­tökin bjóða einnig upp á þjón­ustu í síma 552-2218 fyrir fólk í sjálfs­vígs­hættu og með sjálfs­skaða­hegðun. Númerið er opið allan sól­ar­hring­inn.
Þá er einnig hægt að ná net­spjalli við hjúkr­un­ar­fræð­inga í gegnum vef­inn heilsu­vera.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum