Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
Ragnar við gamla Morris bif­reið sína á gatna­mót­unum þar sem leyni­fund­ur­inn átti að fara fram. Mynd: Vísir
Hlustaðu 06:47 · Gervigreind les með rödd Nonna.

Styrmir Gunn­ars­son heit­inn er ekki eini njósn­ari Íslands­sög­unnar. Á meðan Styrmir njósn­aði um vinstri­s­inn­aða Íslend­inga fyrir Banda­ríkin og Sjálf­stæð­is­flokk­inn, reyndu Soví­et­menn að fá Ragnar nokkurn Gunn­ars­son til lags við sig. Árið 1962 hafði Ragnar sam­band við lög­regl­una og tjáði þeim frá því að Soví­et­menn væru að biðja hann um að ger­ast njósn­ari í þeirra þágu. Við tók reyfara­kennd atburða­rás sem varð til þess að tveir njósn­arar frá Sovéska sendi­ráð­inu voru reknir frá land­inu með skömm.

Morg­un­blaðið fjall­aði um málið fyrst allra og gerði það ítar­lega. Hér er brot úr fyrstu frétt­inni frá þeim um málið, þann 27. febr­úar 1962:

„TVEIR RÚSSNESKIR SENDIRÁÐSSTARFSMENN hafa verið staðnir að verki við njósn­a­starf­semi hér á landi. Reyndu þeir að fá íslend­ing, sem fyrir nokkrum árum var boðið til Rúss­lands í æsku­lýðs­sendi­nefnd og hefur verið flokks­bund­inn komm­ún­isti, til að njósna fyrir sig. Þegar hann sá að ætlazt var til land­ráða­starf­semi af honum, gaf hann sig fram við lög­regl­una og aðstoð­aði hana við að upp­lýsa málið. RÚSSARNIR ætl­uðu að bera fé á íslend­ing­inn, Ragnar Gunn­ars­son, til þess að fá hann í sína þjón­ustu og höfðu mestan áhuga á Kefla­vík­ur­flug­velli og mann­virkjum varn­ar­liðs­ins. HINUM rúss­nesku sendi­ráðs­mönnum hefur að sjálf­sögðu verið vísað úr landi, og hafa fregnir af atburði þessum vakið geysi­at­hygli. Í gær­kvöldi skýrðu helztu frétta­stofn­anir og útvarps­stöðvar ræki­lega frá þess­ari njósn­a­starf­semi.

Njósn­ar­arnir í sendi­ráðs­bílnum

Njósn­irnar beindust m.a. að Kefla­vík­ur­flug­velli.

Bréf dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins:

Hér með send­ist utan­rík­is­ráðu­neyt­inu yfir­lits­skýrsla, varð­andi til­raunir tveggja starfs­manna
sendi­ráðs Sov­ét­ríkj­anna hér í borg til þess að fá íslenzkan ríkisfoorgara til að starfa að njósnum fyrir þá hér á landi. Svo sem sjá má af skýrslu þess­ari hafa umræddir starfs­menn,
Lev Kisilev, 2. sendi­ráðs­rit­ari, og Lev Dimitriev, sendi­ráðs­starfs­maður, leitað til íslenzks manns, Ragnars Gunn­ars­sonar, Reykja­völlum í Mos­fells­sveit, og falið honum upp­lýs­inga­söfnun sem fram hefir átt að fara með leynd, og greitt honum pen­inga, að því er aetla verður í því skyni að fá hann til að halda áfram slíkri starf­semi. Enn­fremur kemur fram af skýrsl­unni að upp­lýs­inga söfnun þess­ari er m.a. beint að Kefla­vík­ur­flug­velli og að starfs­mönnum á flug­vell­inum, sem jafn­framt er varn­ar­stöð samkv. varn­ar­samn­ingi íslands og Banda­ríkj­anna og á vegum Atl­ants­hafs­banda­lags­ins, sem ísland er aðili að. Atferli þetta er sannað með fram­burði hins íslenzka aðila og stað­fest með fram­burði lög­reglu­manna, er í eitt sinn voru áheyr­endur að við­ræðum hans við hlut aðeig­andi sendi­ráðs­starfs­menn, og enn­fremur er stuðst við fleiri gögn. Atferli slíkt, sem hinum erlendu sendi­ráðs­starfs­mönnum hér er borið á brýn, mundi, ef hlut­að­eig­endur heyrðu undir íslenzka lög­sögu, verða heim­fært undir 93. grein almennra hegn­ing­ar­laga. Er mál­efni þetta hér með falið utan­rík­is­ráðu­neyt­inu til við­eig­andi með­ferðar.“

Af hverju Ragnar?

En hver var Ragnar Gunn­ars­son og af hverju höfðu Rúss­arnir svona mik­inn áhuga á honum? Ragnar var félagi í Menn­ing­ar­sam­bandi Íslands og Ráð­stjórn­ar­ríkj­anna, MÍR, og  hann var fyrr­ver­andi stjórn­ar­maður í Dagsbrún sem og félagi í Sós­í­alista­flokknum. Í við­tali við Morg­un­blaðið sagði hann frá kynnum sínum af Rússunum og útskýrði ástæð­una fyrir því að þeir höfðu áhuga á að fá aðstoð hans við njósnir. Þar kom fram að vegna þess að hefði verið félagi í Sós­í­alista­flokknum og árið 1953 var honum boðið til Rúss­lands á vegum And­fas­ista­nefnd Sov­étæsku­lýðs­ins eins og hún kall­að­ist. Í þeirri ferð kynnt­ist hann túlki að nafni Júrí Stepa­novit­stj en ætt­ar­nafnið fékk hann aldrei. Sá var lík­lega njósn­ari því sex árum síðar bank­aði sendi­ráðs­rit­ari sov­éska sendi­ráðs­ins á dyr heima hjá Ragnari og sagð­ist vilja bera honum kveðju frá Júrí. Við tók sífelldar hring­ingar og heim­sóknir sendi­ráðs­rit­ar­ans til Ragnar þar sem hann nauð­aði ítrekað í honum að útvega  Sov­ét­mönnum hinar ýmsu upp­lýs­ingar. Sá maður fór að end­ingu aftur til Rúss­lands en annar maður tók stöðu hans innan sendi­ráðs­ins, maður að nafni Leb Kisilev. Með á fundum þeirra Ragnars var annar starfs­maður sendi­ráðs­ins, túlk­ur­inn Leb Dimitriev.

Njósn­ar­arnir í haldi lög­regl­unnar.

Bond-leg handtaka

Fengu Rúss­arnir tveir Ragnar til þess að afla upp­lýs­inga um fólkið sem bjó á móti Kisilev, á Rán­ar­götu 22 því Rússanum grun­aði að það fólk væri að njósna um hann. Ekki gat Ragnar séð að þær grun­semdir ættu við rök að styðj­ast. að fá upp­lýs­ingar um mögu­legar fyr­ir­ætl­anir Banda­ríkja­manna á að byggja kaf­báta­stöð við Íslands. Þá vildi hann að Ragnar kæm­ist yfir upp­lýs­ingar um Kefla­vík­ur­flug­völl og svæði varn­ar­liðs­ins.  Ragnari leyst ekki á blik­una og hafði sam­band við lög­regl­una, sem plott­aði hand­töku á tveimur starfs­mönnum sendi­ráðs Soví­et­ríkj­anna.

Lög­reglu­menn­irnir földu sig meðal ann­ars bak­við þennan steypta vegg með tal­stöðvar og mót­or­hjól og biðu færis.

Hér kemur lýs­ing Morg­un­blaðs­ins á Bond-legri hand­tök­unni:

„LÖGREGLAN hafði mik­inn við­búnað fyrir fund rúss­nesku njósn­ar­anna, Kisilevs og Dimitri­evs við Ragnar Gunn­ars­son ,sl. mánu­dags­kvöld. Stefnu­mótið hafði verið ákveðið kl. 8,30 um kvöldið á vega­mótum Úlf­ars­fells­vegar og Hafra­vatns­vegar. Ákveðið hafði verið, að þetta kvöld skyldu Rúss­arnir afhjúpaðir, hvernig sem fundi þeirra og Ragnars lyktaði. Þegar klukkan 7 um kvöldið, 1 og 1/2 klukku­stund áður en stefnu­mótið átti að vera, höfðu lög­reglu­menn tekið sér varð­stöðu við öll vega­mót á Hafra­vatns­svæð­inu. Lög­reglu­menn­irnir, yfir 20 í allt, höfðu sam­band sín á milli í tal­stöðvum. Þeir leynd­ust bak við gamla bragga, í
húsa­rústum eða voru í hvarfi við hóla. Í grennd­inni var yfir­saka­dóm­ar­inn og lög­reglu­stjór­inn í bif­reið og fylgd­ust þeir með öllu, sem fram fór. Allt fór fram eins og áætlað hafði verið. Rúss­arnir komu á til­settum tíma, og annar þeirra fór upp í bíl
Ragnars. En bak við fram­sætið leynd­ust tveir rann­sókn­ar­lög­reglu­menn. — Þeir höfðu einnig tal­stöð. Á þeirri stundu, sem Rússinn tók eftir Iög­reglu­mönn­unum í bílnum, var leiknum lokið. Þeir gerðu þegar við­vart í tal­stöð­ina og lög­reglu­bílar komu á fullri ferð úr öllum
áttum. Þannig lauk ævin­týra­leg­asta njósn­a­máli, sem upp­víst hefur orðið um á íslandi.
Tveir af njósn­urum erlends stór­veldis stóðu afhjúpaðir.“

Kort sem sýnir ferðir Rússanna á leyni­fund­inn. Teikning: Morg­un­blað

Bak­sýn­is­speg­ill þessi birt­ist upp­haf­lega 11. mars 2022

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni