Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bestu sparnaðarráðin fyrir árið 2021 – Svona sparar þú risaupphæðir – 25 ráð og þú græðir!

Bestu sparnaðarráðin fyrir árið 2021 – Svona sparar þú risaupphæðir – 25 ráð og þú græðir!

Gott sparn­að­ar­ráð er gulls ígildi. Mannlíf deilir hér með les­endum hvorki meira né minna en 25 ráðum sem munu spara fólki frá tugum þús­und og upp í hund­ruð þús­unda króna á ári. Hjá mörgum fjöl­skyldum skiptir hver króna máli og eftir að Kór­óna­veiran hóf að herja á heim­inn hafa margir orðið atvinnu­lausir eða tekjur dreg­ist saman. Það er því aldrei mik­il­væg­ara að kunna list­ina að spara.

Það skiptir engu hversu margar krónur eru í budd­unni, allir græða á Sparn­að­ar­ráðum Mannlífs! Sparn­að­ar­ráðin eru fengin héðan og þaðan en flest eru að finna í ört stækk­andi og einni allra skemmti­leg­ustu grúppu sem er að finna á sam­fé­lags­miðlum: Sparn­aðar tips á Facebook. Mannlíf mælir með að les­endur geri sér ferð þangað næst þegar þeir bregða sér á flakk á ver­ald­ar­vefnum. Mannlíf birtir hér 25 frá­bær sparn­að­ar­ráð og bætir um betur á morgun þegar 25 ráð til við­bótar verða til umfjöll­unar. Ekki hika við að kommenta þínum bestu ráðum undir úttekt­ina eða senda okkur línu með því að smella HÉR. En kíkjum á Bestu sparn­að­ar­ráðin fyrir árið 2021!

Sparnaðarráð Mannlífs fyrir árið 2021

Komdu þér upp heima­rækt í bíl­skúrnum eða einu her­bergi í íbúð­inni. Borgaðu þér 300 krónur fyrir hverja æfingu. Hluta af upp­hæð­inni getur þú svo notað til að bæta við í ein­krarækt­ina. Plúsinn: Þú bæði sparar lík­ams­rækt­ar­kortið og fjár­festir um leið í heilsu og æfinga­tækjum.

Bakaðu brauðið heima. 16 kílóa sekkur af brauð­hveiti kostar 2700 krónur í Costco. Plúsinn: Nýtt og heitt brauð bragð­ast alltaf betur. Æfingin skapar bak­ara­meist­ar­ann og að baka er fín hug­leiðsla.

Afþakk­aðu fjölda­póst. Plúsinn: Þú freist­ast þá ekki og losnar við tuð í krökk­unum sem vilja eign­ast ein­hvern óþarfa.

Meðlimur í Sparn­að­ar­tips grúpp­unni deilir eft­ir­far­andi ráði: „Ég kaupi hakk í miklu magni í Costco og frysti í gler­krukkum sem falla til. Ég er með hund á hrá­fóðri og þarf mikið hakk fyrir hann og end­ur­nota þannig krukkur í stað­inn fyrir að nota plast­poka.“

Fjár­festu í hjóli og athug­aðu sölu­síður og Góða hirð­inn áður en nýtt hjól er keypt. Hjólaðu svo í búð­ina. Plúsinn: Þú getur ekki keypt nema það allra nauð­syn­leg­asta til að bera á hjóliu. Þú tæktar um leið lík­amann.

Byrjaði að strika af jóla­gjafalist­anum á útsölum í jan­úar. Plúsinn: Þú sparar mikla pen­inga og tíma. Þú losnar líka við að fara í Kringl­una á Þor­láks­messu þar sem vart er þver­fótað fyrir fólki og varla hægt að finna bíla­stæði í versl­un­ar­mið­stöðvum eða í mið­borg­inni.

Keyptu hand­sápu í lítra­tali og not­aðu sápu­skammt­ara. Þetta fæst í Costco, Krónunni og víðar. Plúsinn: Mun ódýr­ara og engin plast­sóun.

Heill kjúklingur er mun ódýr­ari en kjúklinga­bringur. Plúsinn: Minni mat­ar­sóun.

Stofnaðu sparn­að­ar­reikn­ing og gefðu honum nafn. Þú gætir verið með reikn­ing fyrir hluti sem bila á heim­il­inu og ein­göngu tekið út þegar hlutir virka ekki lengur.

Mik­il­vægi þess að fara eftir inn­kaupa­lista er marg­þættur. Þau sem lenda í því að þurfa að skjót­ast reglu­lega eftir ein­hverju sem gleymd­ist, svo sem mjólk, rjóma, kart­öflur, æi, þið vitið, þessir litlu hlutir. Slíkar ferðir geta verið dýrar, sér­stak­lega eftir að kaup­mað­ur­inn á horn­inu lagð­ist af. Bílferð þýðir bens­ín­kostn­aður í skott­úra. Plúsinn: Minna slit á bílnum og meiri tími til að sinna öðrum hlutum.

Hafir þú tök á að fjár­festa í raf­magns­bíl eða raf­magns­hjóli, þá segir það sig sjálft, að slíkt sparar mikla pen­inga. Plúsinn: Það er umhverf­is­vænt.

Á Facebook má finna fjöl­marga fría við­burði. Leik­sýn­ingar, tón­leikar, mynd­list­ar­sýn­ingar. Listinn er enda­laus. Plúsinn: Mörg börn elska leik­hús og frá­bært fyrir fjöl­skyld­una að fara saman og rækta sam­band for­eldra og barns.

Fáðu til­boð í trygg­ingar. Það er enda­laust af sölu­mönnum þarna úti sem vilja gera þér betra til­boð.

Sumir búa til upp­þvotta­vél­ar­duftið sjálf. Á Sparn­að­ar­tips á Facebook er þessi ráð­legg­ing frá Þórunni: „Ég bý til upp­þvott­ar­vél­ar­duftið sjálf úr mat­ar­sóda, salti og sítrónusafa ásamt ilmol­íum, en þeim má sleppa. Nota borð­edik sem gljáa í upp­þvotta­vél­ina. Kostar mig nokkra aura að þvo eina vél.“

Keyptu fyrir vik­una eða mán­uð­inn eftir mat­seðli heim­il­is­ins. Plúsinn: Þú eða fjöl­skyldan munt borða fjöl­breytt­ari fæði og spara tugi þús­unda árlega.

Geymdu kjöt­vörur og fisk í mis­mun­andi FJÖLNOTA pokum í fryst­inum. Blár poki getur verið fyrir fisk, gulur fyrir ávexti, rauður fyrir kjötið. Plúsinn: Þetta sparar meira tíma en aura og er gott fyrir skipu­lag og vörutaln­ingu.

Aldrei henda mat og hafðu afganga­dag einu sinni í viku.

Klass­íska ráðið sem við höfum heyrt og fylgt okkur frá æsku: Gos og nammi, bara á laug­ar­dögum. Kex bara í kaffi­tím­anum, þegar búið er að fá sér brauð­sneið.

Þekkir þú bónda eða þekkir þú ein­hvern sem þekkir bónda? Keyptu skrokka af kjöti á haustin. Á Sparn­aðar tips er þessa ráð­legg­ingu að finna:

„Ég kaupi fol­alda­skrokk í októ­ber og það er um 50 þús­und krónur. Ég þarf svo ekki að kaupa kjöt í tæpt ár.“

Áður en keyptir eru nýir fót­bolta­skór, kulda­skór eða jafn­vel reið­hjól, taktu þá fyrst snún­ing á sölu­síðum á Bland.is, Facebook, Extra­loppan, net­bás­inn.is eða kíktu á nytja­mark­aði. Plúsinn: Oft líta hlut­irnir þar eins og nýir.

Farðu aldrei svöng eða svangur í Bónus. Það marg­faldar líkur á að ýmiss­konar óþarfi endi í mat­ar­körf­unni.

Keyptu kjöt sem er að renna út á afslætti og hentu í fryst­inn.

Ef þú eldar stærri skammta getur þú tekið afgang­inn og fryst. Plúsinn: Ótrúlega þægi­legt þegar maður nennir ekki að elda og mun ódýr­ara en skyndi­biti.

Gerðu inn­kaupa­lista og þú sparar tugi þús­unda á árs­grund­velli. Plúsinn: Rann­sóknir benda til að fjöl­skylda spari um 10 % á mán­uði ef þeir halda sig við list­ann. Án lista ert þú mun lík­legri til að versla óþarfa við kass­ann. Sér­fræð­ingar segja að þau sem haldi sig við lista í hvert sinn spari vel yfir 100 þús­und árlega.

Ekki hika við að kommenta þínum bestu ráðum undir úttektina eða senda okkur línu með því að smella HÉR. En kíkjum á Bestu sparnaðarráðin fyrir árið 2021!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi