Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Steinunn yfirlæknir segir heilbrigðisstarfsfólk hafa lyft grettistaki – Svona er staðan í dag

Steinunn yfirlæknir segir heilbrigðisstarfsfólk hafa lyft grettistaki – Svona er staðan í dag

„Nú standa fyrir dyrum hertar sótt­varn­ar­að­gerðir í sam­fé­lag­inu og maður verður var við þreytu hjá mörgum. Aftur er farið að bera á háværri umræðu um að Covid-19 sé með lægri dán­ar­tíðni en flensa, að það séu ekki svo margir inn­lagðir á spít­ala vegna veirunnar og að það væri jafn­vel betra fyrir alla að hafa sam­fé­lagið opn­ara og leyfa veirunni að dreifa sér. Ég held að marga þeirra sem viðra þessar skoð­anir skorti inn­sýn í þann veru­leika sem við starfs­fólk Land­spít­ala stöndum frammi fyrir þessa dag­ana og því vil ég gjarnan veita þá inn­sýn.“

Svo hefst pist­ill eftir Stein­unni Þórð­ar­dóttur, yfir­lækni öldr­un­ar­lækn­inga­deildar Land­spít­al­ans. Hún segir allt tal um að COVID sé ekki svo hættu­legt skelfi­lega óábyrgt tal. Eina ástæðan fyrir því að dauðs­föll séu ekki fleiri sé grettistak heil­brigð­is­kerf­is­ins og starfs­manna þess. Hún segir að sé Land­spít­al­inn gíf­ur­lega við­kvæmur um þessar mundir.

„Á Land­spít­ala í Fossvogi eru fjórar lyf­lækn­inga­deildir, bráða­lyf­lækn­inga­deild, smit­sjúk­dóma­deild, lungna­deild og gigt­ar­deild, auk öldr­un­ar­lækn­inga­deildar, tauga­deildar og skurð­deilda. Allt árið um kring eru þessar fjórar lyf­lækn­inga­deildir fullar af sjúk­lingum með til­heyr­andi vanda­mál, alvar­lega smit­sjúk­dóma, lungna­sjúk­dóma o.sv.fr. Eins og staðan er í dag eru bæði smit­sjúk­dóma­deildin og lungna­deildin fullar af sjúk­lingum með Covid-19. Þetta eru sjúk­lingar sem eru það veikir að þeir þurfa sann­ar­lega á sjúkra­húsinn­lögn að halda og þurfa mikla þjón­ustu,“ segir Steinunn.

Hún segir starfs­fólk hafa miklar áhyggjur af því að smit­ast sjálft. „Öll verk á þessum deildum eru þyngri í vöfum en venju­lega vegna sótt­varna, þ.m.t. klæðn­arar í og úr hlífð­ar­fötum. Eins býr starfs­fólk við áhyggjur af því að smit­ast sjálft og verða jafn­vel alvar­lega veikt, eða bera smit í aðra sjúk­linga eða eigin fjöl­skyldu­með­limi. Veik­indum sjúk­linga með “venju­leg” vanda­mál sem alla jafna hefðu lagst inn á þessar deildir verður að sinna ann­ars staðar, en það er gríð­ar­leg áskorun. Þessar tvær heilu legu­deildir fullar af Covid-19 veikum eru hrein við­bót við þegar yfir­fullt sjúkra­hús,“ segir Steinunn.

Hún segir stöð­una grafal­var­lega. „Landakot er sjúkra­hús sem sér­hæfir sig m.a. í end­ur­hæf­ingu aldr­aðra ein­stak­linga eftir bráð veik­indi, með­höndlun erf­iðra ein­kenna tengdum heila­bil­un­ar­sjúk­dómum og heild­rænu öldr­un­ar­mati. Á Landa­koti eru 5 legu­deildir og taka þær að stað­aldri við miklum fjölda aldr­aðra ein­stak­linga af bráða­deildum spít­al­ans og við það losna í sífellu pláss á bráða­deild­unum fyrir nýja bráð­veika sjúk­linga. Nú eru 2 af þessum 5 deildum orðnar að Covid-19 deildum ein­göngu og afgangur Landa­kots í sótt­kví, sem stöðvar algjör­lega inn­lagnir á Landakot og þ.a.l. flæði frá bráða­deildum. Eins og við vitum öll hefur þetta komið spít­al­anum á neyð­ar­stig í fyrsta sinn, en það þýðir að staðan er grafal­var­leg og ekki má neitt út af bregða,“ segir Steinunn.

Hún segir nán­ast ekk­ert ónæmi í sam­fé­lag­inu fyrir þess­ari veiru. „Það að halda því fram að þetta sé á ein­hvern hátt eðli­legt ástand sem við getum siglt í gegnum án sótt­varn­ar­að­gerða er fjar­stæða hverjum þeim sem þekkir til innan spít­al­ans. Ef Covid-19 veikum fjölgar að ein­hverju marki hvar á þá að opna næstu Covid-19 deild? Á gigt­ar­deild­inni? Tauga­deild­inni? Hvert fara þeir sjúk­lingar sem þar liggja alla jafna? Hvaða stars­fólk á að sinna öllum þessum Covid-19 veiku sjúk­lingum, auk allra hinna sem spít­al­inn er venju­lega fullur af? Við erum með nán­ast ekk­ert ónæmi á sam­fé­lag­inu fyrir þess­ari veiru. Sé henni sleppt lausri munu mjög margir veikj­ast á mjög stuttum tíma og mjög margir þeirra þurfa aðkomu spít­al­ans. Það er ein­fald­lega aug­ljóst að það er ekki ger­legt,“ segir Steinunn.

Það er bara ein ástæða fyrir því að dán­ar­tíðni vegna COVID sé ekki hærri að hennar sögn. „Ástæðan fyrir því að dán­ar­tíðni vegna Covid-19 er ekki hærri er ein­fald­lega sú að veiran hefur ekki breiðst út í sam­fé­lag­inu á óstjórn­legan hátt vegna þeirra sótt­varn­ar­að­gerða sem hafa verið við­hafðar. Og vegna þess grettistaks sem heil­brigð­is­starfs­fólk hefur lyft í far­aldr­inum. Þess vegna ræður kerfið við að sinna öllum þeim sem veikj­ast af Covid-19, auk allra hinna sem þurfa á heil­brigð­is­þjón­ustu að halda af öðrum orsökum. En það er áskorun og það gerir miklar kröfur til heil­brigð­is­starfs­fólks og inn­viða kerf­is­ins. Ef það dyndi á okkur hol­skefla af Covid-19 veik­indum á skömmum tíma myndi annar og mun verri veru­leiki blasa við okkur öllum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ