Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Heilbrigðiseftirlitið skráði brot á lögum eða starfsleyfi í öllum eftirlitsferðum í Sælukot

Þrátt fyrir skýr brot á ákvæðum starfs­leyfis eða laga í eft­ir­lits­skýrslum Heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur var aðeins ein eft­ir­fylgni­ferð farin á leik­skól­ann Sælukot frá árunum 2016 til 2021.

Heilbrigðiseftirlitið skráði brot á lögum eða starfsleyfi í öllum eftirlitsferðum í Sælukot
Leik­skól­inn Sælukot

Mannlíf hefur síð­ustu vikur fjallað um leik­skól­ann Sælukot en fyrsta umfjöll­unin var frá­sögn móður barns við leik­skól­ann. Kom upp grunur um að barnið hefði verið beitt kyn­ferð­is­of­beldi af hálfu starfs­manns og sagði móð­irin frá mál­inu.
Í kjöl­far umfjöll­unar á leik­skól­anum hafa bæði for­eldrar barna við leik­skól­ann og fyrr­ver­andi starfs­fólk Sælukots sett sig í sam­band við Mannlíf og sagt sína upp­lifun og reynslu.

Þá segj­ast fyrr­ver­andi starfs­menn ítrekað hafa til­kynnt að ástandið á leik­skól­anum væri slæmt og ekki farið þar eftir reglum er varða rekstur leik­skóla. Auk þess hafi verið rætt við Reykja­vík­ur­borg.

Þá er ein­róma skoðun fyrr­ver­andi starfs­manna að stjórn leik­skól­ans væri vanda­málið.
Mikil mann­ekla hafi verið við­var­andi lengi og allt of mörg börn séu á hvern starfs­mann. Þá segir fyrr­ver­andi starfs­maður börnin oft vera eft­ir­lits­laus vegna þess. Hægt væri að koma í veg fyrir óæski­leg bit og slys ef starfs­menn væru fleiri.

Þá segja starfs­menn­irnir að stjórn leik­skól­ans sinni ekki ábend­ingum sem henni ber­ast er varða úrbætur. Sama hvort það varði leik­skóla­lóð, sam­skipti, starfs­fólk eða slysa­hættu.

Þá séu aðstæður við leik­skól­ann slæmar, bæði inn­an­húss og utan.

Starfs­maður segir frá því að börn hafi hlaupið út af leik­skóla­lóð og verið komin út á götu. Þetta átti sér stað fyrir fáeinum dögum en komust þau út um hlið sem ekki var nægi­lega vel gengið frá – þrátt fyrir margar ábend­ingar.

Mannlíf setti sig í sam­band við Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur og óskaði eftir öllum eft­ir­lits­skýrslum Sælukots frá árinu 2014–2021.
Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur hefur árlegt eft­ir­lit með leik­skólum og kall­ast það reglu­bundið eft­ir­lit.

Á skýrsl­unum frá árinu 2016-2021 var farið í reglu­bundið eft­ir­lit á Sælukoti.

Allar skýrslur höfðu fleiri en eitt frá­vik en er hug­takið frá­vik skýrt í skýrsl­unni.
Frávik: Frávik eru skráð ef um er að ræða skýr brot á ákvæðum starfs­leyfis eða laga og reglu­gerða er um starf­sem­ina gilda. Um er að ræða frá­vik sem fylgt er sér­stak­lega eftir við eft­ir­fylgni.

Aðeins ein eft­ir­fylgni­ferð var skráð, og var sú árið 2016.
Þá kemur hvergi fram að önnur eft­ir­fylgni­ferð hafi átt sér stað þrátt fyrir að í skýr­ingu á hug­tak­inu „frá­vik“ segi: „Um er að ræða frá­vik sem fylgt er sér­stak­lega eftir við eft­ir­fylgni.“

Engar frek­ari skýr­ingar hafa feng­ist frá Heil­brigð­is­eft­ir­lit­inu að svo stöddu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi