Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

John Snorri talinn af – Líkur á að hann hafi toppað K 2

John Snorri talinn af – Líkur á að hann hafi toppað K 2

„Ég tel þá hafa toppað fjallið. Þeir hafa lent í slysi á nið­ur­leið­inni því um nótt­ina skall á mikið hvass­viðri. Verandi í 8.000 metra hæð að vetr­ar­lagi svona marga daga gefur mér enga von um að þeir séu á lífi,“ segir Sajid Sadpara, einn fjór­menn­ing­anna sem stefndi á topp K 2 síð­ast­liðið fimmtu­dags­kvöld. Í hópnum var John Snorri Sig­ur­jóns­son fjalla­garpur sem nú er tal­inn lát­inn eftir að hafa verið týndur á hinu mann­skæða fjalli frá því snemma á föstu­dags­morgun.

Allt að 75 stiga frost hefur verið á K 2 síð­ustu daga og leit hefur því miður engan árangur borið. Þetta eru orðnir fjórir sól­ar­hringjar sem John Snorra og félaga hans, Muhammad Ali Sadpara, föður Sajid, og Juan Pablo Mohr, hefur verið saknað í þessum erf­iðu aðstæðum.

Sjá einnig: „Í hug­anum sé ég sjálfan mig á tind­inum og legg þess vegna óhræddur af stað“

Nú er svo komið að Lína Móey Bjarna­dóttir, eig­in­kona Johns Snorra, segir litla sem enga von á því að hann finn­ist á lífi. „Við vitum að núna þegar myrkrið skellur á í fjall­inu er lítil von um að John finn­ist á lífi. Vonin um að þeir finn­ist á lífi mjög lítil því aðstæður á fjall­inu eru virki­lega erf­iðar og kuld­inn mik­ill. Hugur okkar er hjá John Snorra, Ali og J Pablo. Sajid er kom­inn til byggða og við erum þakk­lát fyrir að hann er öruggur. Þetta er erf­iður tími okkur fjöl­skyld­una og við óskum eftir því að fá and­rými til að takast á við þessa þung­bæru stöðu,“ sagði Lína í til­kynn­ingu sem hún sendi út í gær.

Colin O´Brady, heims­þekktur fjalla­garpur, telur að John Snorri sé nú lát­inn. Sjálfur glímdi hann við K 2 í vetur en ákvað að snúa við. Hann rit­aði harm­þrungna færslu á Instragram-síðu sinni.

„Ég hef haldið aftur af því skrifa þessa færslu, í veikri von um að vinir mínir gætu enn verið á lífi. En núna hafa liðið fjórar nætur frá því ég var síð­ast með þeim Ali Sadpara, John Snorra and JP Mohr í grunn­búðum 3 á K2 og enn hefur ekki heyrst frá þeim eftir að þeir héldu áfram áleiðis á topp­inn en ég, af ein­hverjum ástæðum, ákvað að fylgja eðl­is­á­vís­un­inni og snúa við. Ég tel nú að þeir séu ekki lengur á lífi,“ segir Brady og bætir við:

„Allir menn­irnir þrír voru feður. Hjarta mitt er brostið vegna barna þeirra og fjöl­skyldna. Þessir menn voru stór­merki­legar mann­eskjur, hlýir og ást­úð­legir og höfðu til að bera mikil heil­indi. Sökn­uð­ur­inn eftir þeim verður hræði­legur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Atvikið varð við lögreglubifreið eftir að dyraverðir höfðu óskað aðstoðar
Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Innlent

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

„Þegar ég sat á Alþingi fékk ég yfir mig gríðarlega reiði vegna útlendingamála. Haturspósta, persónulegar árásir og líflátshótanir.“
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ