Ragnhildur Jóhanns, listakona búsett í Norðurmýrinni í Reykjavík, lýsir á Facebook upplifun sinni af dýraníðingi sem hefur vakið óhug meðal íbúa í hverfinu. Líkt og Mannlíf hefur áður greint frá þá hverfa kettir áberandi oft í hverfinu og virðist einn maður liggja undir grun. Ragnhildur segist búa í næsta húsi við hann.
„Um nokkurt skeið núna hafa íbúar Norðurmýrar vitað af því að það væri dýraníðingur í hverfinu. Hann hefur meðal annars verið gripin glóðvolgur við það að reyna að stela ketti en lítið annað hefur verið sannað á manninn, en hann hefur líka verið gripinn með ólar af köttum í höndunum sem voru útklóraðar,“ skrifar Ragnhildur í færslu sem hefur vakið mikla athygli.
Sjá einnig: Óhugnanleg ráðgáta í Norðurmýrinni – Kettirnir hverfa – „Ég fer með mína í beisli út í garð“
Hún segist nýlega hafa átt sér stað furðuleg atvik. „Við búum í næsta húsi við meintan níðing með 3 ketti og á síðustu viku hafa nokkur undarleg atvik átt sér stað sem við höfum þó ekki velt okkur mikið upp úr. Eina nóttina hverfur ólin hennar Esju sem þó gæti vel átt sér eðlilegar útskýringar en þessa sömu nótt lokast glugginn sem kettirnir okkar þrír nota til að komast inn og út, en þessi gluggi hefur aldrei áður lokast svona, ekki einu sinni í miklu roki og Esja og eldri fressinn voru föst úti. Svo gerist það að á mánudagsmorgun sl. er Esja horfin og ekkert sést til hennar þrátt fyrir ítrekaðar leitarferðir um hverfið. Að lokum auglýstum við eftir henni á samfélagsmiðlum og hálftíma síðar labbar litla greyið inn,“ segir Ragnhildur.
Hún segir Esju litlu hafa verið útataða í eigin saur. „Hafði hún þá verið í burtu allan daginn og trúlega nóttina líka. Veðrið var gott og þurrt en ástandið á kettinum var vægast sagt skelfilegt og þetta var engan vegin köttur sem gæti hafa verið í tæplega sólarhrings ævintýri. Hún var í miklu sjokki, mjálmaði ekki en vanalega er hún mjálmandi út í eitt. Hún var stjörf og útötuð, allur bakhluti og lengst upp á bak í eigin saur og hlandi sem gefur til kynna að hún hafi verið innilokuð í litlu rými (t.d. poka) sem hún gat ekki hreyft sig í. Hún var svo úrvinda að hún gat ekki þvegið sér, hvorki borðað né drukkið og dró sig alveg í hlé inn i bælið sitt og svaf. Kettirnir okkar eiga það til að fara á flakk og koma aftur í misgóðu ástandi eins og gengur, en aldrei höfum við séð eins illa útleikinn kött eftir hvarf eins og hana Esju í gær og erum sannfærð um að hún hafi horfið af mannavöldum og verið haldið einhvers staðar,“ lýsir Ragnhildur.
Hún segir nauðsynlegt að stoppa manninn. „Hinn meinti níðingur í næsta húsi er grunaður um að setja ketti í poka þó ekki hafi tekist að færa sönnur á slíkt. Hann hefur ítrekað verið sakaður um dýraníð og við vitum að í að minnsta kost eitt skipti hefur lögregla komið og rætt við manninn en eitthvað þarf augljóslega að gera, kettir hverfisins eru í hættu meðan að þessi maður leikur laus!,“ segir Ragnhildur en biðlar þó til fólks að taka ekki lögin í sinar hendur.
„Esja er að jafna sig og er öll að hressast og farin að mjálma aftur og við erum líka að reyna að jafna okkur á þessu atviki og með þessum pósti viljum við fyrst og fremst aðvara nágranna okkar í Norðurmýrinni og við biðlum til fólks að taka ekki lögin í sínar hendur né fari að skipta sér að þessu, þetta hefur verið tilkynnt og er allt í ferli.“
































Athugasemdir