Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Í huganum sé ég sjálfan mig á tindinum og legg þess vegna óhræddur af stað““

„Í huganum sé ég sjálfan mig á tindinum og legg þess vegna óhræddur af stað““

„Já ég hef engar efa­semdir um það, þetta sem er að hrjá mig núna er hraða álag. Ferðin upp K2 er allt ann­ars eðlis og hefur lítið með hraða að gera og þannig ekk­ert til að hafa áhyggjur af,“ sagði John Snorri Sig­ur­jóns­son fjalla­garpur í sam­tali við Mannlíf þegar hann var spurður út í hvort hann hefði áhyggjur af ferð sinni upp á hið mann­skæða fjall K 2. Þá hafði hann kennt sér meins í æfingum á Esjunni.

Ekkert hefur heyrst frá Johns Snorra í rúma tvo sól­ar­hringa. Stað­setn­ing­ar­tæki hans hefur ekki sent frá sér boð síðan fyrir tveimur dögum þegar hann var staddur í ríf­lega 8.000 metra hæð. Leit stendur enn yfir að John Snorra og félögum hans tveimur, þeim Juan Pablo Mohr og Ali Sadpara. Félag­arnir fjórir lögðu upp í loka­á­fang­ann á tind­inn á fimmtu­dags­kvöld. Fjórði mað­ur­inn í leið­angri þeirra snéri við þar sem súr­efn­is­tæki hans virk­aði ekki en áður hafði 22 manna göngu­hópur líka snúið við af ótta við aðstæður á fjall­inu. Úr þeim hópi lést einn göngu­maður.

Gríð­ar­lega erf­iðar aðstæður eru á fjall­inu, sem er eitt það mann­skæð­asta í heimi. Allt að 75 stiga frost er á toppnum og vind­kæl­ing. Vonast er til að félag­arnir þrír kom­ist af í þessum hrika­legu aðstæðum. Þeir eru allir þaul­reyndir fjall­göngu­menn og í góð formi. John Snorri er einn allra fremsti fjall­göngu­maður Íslend­inga og hefur sigrað flesta af hæstu tindum heims.

Græni hring­ur­inn sýnir flösku­háls­inn þar sem John Snorri og félagar sáust síð­ast. Þeir áttu þá eftir um fjögur hund­ruð metra leið upp á topp­inn.

John Snorri fjalla­maður stefndi á það að klífa K2 tind­inn í Pakistan, fyrstur manna í heim­inum að vetr­ar­lagi og lagði af stað í jan­úar. K2 er næst hæsta fjall í heimi og er á landa­mærum Kína og Pakistan og senni­lega erf­ið­asta fjall í heimi að klífa. John Snorri hafði áður kom­ist upp fjallið að sum­ar­lagi.

Sjá einnig: Hundruð biðja fyrir lífi og end­ur­komu John Snorra: „Guð blessi ykkur, vinir mínir“

Einfaldur sveitastrákur úr Ölfusinu

John Snorri er 47 ára gam­all en hann fædd­ist 20. júní 1973. Hann ólst upp á bænum Ing­ólfs­hvoli í Öflusi og gekk í grunn­skóla í Hvera­gerði. Í við­tali við DV sum­arið 2017 lýsti hann sjálfum sér sem ein­földum sveita­strák. „Og það eru nú ekki há fjöll þar þannig að það má eig­in­lega segja að ég sé flat­lend­ingur. Ég var góður í íþróttum, sér­stak­lega í hlaupi, hand­bolta og fót­bolta. Ég var til dæmis eitt sinn val­inn knatt­spyrnu­maður árs­ins í Hvera­gerði. Í hand­bolt­anum skor­aði ég oft helm­ing­inn af mörk­unum. Ég var mjög nettur og snöggur og sterkur. Ég hætti svo alveg í íþrótt­unum 17 ára,“ sagði John Snorri.

Fjölmargir sitja á bæn

K2 er næst hæsta fjall í heimi og senni­lega erf­ið­asta fjall í heimi að klífa. Það var fyrst klifið árið 1954 en aðeins hafa um 460 manns lagt á bratt­ann, þar á meðal John Snorri sum­arið 2017. Ekki hefur þó öllum tekst að kom­ast á hæsta hjalla fjalls­ins og um fjórð­ungur þeirra sem lagt hafa til atlögu hafa farist í þeim ferðum. Fyrir hverja fjóra sem kom­ast á topp­inn þá lætur einn lífið.

Fjöl­margir víða um heim sitja nú á bæn og með kross­lagða fingur í þeirri von að John Snorri Sig­ur­jóns­son fjalla­garpur og göngu­fé­lagar bjargist ofan af hinu mann­skæða fjalli. Þar hefur ekk­ert heyrst til hóps­ins í rúma tvo sól­ar­hringa og björg­un­ar­þyrlur hafa þurft frá að hverfa.

„John Snorri er einn sterkasti, jákvæð­asti og hug­rakkasti maður sem ég hef hitt á ævinni. Kæri vinur, komdu örugg­lega til baka fljót­lega. Bænir mínir eru hjá þér, ég trúi á þig…,“

Líkt og Mannlíf greindi frá í gær er John Snorra og tveggja félaga hans saknað á fjall­inu við gíf­ur­lega erf­iðar aðstæður. Þegar hafa borist mörg hund­ruð kveðjur inn á Facebook-síðu Johns Snorra þar sem gíf­ur­legum dugn­aði hans er lýst og mann­kostum. Allir leggj­ast þar á eitt og biðja fyrir öruggri end­ur­komu íslenska fjallagarps­ins og félaga hans. Þeirra á meðal eru margir Íslend­ingar.

Sjá einnig: Leitin að John Snorra bar ekki árangur – Aðstæður á fjall­inu fara versn­andi

Fjall­göngu­mað­ur­inn John Snorri hefur reglu­lega ratað í fjöl­miðla vegna ítrek­aðra til­rauna til að klífa hæstu fjöll heims. Hann var til að mynda fyrstur Íslend­inga til að klífa tind­inn K2 að sum­ar­lagi. Þegar hann greindi frá fyr­ir­tætlun sinni að klífa fjallið að vetr­ar­lagi voru um það skiptar skoð­anir hér­lendis.

Johns Snorri og félagar hans sem saknað er á K 2.

Í veðra­vít­inu í hlíðum K2 að vetr­ar­lagi höfðu John Snorri og félagar hans beðið færis í grunn­búðum. Beðið eftir góðum veð­ur­glugga sem loks opn­að­ist 4. og 5. febr­úar.

„Til­finn­ing­arnar eru alls­ráð­andi og ég er spenntur fyrir atlög­unni að toppnum. Við höfum verið hérna í langan tíma. Hjörtu okkar eru full af þakk­læti vegna stuðn­ings­ins sem við finnum frá fólki um heim allan. Vonandi verður þetta glugg­inn okkar til að kom­ast á topp K2 að vetr­ar­lagi,“ skrif­aði John Snorri áður en hann hélt af stað úr grunn­búðum.

Ráðist var í lokakafl­ann á tind­inn að kvöldi fimmtu­dags­ins 4. febr­úar. Síðan þá hefur því miður ekk­ert heyrst frá John Snorra og félögum. Íslenski fjalla­garp­ur­inn er þekktur sem ofur­menni og því lifir von­inn enn um að þeir finn­ist. Sú von minnkar með tím­anum enda aðstæður í fjall­inu gríð­ar­lega erf­iðar og kuld­inn slíkur að fæstir Íslend­ingar geta lík­lega ímyndað sér.

Sjá einnig: Svona er veðrið núna hjá John Snorra á K2 – Myndir af vett­vangi leitar sem engu hefur skilað

Víðtæk leit hers­ins hefur staðið yfir í allan dag en því miður hefur leit til þessa engan árangur borið. Í Pakistan tók að dimma klukkan tvö að íslenskum tíma sem dró mjög úr leit­ar­mögu­leik­unum. Pakist­anski her­inn hefur stýrt umfangs­mik­illi leit á svæð­inu í gær og í dag. Þyrlur hafa verið nýttar við leit­ina ásamt gervi­hnatta­myndum.

Gíf­ur­legur kuldi er í fjall­inu sem gerir leit­ina afar erf­iða. Hann mælst nú allt að -75 gráður og hér fyrir neðan má sjá mynd­band sem sýnir erf­iðar veð­ur­að­stæður á K 2 klukkan ríf­lega tíu í morgun.

Sajid Sadpara, sem var með John Snorra á K2 en þurfti að snúa við þar sem súr­efn­iskútur hans bil­aði, seg­ist von­lít­ill um að faðir hans og sam­ferða­menn finn­ist á lífi. Sagði Sadpara að björg­un­ar­að­gerðir ættu að snú­ast um að finna lík­ams­leifar en lík­urnar á því að ein­hver gæti kom­ist lífs af eftir þriggja daga dvöl í 8 þús­und metra hæða væru litlar sem engar. Frá þessu var greint á Vísi sem aftur vís­aði í pakist­anski mið­il­inn The Nation

Að sjá íslenska fánann blakta fyrstur allra

„Und­ir­bún­ingur þess að klífa hæstu fjöll er að mestu leyti sá að hafa hug­ar­farið rétt, enda þó verk­efnið núna verði mikil þrekraun og ferða­lagið hættu­legt. Sjálfur hef ég hins vegar góða þjálfun og í hug­anum sé ég sjálfan mig á tind­inum. Þess vegna legg ég óhræddur af stað,“ sagði John Snorri Sig­ur­jóns­son í haust.

„Mark­miðið mitt og draumur er að sjá íslenska fán­ann blakta fyrstur allra þjóð­fána á toppi K2 að vetr­ar­lagi.“

John Snorri æfði sig meðal ann­ars með því að fara fjölda ferða upp á Esjuna sem hluta af fjár­öflun ferð­ar­innar. Leið­ang­ur­inn og atlagan að K 2 að vetr­ar­lagi er ekki ódýrt verk­efni og gerði kostn­að­ar­á­ætlun ráð fyrir 22 til 24 millj­ónum.

Sjá einnig: Ekkert hefur heyrst frá John Snorra í sól­ar­hring-Leitað á K 2

Kleif K2 árið 2017 á methraða

John Snorri vann það þrek­virki í júlí 2017 að klífa næst­hæsta fjall heims, K2 sem er 8.611 metrar á hæð. Áður hafði hann klifið fjallið Lhotse í maí, en hann lauk ferð­inni svo á því að klífa tind­inn Broad Peak. Alls kleif hann því þrjá af hæstu tindum heims, sem allir eru yfir 8.000 metrar á hæð.

Enginn annar í heim­inum nema John Snorri og sjerp­inn Tsering hafði farið á topp K2 og topp­inn á Broad Peak á sjö dög­um. Enginn hafði heldur áður farið frá grunn­búðum upp á Broad Peak og aftur niður á tveimur dögum.

„Þetta er alltaf mikil áhætta og þetta fjall er ekki með góða töl­fræði. Maður reynir að fara var­lega.“

Fyrr í leið­ingrinum nú að vetr­ar­lagi hafði John Snorri lent í vanda á K 2. Sendi­tæki hans sýndi þá að hann væri í um 6000 metra hæð en ljóst var að hann væri í vanda sem er dag­legt brauð á fjall­inum. John Snorri þurfti að berj­ast fyrir því að kom­ast niður en það tókst sem betur fer í það skiptið. Nú von­ast öll íslenska þjóðin að honum tak­ist það líka í þetta sinn. Lang­þráður draumur hans var að klífa K3 að vetr­ar­lagi og verða fyrstur til þess.

Á síð­asta ári varð hann að hverfa frá en reyndi aftur í ár. Sú för hófst fyrir tæpum tveimur mán­uðum þegar hann lagði á fjallið ásamt félögum sínum. Annar hópur náði á tind­inn 16. jan­úar síð­ast­lið­inn. Þá hafa þrír reyndir fjall­göngu­menn farist í fjall­inu að und­an­förnu.

Þótt nepalskir ofur­hugar hafi orðið fyrri til ætl­aði John Snorri sér á topp­inn. Engu skipti þótt til­raun hans í fyrra hefði ekki gengið sem skildi. Fjallið er talið eitt það hættu­leg­asta í heimi. Mesti háskinn stafar af snjó­flóðum og hruni sem er sum­part ófyr­ir­sjá­an­legt.

John Snorri hefur verið dug­legur að segja frá ferð sinni á Facebook en ekki hafa borist nýjar fréttir síðan snemma í gær­morgun. Verk­efnið er lík­lega það stærsta sem íslenskur fjall­göngu­maður hefur tek­ist á við.

„Og það eru nú ekki há fjöll þar þannig að það má eig­in­lega segja að ég sé flat­lend­ingur,“ sagði John Snorri um upp­vöxt sinn í Ölfusi.

„Þetta er alltaf mikil áhætta og þetta fjall er ekki með góða töl­fræði. Maður reynir að fara var­lega. Við erum þrír saman. Það er einn sem klifrar á undan á meðan er annar sem fylgist með fjall­inu. Það sem við erum að lenda mikið í núna er þetta grjót­hrun í fjall­inu,” sagði John Snorri í við­tali við síð­deg­is­út­varp Rásar 2.

Daginn áður hafði lík banda­ríska fjall­göngu­manns­ins Alex Goldfrab fund­ist í hlíðum fjalls­ins. John Snorri hafði tekið þátt í leit að honum. Á föstu­dag­inn lést svo búlgarskur fjall­göngu­maður á K 2 eftir að hafa hrapað á leið­inni niður í grunn­búðir.

Nokkrar staðreyndir

  • John Snorri var fyrstur íslend­inga til að klifra K2 árið 2017
  • Hann hefur klifið 4 af 14, 8000 metra fjöll­unum
  • K2 er í Pakistan og er annað hæsta fjall í heimi
  • K2 er oft kallað „ the mountain of mountains“ vegna þess hve erfitt það er
  • Það var fyrst nú í vetur sem tókst að toppa K2 að vetri til, en það hefur verið reynt fjögur tíma­bil
  • K2 er síð­asta 8000 metra fjallið sem á eftir að toppa á vetra­tíma­bili
  • Á vet­urna fer frostið niður í -73 °C og vind­ur­inn í 36 metra á sek­úndu
  • Vetr­ar­leið­angur tekur þrjá mán­uði
  • Lega fjalls­ins er á mjög afskekktu svæði í Pakistan og getur tekið allt upp í sex til tíu daga að kom­ast að rótum fjalls­ins frá síð­asta fjalla­þorp­inu
  • Pakist­anski her­inn er eini sem má fljúga þyrlu að fjall­inu, því geta björg­un­ar­að­gerðir verið erf­iðar
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi