1
Heimur

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife

2
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

3
Heimur

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar

4
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

5
Innlent

Manía í miðborginni

6
Innlent

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti

7
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

8
Innlent

Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi

Til baka

Hallmælir hælisleitendum á eftirlaunum

Fyrrum vara­rík­is­sak­sókn­ari heldur uppteknum hætti

helgi Magnús
Helgi Magnús lét af embætti fyrr í sumarÞótti umdeildur í starfi.
Mynd: RÚV/Skjáskot

Í nýrri færslu Stefáns Einars Stefánssonar, fjölmiðlamanns á Facecbook, greinir hann frá því að hælisleitendamálin séu í tómi tjóni í Evrópu og birtir hann frétt máli sínu til stuðnings.

Sú frétt fjallar um morð sem framið var í Amsterdam fyrir stuttu þar sem 17 ára stelpa var myrt. Í haldi vegna málsins er 22 ára karlmaður en miðlar í Hollandi telja að um hælisleitanda sé að ræða.

Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrverandi vara­rík­is­sak­sókn­ari, tekur undir með Stefáni. „Nákvæmlega og fyrir nokkrum árum safnaðist fólk saman til að styðja hælisumsókn manns sem tilheyrir bræðralagi múslíma og til stóð að vísa úr landi ásamt fjölskyldu. Dmr beilaði og við sitjum uppi með hann. Bræðralag múslima er bannað í sumum ríkjum i Miðausturlöndum eins og Egyptalandi. Samtökin eru hugmyndafræðin á bak við öll þessi hryðjuverkasamtök sem við heyrum um alla daga vera að drepa saklaust fólk,“ skrifar Helgi við færslu Stefáns.

Sagði hælisleitendur ljúga

Helgi hafði verið gagnrýndur fyrir nokkur ummæli sem hann lét falla sem vara­rík­is­sak­sókn­ari en þau voru sögð hafa ýtt undir fordóma gagnvart samkynhneigðum og fólki af erlendum uppruna.

„Auðvitað ljúga þeir. Flestir koma í von um meiri pening og betra líf. Hver lýgur sér ekki til bjargar? Þar fyrir utan er einhver skortur á hommum á Íslandi?,“ skrifaði Helgi á Facebook við umfjöllun um upplifun hinsegin hælisleitanda og var hann í kjölfarið áminntur af ríkissaksóknara fyrir ummælin.

„Það eina sem stopp­ar þá er hnef­inn, vald­beit­ing,“ sagði Helgi svo um inn­flytj­end­ur frá Mið-Aust­ur­lönd­um.

Hann var leystur tímabundið frá störfum og sagði Sig­ríður J. Friðjóns­dótt­ir rík­is­sak­sókn­ari hann hafi, í kjöl­far áminn­ing­ar­bréfs sem Sig­ríður veitti hon­um, ekki bætt ráð sitt. Í fyrra fór Helgi Magnús á eftirlaun, níu árum á undan áætlun, eftir að ekki tókst að finna lausn á málum hans innan kerfisins.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi
Innlent

Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

Blóðug árás í Mjóddinni
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife
Heimur

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar
Myndband
Heimur

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti
Innlent

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti

Einn þingmaður mætti á mótmælin
Myndir
Innlent

Einn þingmaður mætti á mótmælin

Íhuga gerbreyttar reglur um hoppukastala eftir að sex börn létust
Heimur

Íhuga gerbreyttar reglur um hoppukastala eftir að sex börn létust

Birtan leikur um íbúð við Kuggavog
Myndir
Fólk

Birtan leikur um íbúð við Kuggavog

Innlent

Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi
Innlent

Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi

„Fötin rifna við minnsta tilefni og eigendurnir eru dónalegir.“
Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti
Innlent

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

Blóðug árás í Mjóddinni
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

Loka auglýsingu