Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslendingar dást að Arnari – Óttast hefnd útgerðarinnar – „Gangi þér vel í vinnubanninu“

Íslendingar dást að Arnari – Óttast hefnd útgerðarinnar – „Gangi þér vel í vinnubanninu“

„Hef því miður trú á því að það eina sem kemur út úr þessu er að hann fer á svartan lista og fær ekki vinnu á sjó aftur.“ Þetta skrifar sjó­maður nokkur innan Facebook-hóps stétt­ar­inar, Sjómenn á Íslandi, um Arnar Hilm­ars­son, háseta á Júlíusi Geir­munds­syni. Hann rauf þögn­ina um hvað gerð­ist á skip­inu í við­tali á RÚV í gær og lýst hvernig útgerðin neyddi COVID-veika menn að vinna.

Viðhorf ónefnda sjó­manns­ins hér fyrir ofan er lýsandi fyrir við­brögð margra lands­manna eftir við­talið við Arnar. Hann er sagður nagli og hetja en margir ótt­ast að útgerðin hefni sín. Tvítuga hetjan fái ekki vinnu í bráð. Helgi Seljan frétta­maður er einn þeirra sem segir þetta við­horf sýna að eitt­hvað er skagt. Á Twitter skrifar hann:

„Orðu á þennan gæja. Ég held að fólk geri sér almennt ekki grein fyrir því hvað það eitt að stíga fram og tjá sig, er risa­vaxið skref fyrir gæja í hans stöðu. Að sama skapi er þögn ráða­manna fyr­ir­sjá­an­legri en flest. -Ertu eitt­hvað hræddur um að missa þína stöðu á skip­inu út af þessu? „Tjáning mín á mál­inu er óend­an­lega verð­mæt­ari en starf mitt þarna um borð.“ Þessi spurn­ing er mjög eðli­leg. Pælum samt aðeins í því?,“ segir Helgi.

Lands­mönnum virð­ist mörgum brugðið við lýs­ingar Arnars. Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi ráð­herra, segir þetta það ógeðs­leg­asta síðan far­ald­ur­inn kom upp á Íslandi. „Þetta er það ótrú­leg­asta – og ógeðs­leg­asta – sem gerst hefur í Covid á Íslandi. Maður lifir í þeirri trú að Ísland sé – þrátt fyrir allt -betra en flest önnur sam­fé­lög. En að svona ger­ist í mínum gamla heimabæ er í senn sorg­legt – og ótrú­legt. – Sægreif­arnir halda áfram að auka orðstír sinn einsog eng­inn sé morg­un­dag­ur­inn,“ segir Össur.

Sam­flokks­kona hans, Helga Vala Helga­dóttir, segir nokkuð ljóst að lög hafi verið brotin. „Þetta er svaka­legt við­tal. Það er morg­un­ljóst að þetta er skýrt brot á sótt­varn­ar­lögum og sjó­manna­lögum og bara öllum rétt­indum þeirra sem þarna starfa eða störf­uðu. Tek ofan fyrir Arnari Hilm­ars­syni og dáist að hug­rekki hans. Nú þurfa stjórn­völd og að því mér sýn­ist ákæru­valdið að bregð­ast fum­laust við. Jafn­framt skora ég á stjórn­endur ann­arra útgerða að standa með þessum hug­rakka manni og bjóða honum pláss, ef hann kærir sig um eftir þessa erf­iðu reynslu,“ segir hún.

Egill Helgason fjöl­miðla­maður seg­ist ein­fald­lega taka hatt­inn ofan fyrir Arnari. „Ég tek hatt­inn ofan fyrir þessum unga háseta, Arnari Hilm­ars­syni, sem tjáði sig um atburð­ina um borð í Júlíusi Geir­munds­syni í kvöld­frettum RÚV og segir tján­ing sín um málið sé miklu verð­mæt­ari en starf sitt um borð í skip­inu,“ segir Egill.

Rit­höf­und­ur­inn Halldór Högurður segir hið sama og bætir í: „Tek ofan fyrir þess­ari hafs­ins hetju. Gangi þér vel í vinnu­bann­inu sem fylgir, það end­ist ævi­langt, þannig ger­ast kaupin á þræla­eyjum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi