Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Ívar segir slúðrað að hann fái ekki vinnu: „Vinsælasti maður landsins reisti mér níðstöng“

Jón Ívar segir slúðrað að hann fái ekki vinnu: „Vinsælasti maður landsins reisti mér níðstöng“

Jón Ívar Ein­ars­son, pró­fessor við lækna­deild Harvard-háskóla í Boston, kemur Elísabet Guð­munds­dóttur, fyrr­ver­andi lækni, til varnar í aðsendir grein í Morg­un­blað­inu. Jón Ívar hefur hefur á árinu boðað hug­myndir um COVID sem eru ekki í takt við skoð­anir meiri­hluta lækna­stétt­ar­innar, líkt og Elísa­beta. Hug­myndir Jóns hafa þó verið tals­vert hóf­sam­ari en þó kvartar hann undan því að hafa lent í hakka­vél sam­fé­lags­ins.

„Nú hillir undir enda­lok Covid-19- far­ald­urs­ins með til­komu bólu­efna sem munu að öllum lík­indum færa okkur nær því sem kall­ast eðli­legt líf. Ég spáði því í grein í Morg­un­blað­inu 3. apríl sl. að bólu­efni myndi í besta falli koma fram í lok þessa árs, og trúði því varla sjálfur þá, en með grettistaki hefur tek­ist að þróa virk bólu­efni á undra­verðum tíma. Við getum því leyft okkur að líta bjart­ari augum til kom­andi árs og hljóta margir að bera meiri von í brjósti. Það á þó ekki við um alla. Margir eiga um sárt að binda, hafa misst vinn­una, hætt í skóla eða kljást við ein­mana­leika, þung­lyndi og kvíða. Fólk hefur líka borist á bana­spjót í far­aldr­inum,“ segir Jón Ívar í Morg­un­blað­inu.

Sjá einnig: Elísabet lýta­læknir opnar sig: „Með­höndl­aði mig sjálf með lyfjum sem ég hafði aðgang að sem læknir“

Hann segir mik­il­vægt að læknar þori að tjá sig. „Mér hefur blöskrað fram­koma fjöl­miðla, virkra í athuga­semdum og kollega í garð Elísa­betar Guð­munds­dóttur læknis. Ég tek það fram að ég þekki hana ekki per­sónu­lega og ég er alls ekki sam­mála öllu sem hún hefur gert eða haldið fram. Það er eðli­legt að læknar séu ósam­mála þegar kemur að nýjum sjúk­dómi sem hefur alvar­legar heilsu­fars­legar og sam­fé­lags­legar afleið­ingar. Þekking á Covid-19 er í stöðugri þróun og enn fyr­ir­finn­ast ýmis álita­mál. Þess vegna er mik­il­vægt að sem flestar raddir heyr­ist og læknar og aðrir þori að tjá sig,“ segir Jón Ívar og bætir við að Elísabet hafi verið hóf­söm í byrjun.

Elísabet steig í upp­hafi fram með hóg­væra umræðu um mik­il­vægi D-vítamíns og að hafa skóla opna fyrir ungt fólk. Hún fékk strax framan í sig mót­vind sem vatt upp á sig og nú er svo komið að hún hefur misst vinn­una og lækn­inga­leyfið og sætir lög­reglu­rann­sókn. Nú þekki ég ekki til hvers vegna hún missti vinn­una og lækn­inga­leyfið. Það getur vel verið að fyrir því séu gildar ástæður. En það breytir því ekki að fjöl­miðlar hafa tekið þátt í mann­orðs­morði í beinni og meira að segja aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn rík­is­lög­reglu­stjóra sá ástæðu til að lýsa því yfir á upp­lýs­inga­fundi að Elísabet væri ekki með lækn­inga­leyfi! Það er deg­inum ljós­ara að hvaða mann­eskja sem er í þess­ari stöðu Elísa­betar hlýtur að vera undir miklu álagi. Fjöl­miðlar og aðrir ættu að sjá sóma sinn í að gefa henni and­rými í þessum aðstæðum,“ segir Jón Ívar.

Hann seg­ist hafa lent sjálfur í þessu á árinu: „Nú hef ég sjálfur lent í orra­hríð vegna skoð­ana minna og reisti vin­sæl­asti maður lands­ins mér níð­stöng í fjöl­miðlum, ekki einu sinni, heldur tvisvar, og minnt­ist m.a. í síð­ari grein sinni á mína fjöl­skyldu­hagi og börnin mín. Hlaust af því mikil þórð­ar­gleði hjá ákveðnum hópi lækna og öðrum sem voru mér ósam­mála um áherslur vegna Covid-19. Orðið á göt­unni hjá kol­legum mínum á Íslandi er að ég hafi stimplað mig út úr lækna­stétt­inni og ég muni e.t.v. eiga erfitt með að fá vinnu ef ég flytti heim. Því neita ég reyndar að trúa.“

Hann seg­ist vera svona í eðli sínu. „Ég hef kynnst vönd­uðu fólki sem hefur kennt mér margt og víkkað sjón­deild­ar­hring­inn. Ég er í eðli mínu það sem á ensku kall­ast „contrarian“ sem byrj­aði held ég þegar ég af ein­hverjum ástæðum neit­aði stað­fast­lega að horfa á mynd­ina Grease í æsku þrátt fyrir miklar vin­sældir og sá hana ekki fyrr en á full­orð­ins­árum. Það er ekki alltaf tekið út með sæld­inni að vera þannig gerður, en ég er orð­inn vanur að takast á við gagn­rýni og lít á hana sem tæki­færi til að læra eitt­hvað nýtt. Þetta hug­ar­far nýt­ist líka vel í nýsköpun. Hugtakið „tíundi mað­ur­inn“ er mér t.a.m. að skapi, en þá er t.d. miðað við að ef 10 manns eru á fundi og allir eru sam­mála þá verður a.m.k. einn að vera á móti og finna plan­inu sem flest til for­áttu til að afhjúpa veik­leika og finna bestu leið­ina. William Kaplan gerir þessu efni ágæt skil í bók­inni „Why dis­sent matt­ers“. Ég vil því hvetja þá sem hafa eitt­hvað að segja til að stíga fram og láta í sér heyra,“ segir Jón Ívar.

Hann hvetur þó fólk til þess að tjá skoð­anir sínar. „ Ég skil vel að fólk veigri sér við því miðað við ofan­greint, en það er mjög óæski­legt þegar „groupthink“ er normið og fólki er refsað fyrir að stíga fram með skoð­anir sem ganga gegn fjöld­anum. Við sem sam­fé­lag þurfum að passa okkur á því að láta það ekki ger­ast. Annað sem ég vil hvetja til er að fólk sýni meiri hátt­vísi á sam­fé­lags­miðlum og í kommenta­kerfum fjöl­miðla. Mér finnst í raun ótrú­legt að fólk vilji koma fram undir nafni með sumt af því sem þar er látið flakka. Það eru margir ljón á bak við lykla­borðið, en gullna reglan ætti að vera sú að ein­ungis pikka inn hluti sem þú treystir þér til að segja við mann­eskj­una augliti til auglitis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi