1
Skoðun

Spillingin sem þrífst innan valdakerfisins

2
Innlent

Halla og ökklabrotið örlagaríka: „Kannski var almættið þarna að grípa í taumana?“

3
Innlent

Faðir tekinn fullur með tvö börn í bílnum í Garðabæ

4
Fólk

Snoturt raðhús í Kópavogi óskar eftir nýjum eiganda

5
Peningar

Góð samskipti tryggja Andrési tugi milljóna

6
Heimur

Grunsamlegur líkfundur við sjóinn á Kanarí

7
Innlent

Örn dæmdur fyrir 30 þúsund klámfengnar myndir af börnum

8
Heimur

Fergie mun missa titla sína og heimili

9
Heimur

23 látnir eftir sprengingu í stórmarkaði

10
Innlent

Lögreglan lýsir eftir fólki

Til baka

Aldrei aftur tíufréttir

Eftir 35 ára sögu eru síðustu seinni fréttir sjónvarpsins liðnar hjá.

Síðustu 22 fréttir RÚV
Síðustu tíufréttirFréttamennirnir Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Höskuldur Kári Schram faðmast að loknum síðustu seinni fréttum sjónvarps í kvöld..
Mynd: Víkingur

„Þetta eru blendnar tilfinningar,“ sagði Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir eftir að hún las síðasta tíufréttatíma RÚV í kvöld.

Starfsfólk fréttastofu RÚV faðmaðist eftir útsendinguna og lokaði þar með 35 ára sögu seinni frétta sjónvarpsins.

Seinni fréttir voru orðnar svo sjálfsagður hluti íslenskrar menningar að Jóhanna Vigdís vísaði til þeirra með kerskni þegar hún titlaði aðra matreiðslubók sína Seinni réttir árið 2009.

Ákveðið hafði verið að leggja niður tíufréttirnar vegna þess að áhorf fólks á línulega dagskrá hefur skroppið saman, um hátt í eitt prósentustig á ári upp á það síðasta.

Í beinni frá Alþingi

Í síðasta fréttatímanum gerði fréttafólk RÚV það sem það hefur nýtt seinni fréttir til öll þessi ár. Þau miðluðu nýjustu fréttum kvöldsins og það með beinni útsendingu. Sunna Karen Sigurþórsdóttir fréttakona var þá stödd í húsnæði Alþingis og tók viðtal við Hildi Sverrisdóttur, þingflokksformann Sjálfstæðisflokksins, og Sigmar Guðmundsson, þingmann Viðreisnar og fyrrverandi starfsmann RÚV, um torfær þinglok. Svo fór að sögu tíufréttanna lauk á undan þinginu.

Tíufréttirnar voru í reynd seinni fréttir sjónvarpsins. Þær höfðu verið á dagskrá frá 1988 þegar aðalfréttatíminn var klukkan átta og þær seinni klukkan ellefu að kvöldi. Árið 1999 voru aðalfréttir fluttar til klukkan 19, og skaut þá fréttatíma Stöðvar 2 ref fyrir rass, sem þá var klukkan 19.19 og voru kenndar við tímasetninguna. Fyrir tilviljun var fyrr í dag sömuleiðis tilkynnt um endalok línulegs áskriftarsjónvarps Stöðvar 2, sem frá því í júní heitir SÝN.

Í tíufréttunum í kvöld var sömuleiðis greint frá nýjustu fréttum í Bandaríkjunum, þar sem Donald Trump forseti náði naumlega í gegn fjárlagafrumvarpi sínu á bandaríska þinginu. Þá sagði frá sænskum embættismanni sem sat í fangelsi í Íran í tvö ár og óttaðist að sjá aldrei fjölskyldu sína á ný. Auk þess voru birtar glefsur úr aðalfréttatímanum, meðal annars myndskeið af sjötíu sjálfboðaliðum flytja bókasafn Skálholtskirkju úr lekum kirkjuturninum. Loks komu íþróttir, þar sem Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson sýndi og lýsti mörkum kvöldsins í íslenska fótboltanum.

Fall tíufréttanna

Í síðustu viku horfðu 13% landsmanna á tíufréttirnar að meðaltali. Það var hálfu prósentu meira en áhorf á Kastljósið. Áhorf á tíufréttirnar var 18% í sömu viku ársins fyrir fimm árum, árið 2020. Löngu áður, í janúar árið 2004, mældist áhorfið tæplega 23%, sem er nálægt áhorfinu á aðalfréttatíma RÚV í síðustu viku.

Þegar aðeins er horft til þeirra sem eru undir fimmtugu var áhorfið á tíufréttirnar komið niður í 5%, samkvæmt mælingum Gallup í síðustu viku.

Síðustu 22 fréttir RÚV
Mynd: Víkingur
_77A0174
Mynd: Víkingur

„Góðir áhorfendur. Þessum síðasta tíufréttatíma sjónvarpsins er að ljúka. Og við á fréttastofunni þökkum ykkur kærlega fyrir samfylgdina hér í gegnum áratugina,“ sagði Jóhanna Vigdís, áður en birt var myndskeið úr Stuðlagili undir lagi Mugison, Stingum af. „Með þessum myndum og tónum kveðjum við ykkur með síðasta tíufréttatímann. Veriði sæl.“

Að lokum samfylgdinni ræddi Jóhanna Vigdís við Mannlíf í matsal RÚV. „Við höldum að þetta sé gæfuspor,“ sagði hún. „Af því að við munum þegar líður á færa fréttatímann til klukkan átta. Búa þá til stærri og feitari pakka. Við ætlum að koma í staðinn með meiri þjónustu.”

Fréttatíminn verður þá aftur klukkan átta, en seinni fréttirnar snúa ekki aftur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Styrkja Mannlíf

Má bjóða þér að styrkja starfsemi Mannlífs með mánaðarlegu framlagi?


Komment

Sydney Sweeney öskraði á fyrrum unnusta sinn
Heimur

Sydney Sweeney öskraði á fyrrum unnusta sinn

Er þessa stundina ein þekktasta leikkona heimsins
Stingur upp á að fylla Miklubraut af snjó
Innlent

Stingur upp á að fylla Miklubraut af snjó

Hvað er til bragðs að taka?
Skoðun

Margrét Kristín Blöndal

Hvað er til bragðs að taka?

„Ég á rosalega sterka móður sem var alltaf til staðar fyrir mig“
Innlent

„Ég á rosalega sterka móður sem var alltaf til staðar fyrir mig“

Reyndi að smygla inn kókaíni frá Kaupmannahöfn
Innlent

Reyndi að smygla inn kókaíni frá Kaupmannahöfn

Fjármálaráðherra segir ríkisstjórnina ætla gera betur
Pólitík

Fjármálaráðherra segir ríkisstjórnina ætla gera betur

Rússar drápu tvö börn í Úkraínu í nótt
Heimur

Rússar drápu tvö börn í Úkraínu í nótt

Freyja framkvæmdastjóri selur á Eiríksgötu
Myndir
Fólk

Freyja framkvæmdastjóri selur á Eiríksgötu

Fergie mun missa titla sína og heimili
Heimur

Fergie mun missa titla sína og heimili

23 látnir eftir sprengingu í stórmarkaði
Heimur

23 látnir eftir sprengingu í stórmarkaði

Faðir tekinn fullur með tvö börn í bílnum í Garðabæ
Innlent

Faðir tekinn fullur með tvö börn í bílnum í Garðabæ

Einar segir Íslendinga taka reiðiköst af litlu tilefni
Innlent

Einar segir Íslendinga taka reiðiköst af litlu tilefni

Góð samskipti tryggja Andrési tugi milljóna
Peningar

Góð samskipti tryggja Andrési tugi milljóna

Menning

Júlí Heiðar og Þórdís eru með þér í liði
Menning

Júlí Heiðar og Þórdís eru með þér í liði

Við erum öll í sama liði
Segir Línu langsokk vera orðin að „peningjasjúkum TikTok trúði“
Menning

Segir Línu langsokk vera orðin að „peningjasjúkum TikTok trúði“

Fyrsta málverkasýning Mouhamed Lo fer vel af stað
Myndir
Menning

Fyrsta málverkasýning Mouhamed Lo fer vel af stað

Hátíð hugleiðslu- og heilunartónlistar í fyrsta sinn á Íslandi
Menning

Hátíð hugleiðslu- og heilunartónlistar í fyrsta sinn á Íslandi

„Við viljum að fólk upplifi Guð í gegnum tónlistina“
Menning

„Við viljum að fólk upplifi Guð í gegnum tónlistina“

Loka auglýsingu