Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vinkonur á sóttvarnarhóteli – „Ég hélt hún væri að deyja“

Vinkonur á sóttvarnarhóteli – „Ég hélt hún væri að deyja“

Rakel Ósk Hall­dórs­dóttir er ein þeirra sem sýkt­ist í COVID-19 hópsmiti á Irishman Pub um miðjan sept­em­ber sem talið er vera upp­haf þriðju bylgju far­ald­urs­ins hér á landi. Rakel vann úti á landi í sumar og hafði tekið sótt­varnir mjög alvar­lega, haldið sér að mestu til hlés. Hún var í göngutúr þennan föstu­dag með vin­konu sinni þegar þriðja vin­konan hringdi og bað þær að koma með sér út að borða. Þær voru til í það, langt síðan þær allar hefðu gert sér daga­mun.

„Þetta var svona skyndi­á­kvörðun hjá okkur vin­kon­unum að fá okkur að borða og svo förum við í einn bjór á Irishman Pub og vorum þar inni í 30 mín­útur og ég var komin heim á mið­nætti.“

Rakel tekur fram að sótt­varnir á staðnum hafi verið upp á 10 og engum hafi verið hleypt inn án þess að hafa borð. Þetta gerði það að verkum að röðin fyrir utan var löng, röð sem þær ákváðu að standa í.

Það reynd­ist afdrifa­rík ákvörðun.

Óvenjulegar og miklar harðsperrur

„Daginn eftir fór ég í heils­dags­göngu og var bara rosa hress. Ég mætti svo í vinn­una á mánu­dag og þriðju­dag og fór í rækt­ina báða dag­ana og var að lyfta.“

Þegar Rakel vakn­aði svo á mið­viku­deg­inum var hún með óvenju­legar og miklar harð­sperrur. „Ég hef bara aldrei á ævi minni upp­lifað annað eins,“ segir Rakel sem hefur stundað lík­ams­rækt um langt skeið og er í góðu formi. Auk þess að stunda rækt­ina af fullum krafti er Rakel í fjar­þjálfun hjá frænku sinni sem er líka sjúkra­þjálf­ari. „Ég hringdi í hana þarna á mið­viku­deg­inum og sagð­ist halda að ég væri hrein­lega með vöðva­eitrun,“ segir Rakel hlæj­andi. Rakel seg­ist ekki hafa staðið undir sjálfri sér en hafi þó ekki upp­lifað sig veika. „Frænka mín sagði þá ,,þetta eru ekki harð­sperrur Rakel. Ég veit alveg hverju þú varst að lyfta og það var ekki svona þungt,““ segir Rakel og hlær.

Frænkan hvatti hana til að fara strax heim úr vinn­unni og mæla sig. „Ég gerði það og var komin með 39 stiga hita.“ Rakel seg­ist hafa verið svo­lítið brugðið. „Þá var ég búin að vera á skrif­stof­unni á fundum með fullt af fólki. Ég hringdi strax í vinn­una og lét vita að ég kæmi ekki dag­inn eftir.“

Þennan dag áger­ast verkirnir og haus­verk­ur­inn.

„Svo hringir vin­kona mín í mig, sú sem ég hafði farið með út að borða og á Irish og segir – „ég er með COVID.“ Þá varð ég skít­hrædd.““

Greindist fyrst neikvæð

Rakel hafði strax sam­band við Heilsu­veru og óskaði eftir sýna­töku. Hún lok­aði sig af inni í her­bergi, lét vinn­una vita hver staðan væri og hvatti þau til að sótt­hreinsa allt.

„Ég fer í próf stuttu seinna og grein­ist nei­kvæð.“ Rakel var samt hunds­löpp og ákvað engu að síður að halda sér áfram til hlés. „Svo varð ég bara meira og meira lasin. Ég svaf og svaf.“

Rakel lét þriðju vin­kon­una vita og hvatti hana til þess að fara í COVID-próf þrátt fyrir að hún sýndi engin ein­kenni – hún reynd­ist jákvæð. Þetta var á föstu­degi, viku eftir kvöldið afdrifa­ríka. Í öllu þessu ferli hafði Rakel verið í sam­bandi við vin­konu sína sem er hjúkr­un­ar­fræð­ingur á COVID-deild­inni.

„Hún hringir í mig og segir bara „þú ert með COVID“ og ég þræti fyrir það en hún segir mér að fara aftur próf sem ég og geri og fæ þá jákvæðar nið­ur­stöður.““

Kaus að „tékka sig inn“ á sóttvarnarhótel

Rakel segir að þá hafi tekið við mjög skrýtið ferli. „Ég var auð­vitað hrika­lega lasin en þurfti að gera alls­konar ráð­staf­anir, hringja í fullt af fólki og þar með talið vinn­una. Ég gerði það fyrst – áður en ég lét mann­inn minn vita,“ segir hún og hlær. „Ég höndl­aði ekki að fara út úr her­berg­inu, ég vissi að synir mínir tveir myndu taka þetta mjög nærri sér, svo ég græj­aði bara allt fyrst og svo fór ég fram.“

Þá hringdi hjúkr­un­ar­fræð­ingur í Rakel og fór yfir með henni hvaða þýð­ingu þetta allt saman hefði og til hvaða ráð­staf­anna Rakel og fjöl­skylda þyrfti að grípa til. Þegar hún hafði velt upp kostum og göllum og þegar mað­ur­inn hennar reynd­ist nei­kvæður, ákvað Rakel að fara á sótt­varn­ar­hótel til að forða honum og drengj­unum frá smiti og til að stytta þeirra tíma í sótt­kví.

„Ég byrj­aði að pakka, börnin skælandi og allt eitt­hvað hræði­legt. Ég fár­veik á leið í tveggja vikna ein­angrun og þeir í sótt­kví. Þetta var allt saman mjög skrýtið.“ Rakel lét vin­konu sína vita og hún vildi með. Þær ákváðu að deila her­bergi. „Áður en við löbbum inn setjum við á okkur grímur og hanska. Okkur er fylgt upp á her­bergi.“ Hurðin lok­ast og það þyrmdi yfir þær. Tvær vin­konur, fár­veikar í pínu litlu her­bergi. Hér yrðu þær –  a.m.k. næstu tvær vik­urnar.

Sendi marga í sóttkví en smitaði engan

Rakel seg­ist eiga yfir­mönnum sínum mikið að þakka. „Verst var auð­vitað að senda svona marga í sótt­kví og lang flestir voru sam­starfs­fólk. Yfirmenn mínir tóku strax sam­talið við mig og sögðu mér að hrista af mér allt sam­visku­bit. Þetta væri ekk­ert mér að kenna. Þau tóku líka strax alla ábyrgð af mér og sögðu mér að ein­beita mér að því að ná bata. Það var eng­inn að dæma mig og það skipti mig miklu máli í öllu þessu ferli.“

Rakel seg­ist þakk­lát fyrir að hafa engan smitað svo vitað sé til og í raun er það ótrú­legt þar sem hún deildi rúmi með maka sínum í viku eftir að hún smit­að­ist.

„Ég hélt hún væri að deyja“

En aftur að sótt­varn­ar­hót­el­inu. „Sem betur fer erum við vin­kon­urnar bara mjög góðar saman. Við deildum þarna pínu­litlu her­bergi, eitt borð við vegg, sjón­varp með engu HDMI tengi, bara línu­leg dag­skrá, RÚV og útlenskar stöðvar. En við sváfum mikið. Þetta var bara algjört veik­inda­bæli.“

Komið er með mat á her­bergin þrisvar á dag og til að taka við matnum setja allir á sig grímur og gæta sótt­varna.

,,Starfs­fólkið er frá­bært og ég get ímyndað mér að fyrir fólk sem er eitt í her­bergi þá er bara þessi félags­skapur gríð­ar­lega dýr­mætur í þess­ari ein­angrun.“

Vel er fylgst með líðan fólks sem dvelur í sótt­varn­ar­hús­inu við Rauð­ar­árs­stíg og gripið er inn í eftir þörfum. Rakel segir að það hafi fyllt hana öryggi.

„Vinkona mín þurfti að fara einu sinni upp á Land­spít­ala, ég fór með henni. Læknir spurði hvort ég treysti mér til þess að keyra henni þar sem ég var líka smituð. Ég var auð­vitað með bull­andi hita en vildi fara með.“ Rakel segir þetta hafa verið eina skiptið sem þær hafi farið út í þessar tvær vikur.

„Þegar við komum upp á deild leið strax yfir vin­konu mína. Ég sit þarna á stól, líka með COVID og fór bara að hágráta, mér brá svo og varð svo hrædd. Hugsaði bara að hún hlyti að vera að deyja. Hún fór í mynda­tökur og alls­konar rann­sóknir. En það reynd­ist allt í góðu, hún þurfti bara vökva í æð.“

Hápunkturinn að horfa út um gluggann

Það verður að segj­ast eins og er að þessar lýs­ingar minna einna helst á kafla úr vís­inda­skáld­sögu.

„Já, þetta var allt saman ofboðs­lega skrýtið. Þegar maður kemur að hús­inu opn­ast örygg­is­hlið og þá tekur á móti starfs­maður Rauða kross­ins með grímu og í bún­ing og fylgir þér inn. En þetta var það sem var skemmti­leg­ast að gera, glugg­inn á her­berg­inu okkar sneri út að Rauð­ar­árs­stíg og við gerðum því mikið af því að fylgj­ast með fólki koma og fara og fjöl­skyldum sem stóðu úti á götu og vink­uðu fólk­inu sínu.“

Þegar Rakel og vin­kona hennar „tékk­uðu sig inn,“ eins og Rakel orð­aði það sjálf, voru mjög fáir á sótt­varn­ar­hót­el­inu. Þegar leið á dvöl­ina fyllt­ist hót­elið svo smám saman og urðu þær vel varar við aðra sjúk­linga.

„Eina nótt­ina vökn­uðum við upp við öskur af efri hæð­inni. Það hefur lík­lega verið full­orð­inn karl­maður sem hefur verið alvar­lega veikur. Hann var svo sóttur af sjúkra­bíl.“

Til að stytta sér stundir horfðu vin­kon­urnar á allskyns sjón­varps­þætti. Aðstand­endur þeirra voru líka dug­legir að færa þeim glaðn­ing í formi matar og drykkjar. „Við létum t.d. færa okkur kaffi­vél.“ Skemmti­leg­ast við þessar mat­ar­send­ingar, segir hún, var að sjá aðeins framan í fólkið sitt, veifa þeim út um glugg­ann. „Það var ynd­is­legt.“

„Eitt af því sem við gerðum til að stytta okkur stundir og hafa gaman var að mynda allar mál­tíðir og deila með vinum. Það var mjög skraut­legt. Ekkert alltaf mjög girni­legt. En ólíkt mér, missti vin­kona mín bragð- og lykt­ar­skyn svo hún gat borðað meira en ég,“ segir hún kímin. Auðvitað eru for­rétt­indi að fá mat segir Rakel en oftar en ekki hafi hann verið kaldur og ólyst­ugur.

Eftirköstin áfall

Hvernig var svo að koma heim?

„Það var auð­vitað dásam­leg til­finn­ing að labba út og kveðja allt góða Rauða kross starfs­fólkið. Ég var búin að vera ein­kenna­laus í nokkra daga og þá er ég að tala um smi­tein­kenni, ég var ennþá með vöðva­verki og haus­verk. En ég sá alltaf fyrir mér að þegar ég myndi labba út að ég myndi bara vilja vera úti og hreyfa mig. Það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom heim var að sótt­hreinsa allt sem ég hafði tekið með mér og bara eftir það var ég bara búin á því og fékk svo­lítið áfall við það.“

Og þannig hefur það gengið. Rakel fór ekk­ert út fyrr en þremur dögum eftir heim­komu og þá í stuttan göngutúr. „Mér leið eins og ég hefði hlaupið 5 kíló­metra og þá átt­aði ég mig á því að þetta væri kannski svo­lítið mikið lang­hlaup. Ég upp­lifi mig sem hálf­gerðan aum­ingja og það er það sem er erf­ið­ast við þetta. Ég þarf að velja hvort ég labbi smá eða vinni smá.“ Rakel seg­ist ekk­ert hafa unnið fyrstu vik­una eftir að hún kom heim. Svo hafi hún unnið tvo daga vik­una þar á eftir og svo á þriðja degi hafi hún algjör­lega örmagn­ast. „Ég var bara í tölv­unni og bara í sam­skiptum við fólk. En þetta er svo mikil síþreyta og miklir vöðva­verkir.“ Hún hafði þá ætlað að leggja sig í stuttan stund en svaf þá frá fjögur síð­degis til níu næsta dags. „Þetta er mjög ólíkt mér.“

Aðspurð segir Rakel enga eft­ir­fylgni vera. Hún hafi fengið útskrift­ar­sím­tal en svo ekk­ert meir og á meðan ástandið er eins og það er finn­ist henni bara skrýtið að leita til læknis og kvarta yfir vöðva­verkjum á meðan ein­hverjir eru í önd­un­ar­vél. Þá hafi hún fengið mjög mis­vísandi skila­boð frá fag­fólki. „Ég hef svo­lítið þurft að finna út úr þessu sjálf og það finnst mér mjög erfitt. Ég er svona týpa sem veð bara áfram og þarf ein­hvern til að hafa vit fyrir mér. Það eru auð­vitað allir að gera sitt besta en það er alveg ljóst á öllu að það er mikið af ósvöruðum spurn­ingum.“

Strák­ur­inn hennar eldri var spurður að því um dag­inn í skól­anum hvernig mamma hans hefði það eftir þetta allt saman. „Jú hún er bara hress en hún er bara búin að sofa síðan hún kom heim,“ segir Rakel og hlær.

„Ég stend mig stundum að því að horfa út um glugg­ann og langa ekk­ert heitar en að fara út að hreyfa mig en bara til­hugs­unin við að þá þurfi ég að klæða mig í úlpu, skó og húfu þreytir mig svo ég sleppi því. Mér líður eins og allt sé í þoku og ég er svona við hlið­ina á sjálfri mér,“ segir Rakel Ósk um eft­ir­köst COVID-19.

Hvetur fólk til að passa sig

Hvaða ráð mundir þú gefa fólki sem hefur ekki fengið COVID?

„Ég hef oft heyrt fólk segja og sér­stak­lega ungt fólk, að það vilji bara fá þetta til að klára þetta. Þá sé maður bara góður og geti farið til útlanda og lifað eðli­legu lífi. Ég mæli bara alls ekki með því.“ Hún hvetur því alla til að gæta ítr­ustu sótt­varna því engin veit hvaða áhrif sjúk­dóm­ur­inn mun hafa til lengri tíma.

„Við fjöl­skyldan tökum þessu mjög alvar­lega og höfum reyndar gert frá upp­hafi. Ég var bara óheppin. Við pöntum gjarnan mat frá Krónunni og höldum okkur mikið heima – sem er auð­vitað drullu­leið­in­legt til lengdar,“ en betra en sjálf pestin segir hún að lokum og bætir við að hún ætli svo að drífa sig í flensu­spraut­una því nóg sé komið af veik­indum í bili.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina