Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Elísabet lýtalæknir opnar sig: „Meðhöndlaði mig sjálf með lyfjum sem ég hafði aðgang að sem læknir“

Elísabet lýtalæknir opnar sig: „Meðhöndlaði mig sjálf með lyfjum sem ég hafði aðgang að sem læknir“
Elísabet Guð­munds­dóttir lýta­læknir. Mynd / Hákon Davíð Björns­son.

Það hefur gefið á bát­inn í lífi Elísa­betar Guð­munds­dóttur lýta­skurð­læknis und­an­farin ár. Hún lenti í slysi og varð óvinnu­fær í átta mán­uði fyrir örfáum árum og seg­ist hafa misst stjórn­ina á öllu í kjöl­farið og fór meðal ann­ars að með­höndla sig sjálf með þeim lyfjum sem hún hafði aðgang að sem læknir. Hún lagð­ist síðan inn á geð­deild og lagði inn lækn­inga­leyfið um tíma vegna veik­ind­anna. Hún hóf í vor störf á brjósta­mið­stöð Land­spít­al­ans en var sagt upp í vetur. Þá neit­aði hún nýlega að fara í skimun eða sótt­kví eftir kom­una til lands­ins og lög­reglan mætti svo á heim­ili hennar og boð­aði hana í skýrslu­töku.

Andlit Elísa­betar Guð­munds­dóttur lýta­skurð­læknis birt­ist á tölvu­skjánum. Hún seg­ist vera nýkomin inn. Það heyr­ist í öðru barni hennar og hund­inum hennar. Hún er ein­stæð móðir og eru börnin 16 og 20 ára.

Hver er þessi kona sem ratað hefur í fjöl­miðla að und­an­förnu hvað varðar upp­sögn hennar á brjósta­mið­stöð Land­spít­al­ans sem og að hún neit­aði nýlega að fara í skimun eða sótt­kví eftir kom­una til lands­ins og skipu­lagði í kjöl­farið mót­mæli á Aust­ur­velli gegn sótt­varna­ráð­stöf­unum hér á landi?

„Ég fædd­ist á Akureyri í ágúst árið 1971. Ég er meyja. Ég er elst í nokkuð stórum systk­ina­hópi og elst fimm barna mömmu. Pabba megin eru það mest­megnis bræður og voru for­eldrar mínir 17 og 18 ára þegar ég fædd­ist. Við fluttum til Odense í Danmörku þegar ég var átta þar sem pabbi fór í tækni­skóla og bjuggum við þar í fimm ár.“

Elísabet segir að hún hafi verið pínu óþekkur krakki og „mikið á ferð­inni“. Hún talar um mikla virkni en þess má geta að hún var greind með ADHD fyrir örfáum árum. „Mér fannst vera skemmti­leg­ast að vera með strák­unum og hjóla á BMX-hjóli. Ég var mikið í félags­líf­inu og var for­maður í nem­enda­ráðum.“

Henni gekk vel í skóla; segir að hún hafi verið orðin læs fjög­urra ára og hún seg­ist tala nokkur tungu­mál og spila á sjö hljóð­færi. „Ég spil­aði á þver­flautu í stelpulúðra­sveit, „Odense pigeg­arde“. Við vorum í hvítum, háum stíg­vélum, stuttum, gulum pilsum og bláum jökkum og með medal­íur festar í jakk­ana og með bláa hatta á höfð­inu. Við vorum 100 stelpur sem mar­seruðum og spil­uðum til dæmis á fót­bolta­leikjum. Við flautuleik­ar­arnir löbbuðum fremst og það var mikið ábyrgð­ar­hlut­verk vegna þess að við stjórn­uðum hvernig var gengið. Við ferð­uð­umst mikið og fórum á keppnir. Það var virki­lega gaman að vera í þess­ari hljóm­sveit og það fygldi því nátt­úr­lega mik­ill agi að vera í henni.“

Elísabet segir að hún hafi svo fengið leið á flaut­unni og farið að læra á bar­ít­on­horn. „Ég fór svo að spila á trompet í Lúðra­sveit Akur­eyrar og auk þess hef ég spilað á básúnu í djass­bandi. Klass­ískur gítar er þó aðal­hjóð­færið mitt en ég fór að læra á gítar átta ára og lærði á það hljóð­færi í mörg ár og tók slatta af stigum.“

Sérfræðingur á Sahlgrenska-sjúkrahúsinu

Elísabet stund­aði nám á stærð­fræði­braut Mennta­skól­ans á Egils­stöðum og hóf svo nám í lækn­is­fræði við Háskóla Íslands. „Ég veit ekki af hverju ég fór í lækn­is­fræði; kannski af því að það var erf­ið­ast að kom­ast inn í lækna­deild­ina. Ég var líka mikið að spá í nám í stærð­fræði.“

Elísabet ákvað að verða skurð­læknir og að lýta­lækn­ingar yrðu sér­svið sitt.

Hún stund­aði síðan fram­halds­nám í lýta­lækn­ingum í Gauta­borg en þar bjó hún svo til árs­ins 2011. Hún vann sem sér­fræð­ingur í lýta­lækn­ingum á Sahlgrenska-sjúkra­hús­inu en hún fékk þar sér­fræðirétt­indi árið 2003 og lærði eftir það und­ir­sér­grein í „craniofacial“ skurð­lækn­ingum barna en skurð­að­gerðir á skarði í vör og góm eru sér­svið hennar.

Hún segir að hún hafi árið 2010 orðið yfir­læknir á barna­lýta­lækn­inga­deild sjúkra­húss­ins og verið um tíma rit­ari í sænska lýta­lækn­inga­fé­lag­inu.

Elísabet fór almennt um tvisvar á ári í þó nokkur ár til Indlands, fyrst árið 2005, þar sem hún gerði aðal­lega aðgerðir á ind­verskum börnum sem fæðst hafa með skarð í vör eða góm. Hún segir að hún hafi líka farið í nokkrar svip­aðar ferðir til Suður-Ameríku og Suður-Afríku.

Leið­bein­andi hennar á Sahlgrenska er frum­kvöð­ull að verk­efn­inu ásamt lýta­lækni í London. Elísabet segir að Sahlgrenska-sjúkra­húsið hafi greitt henni laun þegar hún hafi verið í þessum ferðum þar sem yfir­lækn­ir­inn hafi litið svo á að hún væri í raun að læra með því að gera svona margar aðgerðir á stuttum tíma.

„Leið­bein­and­inn var dálítið heims­frægur í þess­ari und­ir­sér­grein, barna­lýta­lækn­ingum, og ég var svo heppin að kom­ast undir hans vængi. Þetta var staða sem margir vildu fá. Ég fór að fara með honum til Rajastan-hér­aðs þar sem er sjúkra­hús uppi í fjöll­unum Mount Abu nálægt landa­mærum Pakistan og er byggt og rekið af Brama Kumaris.“ Þar fékk hún að taka þátt í að byggja upp og kenna skurð­læknum sem voru á staðnum að gera aðgerðir á börnum og full­orðnum með skarð í vör og góm og laga önnur lýti í and­liti og á höfði. „Þetta var stór­kost­lega gaman.“

„Ég fæ tár í augun þegar ég hugsa til kon­unnar sem horfði svo á sig í spegli eftir aðgerð­ina. Það var svo æðis­legt. Þetta er svo jákvæð sér­grein í raun­inni af því að við erum alltaf að laga eitt­hvað“

Elísabet segir að sjúk­ling­arnir hafi verið búnir að vera á sjúkra­hús­inu í um viku áður en að aðgerð­unum kom af því að það þurfti að tryggja nær­ing­ar­á­stand barn­anna og jafn­vel með­höndla sýk­ingar og önnur vanda­mál sem gátu komið í ljós og gefa þeim þá sýkla­lyf áður en hægt yrði að fram­kvæma aðgerð­irnar. Hún segir að aðstand­endur sjúk­ling­anna hafi dvalið á sjúkra­hús­inu og setið á göngum og eldað mat þar sem ekk­ert mötu­neyti hafi verið þarna. „Það voru alltaf allir saman. Það var eng­inn einn. Það er vanda­málið hérna. Það eru svo margir einir. Við þurfum að fara að hugsa betur um hvert annað.

Maður lagar ekki góm­inn í full­orðnu fólki en maður getur lagað vör­ina. Ég gerði einu sinni aðgerð á konu sem var með rosa­lega stórt skarð í vör og hún hafði aldrei sýnt neinum and­litið. Maðurinn hennar sá fyrst framan í hana á brúð­kaups­dag­inn. Hún fór aldrei í neinar veislur. Þetta var aga­lega mikið lýti. Svona aðgerð geri ég á einum klukku­tíma í stað­deyf­ingu. Ég fæ tár í augun þegar ég hugsa til kon­unnar sem horfði svo á sig í spegli eftir aðgerð­ina. Það var svo æðis­legt. Þetta er svo jákvæð sér­grein í raun­inni af því að við erum alltaf að laga eitt­hvað. Svo fór að frétt­ast til Mumbai og Nýju Dalí að sænskir skurð­læknar væru að gera aðgerðir og þá fór ríka fólkið að vilja koma. Þá varð þetta þannig að þeir sem gátu borgað borg­uðu fyrir aðgerð­irnar og þeir sem gátu það ekki gerðu það ekki. Þeir sem gátu borgað fengu að vera á sjúkra­stofum þar sem voru færri sjúkra­rúm.

Ég hef síðan farið oft ein til Indlands og á þar góða vini sem eru skurð­læknar. Ég elska Indland og kúlt­úr­inn þar. Það hafði áhrif á mig að fara til Indlands. Ég held að það hafði sáðst „spírítúalt“ fræ í mig þarna. Ég upp­lifði ein­hverja ró. Það var ekk­ert vesen og fólk tal­aði fal­lega um hvert annað. Svo var ég á svo fal­legum stöðum. Það er svo gaman að upp­lifa nýja hluti og kynn­ast nýju fólki.“

Elísabet segir að hún og leið­bein­and­inn hafi líka haldið fyr­ir­lestra víða um heim um rann­sóknir sínar. „Ég var orðin nokkuð stórt nafn í þessu.“

„Ég er spít­ala­læknir og hefði ein­hver sagt mér þegar ég var í námi að ég ætti eftir að stækka brjóst og fitu­sjúga hefði ég móðg­ast.“

Missti stjórnina á öllu

Elísabet fór í dokt­ors­nám sem hún kláraði reyndar ekki en á sama tíma var hún í fullu starfi á Sahlgrenska-sjúkra­hús­inu og starf­aði að auki á eigin stofu og var orðin ein­stæð móðir. „Það var of mikið. Ég fékk mér au pair og þá gekk þetta allt ljóm­andi vel. Svo bauðst mér vinna á einka­sjúkra­húsi í Kaup­manna­höfn sem bauð mér þre­föld föst laun og gat ég unnið fjóra daga í viku. Það var rosa­lega stór ákvörðun fyrir mig að hætta á háskóla­sjúkra­hús­inu af því að mér þykir vera svo gaman að kenna og vera í háskóla­sjúkra­hússumhverfi með nem­endum, pró­fess­orum og vera í kennslu og þró­unar- og rann­sókn­ar­vinnu. Ég er spít­ala­læknir og hefði ein­hver sagt mér þegar ég var í námi að ég ætti eftir að stækka brjóst og fitu­sjúga hefði ég móðg­ast. Ég flutti hins vegar til Malmö til að fara ekki með börnin í annað land og annað tungu­mál og keyrði á milli og vann á sjúkra­hús­inu í Kaup­manna­höfn í fimm ár sem var góð reynsla. Ég sakn­aði þó alltaf háskóla­sjúkra­húss­ins.“

Elísabet og börn hennar fluttu til Íslands árið 2017 en ári áður hafði hún leyst af sem sér­fræð­ingur á lýta­skurð­deild Land­spít­al­ans sem hún gerði reyndar líka 2005. Hún seg­ist hafa ráðið sig í afleys­ingar um sum­arið og hóf jafn­framt störf á stofu og seg­ist hafa verið einn þeirra lækna sem ekki fékk samn­ing við SÍ. Hún lenti í slysi stuttu eftir að hún flutti aftur til Íslands sem hafði mikil áhrif á líf hennar.

„Ég var að koma heim úr vinn­unni; þetta er svo asna­legt en minn eigin bíll rann yfir annan fót­inn á mér. Ég fékk mikla blæð­ingu og var marin frá nára og niður í tær. Ég var ekki með neina verki í liðum þannig að ég fór ekki strax á slysa­varð­stof­una. Marið minnk­aði hins vegar ekk­ert og ég var farin að fá mikla verki og það tók langan tíma að greina þetta eftir að ég lét líta á fót­inn.“ Elísabet segir að síðan hafi komið í ljós að það blæddi enda­laust úr æð í fæt­inum og mynd­að­ist svo sýk­ing og síðan drep þannig að það þurfti að fjar­lægja heil­mikið af húð ann­ars staðar af lík­ama hennar og setja á sárið. Hún seg­ist hafa farið í fjórar akút aðgerðir á sinni eigin deild, lýta­lækn­inga­deild.

„Ég missti ein­hvern veg­inn stjórn­ina á öllu af því að ég var mikið veik og alltaf í aðgerðum en ég hafði hálfu ári áður farið í stóra, opna kvið­ar­hols­að­gerð vegna æxlis í legi sem reynd­ist sem betur fer vera góð­kynja. Ég fór að vinna tveimur vikum seinna þótt ég ráð­legði sjálf sjúk­lingum sex vikna hvíld eftir sams konar aðgerð en mér fannst mér líða vel og var verkja­laus. Álagið var þar fyrir utan mikið við að flytja heim ein með tvo ung­linga og á sama tíma sinnti ég litlum stofupraxis í Malmö og fór þangað tvisvar í mán­uði.

Eftir slysið var ég frá vinnu í átta mán­uði og var tekju­laus allan tím­ann þar sem ég var svo óheppin að lenda á milli kerfa. Ég hafði misst allan rétt í Svíþjóð við flutn­ing lög­heim­ilis frá Svíþjóð og hafði ekki náð að vinna mér inn rétt minn á Íslandi hvorki hjá líf­eyr­is­sjóði eða lækna­fé­lagi og ég neydd­ist til að leita til félags­mála­stofn­unar og biðja um styrk en þá hafði ég haft of háar tekjur í Svíþjóð árinu áður til þess að eiga rétt á því. Kerfið hér er allt of flókið og ekki séns í miklum veik­indum að rata í því eða vita hvaða rétt maður á og ég hef verið svo heppin að hafa aldrei áður þurft á aðstoð að halda. Þegar maður er búinn að vera með góðar tekjur þá er maður líka með mikil útgjöld svo sem í tengslum við stof­urnar og hús­næði sitt. Þetta var virki­lega erfitt og ég var stöðugt með áhyggjur og kvíða og kunni ekki að biðja neinn um að hjálpa mér, vön að bjarga mér sjálf, og hafði ekki haft tíma til að virkja félags­legt net eða kynn­ast nágrönnum eða for­eldrum þeirra barna sem börnin mín voru að kynn­ast.“

„Kvíðinn lýsti sér sem lam­andi, hræði­legur og sárs­auka­fullur kvíði sem ég gafst alltaf upp á eftir nokkra daga og varð að taka þessi kvíða­lyf því mér fannst ég ann­ars vera að deyja“

Róandi lyf

Elísabet segir að á þessum erf­iða tíma hafi hún fengið mikið af lyfjum svo sem verkja­lyf og róandi lyf. „Þegar van­líðan og streita var orðin of mikil réð ég ekki lengur við neitt. Stofan í Svíþjóð fór í gjald­þrot, öll sú „administration“ sem ég hafði – ein með tvö fyr­ir­tæki, heim­ili og börn – fór að fara í óreiðu, reikn­ingar hrúg­uð­ust upp, ég var ekki einu sinni búin að pakka upp almenni­lega eftir flutn­ing­ana og börnin mín voru auk þess að aðlag­ast nýju lífi á Íslandi í nýjum skóla með nýjum félögum.

Ég missti stjórn­ina og það umhverfi og regla sem ég þarfn­ast til þess að geta liðið vel eru í raun­inni þær aðferðir sem ég hef tamið mér og eru nú kenndar á nám­skeiðum fyrir fólk með ADHD. Kvíðinn og þung­lyndið jókst hratt uns ég var komin í lífs­hættu og teng­ist líka skömm og sekt­ar­kennd yfir því að vera farin að með­höndla mig sjálf með þeim lyfjum sem ég hafði aðgang að sem læknir. Kvíðinn lýsti sér sem lam­andi, hræði­legur og sárs­auka­fullur kvíði sem ég gafst alltaf upp á eftir nokkra daga og varð að taka þessi kvíða­lyf því mér fannst ég ann­ars vera að deyja.

Elísabet hefur sótt um að fá að sækja lækn­inga­leyfið aftur og seg­ist hafa fengið fullt lækn­inga­leyfi með tak­mörk­unum þó þar til í apríl á næsta ári sem felist í að hún megi ekki skrifa út ávana­bin­andi lyf. Hún segir það skipta sig engu máli þar sem hún skrifi í raun­inni aldrei út lyf hvort sem er.

Besta vin­kona mín úr lækna­deild­inni reynd­ist ennþá vera það þrátt fyrir að hún hafi farið í sér­nám til Banda­ríkj­anna og leiðir því skilið í nokkur ár en hún bjarg­aði mér þegar hún sá í hvað stefndi ásamt land­lækni, sama ynd­is­lega og er núna; þær björg­uðu lífi mínu þegar ég var að gef­ast upp og komu mér inn á geð­deild Land­spít­al­ans og ég þáði að leggja inn lækn­inga­leyfið mitt þar til ég hefði náð bata á ný.“ Elísabet fékk svo lækn­inga­leyfið aftur síðar.

„Gæfa mín var að kom­ast undir þær lækn­is­hendur sem ég þurfti á að halda og láta hugsa um mig. Ég get aldrei hrósað starfs­fólki geð­deildar Land­spít­al­ans nóg fyrir hversu vel það tók á móti mér því ég var hrædd­ari en ég hef nokkurn tím­ann á ævinni verið, ég hafði týnt mér og skömmin var hræði­leg. Ég hélt ég væri eina mann­eskjan með svona hræði­legan karakter, ég væri jafn­vel ólækn­andi alkó­hólisti og að lífið væri búið og ég hélt að það væri jafn­vel betra fyrir börnin mín að ég væri ekki til. Ég fékk þá hjálp sem ég þurfti og sem ég hefði fyrir löngu átt að vera búin að leita. Ég vona inni­lega að ég hafi lært mína lexíu varð­andi það að leita mér læknis ef ég veik­ist af sjúk­dómi hver sem hann er í fram­tíð­inni.

Það er erf­ið­ara fyrir lækna en aðra að fara til læknis og við hunsum held ég ein­kenni okkar lengur, bítum á jaxl­inn, gleymum og höldum svo áfram ein og bælum eigin ein­kenni, skellum í okkur ibu­fen og förum alltaf í vinn­una sama hvað eða eins og ég fór að með­höndla kvíð­ann minn sjálf sem leiddi til þess að ég gat ekki losnað við kvíða­lyfin. Ég fór eftir þetta á fjög­urra vikna streitu­nám­skeið í Hvera­gerði og komst meðal ann­ars í gang með þeirri hreyf­ingu sem mér er lífs­nauð­syn­leg til að geta liðið vel en ég hafði lítið getað hreyft mig eða æft í heilt ár og hafði fitnað heil ósköp. Ég hafði verið veik á bæði lík­ama og sál í langan tíma.“

ADHD

Elísabet fékk á þessum tíma þá grein­ingu að hún væri með ADHD og hefur síðan verið á lyfjum við því. „Mér hafði aldrei dottið í hug að ég væri með ADHD og var hrein­lega með for­dóma gagn­vart grein­ing­unni og var hrædd um það sem sumir læknar og sál­fræð­ingar sögðu mér um þá hættu að ég gæti farið að mis­nota örvandi fíkni­efni eða jafn­vel endað í sprautu­fíkn. Ég hafði aldrei notað fíkni­efni en öll fíkn er jú fíkn sama hver hún er og er sami sjúk­dóm­ur­inn í grunn­inn sama hvað er mis­notað en er mjög oft hamlandi afleið­ing ADHD en það vitum við meðal ann­ars vegna rann­sókna á Íslandi. Með­ferðin gjör­bylti lífi mínu frá fyrsta degi og sem betur fer fór ég að ráðum þess góða læknis sem greindi mig með gaum­gæfi­legum rann­sóknum, við­tölum, tölvu­prófum, sál­fræði­við­tölum og spurn­inga­listum sem ég og fjöl­skylda mín svöruðum. Það tóku ekki margir eftir breyt­ingum á mér enda hafði ég verið í Svíþjóð og verið veik og er að auki það sem ég vil kalla „social introvert“ og hef ekki mikla þörf fyrir að tala um mitt einka­líf nema við mína allra nán­ustu. En ég elska að vera í góðum félags­skap þótt ég uni mér vel ein og þarfn­ast þess að vera það og mér hefur aldrei leiðst á ævinni og ég segi það satt. Innra með mér fór ég að standa betur með sjálfri mér og eftir árs með­ferð fór ég að finna fyrir til­finn­ingu fyrir innan til­finn­ing­una sem átti það til að vera sem lauf í vindi ytri aðstæðna oft og tíðum og gera mér lífið erfitt í per­sónu­lega líf­inu. Ég komst svo að því að þessi nýja tillfinn­ing er sú sem er mín eigin og er ham­ingju­söm sama hvað ger­ist í þeirri ytri og ég hvíli alltaf í sama hvað ger­ist og svo er einnig nú þrátt fyrir allt sem hefur gengið á und­an­farnar vikur.“

„Það er rosa­lega mikil nið­ur­læg­ing að vera rekin af háskóla­sjúkra­húsi; eina háskóla­sjúkra­hús­inu á Íslandi. Ég tek þessu samt ekk­ert per­sónu­lega af því að þetta snýst ekk­ert um mig.“

Neitaði að fara í skimun eða sóttkví

Elísabet segir að eftir streitu­nám­skeiðið hjá NFLÍ í Hvera­gerði hafi hún farið að vinna hjá Íslenskri erfða­grein­ingu. „Ég ætl­aði ekki að vera lengi en það var svo gott að vinna þar, mér var vel tekið og ég fékk virki­lega góðan yfir­mann sem er fram­kvæmda­stjóri starf­sem­innar í Kópavogi þar sem klínískar rannóknir fara fram. Ég var þar í eitt og hálft ár uns ég hóf störf á Land­spít­al­anum 1. apríl síð­ast­liðnum sem klínískur læknir í brjósta­mið­stöð Land­spít­al­ans í Skóg­ar­hlíð. Mér var síðan sagt upp fyrir einum og hálfum mán­uði án nokk­urrar ástæðu eða fyr­ir­vara.“ Elísabet seg­ist ekki hafa fengið skýr­ingu á upp­sögn­inni né heldur lög­fræð­ingur lækna­fé­lags­ins sem hún segir að hafi innt eftir ástæðu við spít­al­ann.

„Það er rosa­lega mikil nið­ur­læg­ing að vera rekin af háskóla­sjúkra­húsi; eina háskóla­sjúkra­hús­inu á Íslandi. Ég tek þessu samt ekk­ert per­sónu­lega af því að þetta snýst ekk­ert um mig. Það er engin ástæða fyrir upp­sögn­inni. Það er ekk­ert sem ég hef gert rangt. Ég var vel liðin af starfs­fólk­inu og sjúk­ling­unum. Það hefur ekk­ert komið upp á. Það hefur eng­inn kollegi hringt og spurt hvað hafi gerst. Það er bara þögn sem ríkir í lækna­sett­inu.“

Á covid.is kemur fram að far­þegar sem koma til Íslands geti valið á milli þess að fara í tvær sýna­tökur vegna COVID-19 með fimm daga sótt­kví á milli þar til nið­ur­staða seinni sýna­töku liggur fyrir eða sleppa sýna­töku og sitja í 14 daga sótt­kví frá kom­unni til lands­ins. Þar kemur einnig fram að brot á sótt­kví eða ein­angrun geti leitt til sekta og aðkomu yfir­valda til að koma í veg fyrir brot.

Elísabet fór nýlega til Kaupa­manna­hafnar og þegar hún kom aftur til lands­ins neit­aði hún að fara í sýna­töku og fór ekki í sótt­kví. Hún skipu­lagði í kjöl­farið mót­mæli á Aust­ur­velli gegn sótt­varna­að­gerðum hér á landi. Þá hefur hún birt mynd­bönd á Facebook þar sem hún sýnir frá aðstæðum og fjallar um þetta og hefur þetta og mál hennar ratað í fjöl­miðla.

„Af því að ég hef verið að vinna þar sem eru stundum far­aldrar og líka þar sem eru fjöló­næmar bakt­er­íur þá veit ég tölu­vert mikið um sótt­varnir og grímur. Mér fannst það ekki meika neinn sens í upp­hafi Covid-far­ald­urs­ins þegar sagt var að það ætti að loka efna­hag vest­rænna landa til þess að vernda gamla og veika. Svo hugs­aði ég með mér að það væri á móti öllu sem ég hef lært í lækn­is­fræði þegar sagt var að það þyrfti að bólu­setja alla. Það hefur aldrei verið gert. Þá fór ég að leita mér upp­lýs­inga og var í raun og veru í rann­sókn­ar­vinnu „non stop“ í allt vor.

Svo finnst mér vera hræði­legt að ung­lingar kom­ist ekki í skól­ann því þeir verða að hitta aðra ung­linga. Þeim líður illa og þeir eru hræddir, hvað þá þeir sem bjuggu við lélegar aðstæður fyrir. Fólk sem drekkur, drekkur bara meira heima hjá sér núna þegar barir eru lok­aðir. Þetta er svo hræði­legt fyrir börnin og það er það sem vakir fyrir mér. Skólinn er kannski eina athvarfið fyrir sum börn og ung­linga. Ég verð að tala um þetta. Við erum búin að gleyma hvernig er að vera frjáls. Það er búið að svipta okkur frels­inu. Og ég hef ferð­ast um lönd þar sem er kúgun. Ég vil bara að börn fái að lifa sem eðli­leg­ustu lífi. Það er engin ástæða að hafa þau í ein­angrun og halda þeim ekki í skól­anum. Það á frekar að vernda gamla fólkið og hafa það í almenni­legu hús­næði.

Fólk hélt um dag­inn að ég væri orðin geð­veik af því að ég setti mynd­band á Facebook af því þegar ég var í Leifs­stöð eftir kom­una til lands­ins. Ég vissi alveg hvað ég var að gera. Ég er að reyna að vekja athygli á svo mörgum málum svo sem mann­rétt­inda­brot­inu sem við höfum orðið fyrir hér á Íslandi sem á sér enga hlið­stæðu í nágranna­löndum okkar. Og eng­inn þorir að segja neitt.“

Í byrjun vik­unnar var til­kynnt að Elísabet væri ekki með lækn­inga­leyfi og segir hún að sama kvöld hafi geð­læknir á vegum Land­spít­al­ans hringt í sig til að lýsa yfir áhyggjum margra af geð­heilsu hennar því hún væri lík­lega komin í maníu, og segir hún að svo sé ekki, og að það hefði ekki verið stabíl mann­eskja sem hafi sést gráta á mynd­skeiði sem hún hafði sett á Facebook við heim­komu í Leifs­stöð.

„Þær björg­uðu lífi mínu þegar ég var að gef­ast upp og komu mér inn á geð­deild Land­spít­al­ans og ég þáði að leggja inn lækn­inga­leyfið mitt þar til ég hefði náð bata á ný“

„Ég sagði að þegar fólk er í maníu þá sofi það ekki, borði ekki og kaupir kannski öll tann­kremin í bænum. Mér líður í raun og veru mjög vel. Ég er með þetta ADHD sem ég fæ með­ferð við. Svo fékk ég skila­boð í dag frá konu sem ég þekki þar sem hún skrif­aði að henni fynd­ist per­sónu­leiki minn hafa breyst. Málið er að ég hef ekki verið í sam­skiptum við hana í mörg ár. Ég hef ekki talað við hana og hún getur ekki vitað þetta. Svo skrif­aði hún að heila­æxli gæti valdið þessu og ég þyrfti að fara í rann­sóknir. Ég ætla að koma mér þangað niður eftir og fara að sjálf­sögðu í full­komið mat og rann­sóknir en emb­ætti land­læknis mun sam­kvæmt lög­fræð­ingi mínum lík­lega krefj­ast starfs­hæfn­is­mats þar sem þau eru hrædd um að ég sé orðin geð­veik og per­sónu­leika­trufluð en það er ekk­ert skrýtið að ég sé búin að vera stressuð alla vik­una eftir allt sem hefur gengið á. Þeim gengur von­andi ein­ungis gott til og ég er orðin viss um að svo er, enda hefur land­lækn­is­emb­ættið hingað til reynst mér vel. Það er samt skrýtið og sárt að eng­inn læknir starf­andi á Land­spít­ala né skóla­fé­lagi úr deild­inni hafi haft sam­band í einn og hálfan mánuð og spurt hvernig ég hafi það og hvers vegna ég hafi verið rekin. Þó er búið að stað­festa við emb­ættið að ástæða brott­rekst­urs­ins sé ekki að neitt hafi komið upp á og eng­inn grunur eða ástæða til að gruna mig um að vera í neyslu af neinu tagi, enda hefur ein­ungis verið mikil ánægja með störf min þar til skyndi­lega umræddan dag.“

Á borði lögreglunnar

Lög­reglan mætti svo á heim­ili Elísa­betar dag­inn eftir að þetta við­tal var tekið og boð­aði hana í skýrslu­töku sem hún á eftir að fara í og hún vill ekki segja neitt um það mál að ráð­legg­ingu lög­manna sinna en mun fylgja ráðum þeirra og klára þau per­sónu­legu mál sem eru henni mik­il­væg­ust sem er mögu­leiki hennar til að sjá sér og fjöl­skyldu sinni far­borða með starf­inu sem hún hefur menntað sig í og unnið við frá útskrift úr lækna­deild HÍ árið 1997. Hún seg­ist hafa sótt um að fá að sækja lækn­inga­leyfið aftur og seg­ist hafa fengið fullt lækn­inga­leyfi með tak­mörk­unum þó þar til í apríl á næsta ári sem felist í að hún megi ekki skrifa út ávana­bin­andi lyf. Hún segir það skipta sig engu máli þar sem hún skrifi í raun­inni aldrei út lyf hvort sem er.

„Síðustu vikur og dagar hafa verið afar við­burða­ríkir og ég er eðli­lega þreytt en hvíli eins og und­an­farið eitt og hálft ár í minni eigin innri til­finn­ingu sem breyt­ist ekki þrátt fyrir ytri aðstæður, upp­nám, ótta eða annað sem upp getur komið í þeim aðstæðum sem ég lendi í alveg sama hvað. Og gæti ekki hrein­lega verið að þetta sé það sem Buddist­arnir tala um að sé sá Guð sem býr í okkur öllum?

Þessi tími frá því að ég fór að benda á þá hluti sem ég taldi afar órétt­láta og hamlandi, miðað við þau vís­indi sem ég vinn sam­kvæmt og þeim siða­reglum sem ég hef heitið að starfa eftir, hefur gefið mér mikið líka þótt ég hafi fórnað miklu og verið undir álagi og börnin mín auð­vitað líka. Það eru 99,9% af öllu því sem ég hef séð eða fengið sent til mín jákvæð við­brögð og stuðn­ingur frá fleiri ein­stak­lingum en ég hef tölu á en ég svara öllum per­sónu­lega og er þeim öllum inni­lega þakk­lát og verð það ævin­lega. Ég svar líka þeim örfáu sem til dæmis segja mér að fara út aftur en þeir fá líka vin­gjarn­legt svar með ósk um góða fram­tíð. Það sem er eig­in­lega sem lítið krafta­verk er að sumir þess­ara aðila sem sent hafa slíkt hafa þá svarað til baka og sagt mér að for­eldri hafi til dæmis verið á geð­deild. Það sannar að það borgar sig að svara öllum með virð­ingu, vel­vild og kær­leika en þá eru miklar líkur á að slíkt hið sama komi til baka nán­ast sam­stundis. Ég tel að það sé ekki hægt að fá það sem maður hefur ekki gefið og það á líka við þessa góðu og fal­legu eig­in­leika okkar mann­skepn­unnar. Annað sem er að ger­ast er að sumir eru farnir að segja frá sínum sárum og þannig getum við koll af kolli lifað hér saman í sátt og sam­lyndi og hætt að vera hrædd við hvert annað, gripið hvert annað og ekki sam­þykkt níð af nokkru tagi heldur lifað eins og við hljótum öll að óska okkur í sátt, sam­lyndi og góðum félags­skap, rök­ræðum, spurt spurn­inga og haft skoð­ana­skipti eins og við gátum einu sinni.“

Texti: Svava Jóns­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi