Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Grunur um kynferðisbrot á leikskólanum Sælukoti þaggað niður: „Hún öskurgrét þegar hún sá hann

Grunur um kynferðisbrot á leikskólanum Sælukoti þaggað niður: „Hún öskurgrét þegar hún sá hann

Greint var frá því í ágúst að starfs­maður á leik­skól­anum Sælukoti í Reykja­vík hafi verið sak­aður um ofbeldi í garð barns á leik­skól­anum.
Maðurinn var leystur frá störfum eftir þrjár til­kynn­ingar frá móður barns­ins sem átti í hlut en fjöldi ann­arra til­kynn­inga hafa borist, bæði vegna starfs­manns­ins og ann­ara mála á leik­skól­anum.
Móðir barns­ins segir að leik­skól­inn hafi brugð­ist og mis­tök hafi verið gerð á mörgum sviðum máls­ins.
Eftir til­kynn­ingu móð­ur­innar settu nokkrir for­eldrar sig í sam­band við hana og sögðu að þeim gruni sterk­lega að sín börn hafi lent í því sama og að um kyn­ferð­is­brot væri að ræða.

Móðir barns­ins vill ekki láta nafn síns getið en hún telur það rétta í stöð­unni að stíga fram og segja sög­una í von um að það hjálpi. Gerði hún það í við­tali við Mannlíf.

Móðirin segir að frá­sagnir barns­ins hafi byrjað í sept­em­ber 2020, en í fyrstu hljóm­uðu þær eins og barnið gæti mögu­lega hafa lent í ein­hvers­konar kyn­ferð­is­of­beldi. Barnið var þá þriggja ára gam­alt og segir móð­irin að frá­sagn­irnar hafi verið heldur óskýrar, enda barnið ungt. Þetta vakti þó grun hennar og áhyggjur.

Skýrar reglur gilda í leik­skólum um vinnu­brögð, vakni grunur um að barn hafi verið beitt ofbeldi. Starfs­menn leik­skóla mega aldrei tala um, eða yfir­heyra barn um slík mál. Það sé mjög mik­il­vægt svo að ekki ruglist frá­sögn barns­ins.

Móðirin segir að þar hafi mis­tök verið gerð en var barnið kallað á fund, án vit­neskju móður og án þess að nokkur for­ráða­maður hafi verið við­staddur.
Á fund­inum sátu þrír aðilar, rekst­ar­að­ili leik­skól­ans sem er einng húmanískur leik­skóla­stjóri, túlkur, þar sem að rekst­ar­að­il­inn talar ensku og barnið.
Eftir fund­inn hringdi rekstr­ar­að­il­inn í móður barns­ins og til­kynnti henni að þau hefðu kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að barn­inu hefði ein­fald­lega verið að dreyma.
Móð­ur­inni var brugðið við sím­talið, bæði vegna fund­ar­ins og yfir­heyrsl­unar.
„sem er nátt­úr­lega ekki ráð­lagt að gera nema í Barna­húsi, þegar vaknar grunur,“ segir móð­irin.

Barnið, sem móð­irin segir almennt félags­lynt, breytt­ist í hegðun og var orðið ólíkt sér þegar það sá mann­inn en var það hrætt við hann.
„Hún bara öskur­grét þegar hún sá hann, og ég bað um að hann væri ekki í kringum hana eftir það“.
Í byrjun var sú krafa móð­ur­innar virt en einn dag þegar hún sótti barnið kom það grát­andi út í bíl og sagði að rekstr­ar­að­il­inn hafi látið hana knúsa mann­inn í þeim til­gangi að „sætt­ast“.
Rekstr­ar­að­il­inn gekkst við þessu á for­eldra­fundi og stað­festi frá­sögn barns­ins.
Maðurinn var einnig settur í afleys­ingar á deild barns­ins og í úti­veru.

Í júní á þessu ári kom önnur frá­sögn frá barn­inu sem móð­irin til­kynnti til Barna­vernd­ar­nefndar.
„Ég tek börnin eftir þessa frá­sögn og held þeim heima,“ segir móð­irin en hún átti tvö börn á leik­skól­anum.
Maðurinn var enn við störf á leik­skól­anum og var ekki sendur í leyfi fyrr en móð­irin hafði sam­band við Reykj­ar­vík­ur­borg.
Stuttu síðar barst móð­ur­inni tölvu­póstur frá rekstr­ar­að­il­anum.
„Þar sem hún spyr mig hvor hún megi ekki bjóða honum á sum­ar­há­tíð­ina á leik­skól­anum, þar sem að við myndum vera“.
Móð­ur­inni þótti þetta mjög óvið­eig­andi, auk þess hafði rekstr­ar­að­il­inn sam­band við móð­ur­ina sím­leiðis, nán­ast dag­lega þar sem hún efað­ist um frá­sagnir barns­ins.
„Hann getur ekki hafa gert þetta því hann fór að gráta, og hann er svo þung­lyndur,“ var meðal þess sem rekstr­ar­að­il­inn sagði.

Í júlí fór barnið í Barnahús. Þá hafði móð­irin tekið þá ákvörðun að börnin færu ekki aftur á leik­skól­ann sem var lok­aður í júlí vegna sum­ar­frís.
Þegar leik­skóla­starf hófst aftur eftir sum­ar­frí frétti móð­irin að mað­ur­inn væri mættur aftur til starfa.
Henni blöskr­aði.
„Ég hringdi í leik­skól­ann og sagði að mér þætti það óvið­eig­andi að mað­ur­inn væri þarna,“ svör leik­skól­ans voru ekki á þann veg er hún bjóst við.
„Þær sögðu að hann mætti ekki vera einn með börnum“
Stuttu síðar bár­ust móð­ur­inni til­kynn­ingar um það að mað­ur­inn hafi samt sem áður verið einn með börnum og meðal ann­ars tekið einn á móti þeim á morgn­anna.

Þriðja frá­sögn barns­ins kom í ágúst. Þá hafði barnið ekki verið á leik­skól­anum frá því í byrjun sum­ars. Móðirin sagði frá­sögn­ina hafa verið mjög skýra og segir að hún hafi ekki verið í neinum vafa um það að eitt­hvað hafi komið fyrir barnið.

Móðirin taldi það rétta í stöð­unni að upp­lýsa aðra for­eldra um málið, án þess þó að fara út í smá­at­riði og án þess að nafn­greina aðil­ann. Fyrir það hafi hún spurt stjórn­endur leik­skól­ans hvort það þyrfti ekki að upp­lýsa for­eld­rana um stöðu mála en var þver­tekið fyrir það.
Eftir að hún til­kynnti for­eldrum um stöðu mála á lok­uðum Facebook-hópi fékk hún skila­boð.
„Þá fæ ég að heyra ýmis­legt annað frá öðrum for­eldrum,“segir móð­irin. Maðurinn var lát­inn hætta sama dag og hún til­kynnti for­eldrum stöð­una.

For­eldra­fundur er hald­inn í kjöl­farið.
Móðirin segir að það séu síð­ustu sam­skipti sem hún hafi átt við stjórn­endur leik­skól­ans. Á fund­inum gerði móð­irin athuga­semdir við margt sem hafði gerst og seg­ist hún hafa fundið mik­inn stuðn­ing frá for­eldrum. Þó hafi nokkrir sagt að þetta sam­tal ætti ef til vill ekki rétt á sér á þessum tíma.

Á for­eldra­fund­inum voru kynntar nýjar reglur leik­skól­ans.
„Tóku það þá fram að fram að starfs­fólkið mætti ekki kyssa börnin, sér­stak­lega ekki á munn­inn“.
Móðirin sagði að sér og eflaust öðrum hafi þótt þetta mjög und­ar­leg regla.
„Er þetta ekki bara almenn regla?“ bætti hún við.
Önnur regla var sú að starfs­menn mættu ekki fara með börnin ein út af skóla­lóð­inni.

Skömmu eftir að móð­irin hafði til­kynnt for­eldrum frá því sem væri í gangi gaf for­eldra­ráð út þá til­kynn­ingu að þau hefðu fengið nán­ari upp­lýs­ingar um málið. Þegar móð­irin fór að athuga við hvað væri átt kom í ljós að stjórn­endur hefðu upp­lýst for­eldra­ráð um mál barns­ins í smá­at­riðum þótt hún teldi hún slíkt vera trún­að­ar­mál.

Móðirin segir að hún hafi verið í mik­illi óvissu um það hver næstu skref yrðu á þessum tíma og sótti hún um leik­skóla hjá Reykj­ar­vík­ur­borg. Á meðan því ferli stóð tal­aði hún við for­varn­ar­full­trúa hjá borg­inni sem sagði henni að erfitt væri fyrir Reykja­vík­ur­borg að taka á starfs­manna­málum.
„Þau gætu svo lítið gert af því að þetta væri einka­rek­inn leik­skóli“.
For­varn­ar­full­trú­inn sagði henni að úttekt hafi verið gerð á leik­skól­anum og var mörgu ábóta­vant. Mörg lokuð rými með engum gluggum, lok­aðar skipti­að­stöður og starfs­menn of mikið einir með börnum.

Móðirin segir vita til þess að margir hafi tekið börnin sín af leik­skól­anum, svo margir að tölvu­póstur var sendur á alla for­eldra. Í tölvu­póst­inum var for­eldrum til­kynnt að það væri upp­sagna­frestur og fólk gæti ekki tekið börnin af skól­anum fyr­ir­vara­laust. Móðirin telur að póst­ur­inn hafi verið sendur vegna þess að svo margir færðu börnin, en þar sem leik­skól­inn er einka­rek­inn stólar hann að öllum lík­indum mikið á leik­skóla­gjöld.

„Við erum búin að kæra til lög­reglu, ég veit ekki hvað ger­ist næst‘‘.
Hún telur það rétta að segja frá sinni reynslu í þeirri von að hjálpa öðrum, að ekki megi þagga niður svona mál.
„Ég er bara mjög ánægð að hafa gert það , þótt það myndi bara hjálpa einu öðru barni,“ segir hún og bætir við að frá­sagnir barns­ins hafi nú staðið í eitt ár.
„Það eru ennþá að koma frá­sagnir frá barn­inu, ári seinna“.
Móðirin segir að nokkrir for­eldrar hafi haft sam­band við sig eftir að hún sagði frá mál­inu í for­eldra­hópnum á Facebook.
„Ég er búin að heyra af mjög sterkum grun frá nokkrum for­eldrum um að eitt­hvað svipað hafi komið fyrir‘‘.

Móðirin tekur fram að margir af þeim sem starfi við leik­skól­ann séu frá­bærir starfs­menn en vand­inn liggi í stjórn­inni.
„Ég er mjög sár út í leik­skól­ann. Það hefur eng­inn komið til mín og sagt bara leið­in­legt að heyra, heldur alltaf bara bull­andi vörn“

Auk þess segir móð­irin að leik­skól­inn hafi gert lítið úr frá­sögnum barns­ins en hún þekki barnið sitt best.
„Fyrir mig, þá fer ekk­ert á milli mála að eitt­hvað hafi komið fyrir hana,“ segir hún.
Hún hafi fengið góðan stuðn­ing frá mörgum for­eldrum barna á leik­skól­anum en ekki á frá þeim stöðum sem við mætti búast.

„Aldrei í þessu ferli hef ég heyrt – Hvað ef þetta gerð­ist, heldur bara hvað ef þetta gerð­ist ekki. Það var efast um allt,“ segir móð­irin að lokum.

Þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir til að ná tali af stjórn­endum Sælukots gekk það ekki.
Rekstr­ar­að­ili og leik­skóla­stjóri eru enn starf­andi við leik­skól­ann. Ekki er vitað hvar mað­ur­inn sem leystur var frá störfum starfar nú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi