1
Heimur

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife

2
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

3
Heimur

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar

4
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

5
Innlent

Manía í miðborginni

6
Innlent

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti

7
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

8
Innlent

Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi

Til baka

Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi

„Fötin rifna við minnsta tilefni og eigendurnir eru dónalegir.“

Sumavél
Saumavél
Mynd: Bozhin Karaivanov/Unsplash

Harðlega er deilt á Kölska í nýlegri umræðu á Reddit þar sem spurt er um reynslu fólks af klæðskerum og fyrirtækjum sem bjóða jakkaföt eftir máli á höfuðborgarsvæðinu. Þar koma fram nokkrar neikvæðar reynslusögur af fyrirtækinu, þótt aðrir viðskiptavinir segist hafa verið ánægðir með bæði þjónustu og gæði.

Rétt er að taka fram að þeir sem tjá sig í umræðunni koma ekki fram undir fullu nafni heldur notendanöfnum á Reddit. Ekki hefur verið unnt að sannreyna frásagnir þeirra og er hér því um persónulegar reynslusögur og fullyrðingar nafnlausra að ræða.

Upphafsmaður umræðunnar velti fyrir sér hvar bestu gæði og þjónustu væri að finna á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega þegar kæmi að svokölluðum full-canvas jakka. Herragarðurinn, Thomsen, Kölski, Suitup, John Tailor og Zantino voru meðal fyrirtækja sem nefnd voru.

Ein harðasta gagnrýnin beindist að Kölska. Notandi sagðist þekkja til reynslu þriggja vina eiginmanns síns af fyrirtækinu.

„Vinir eiginmanns míns hafa þrír verslað við Kölska og hafa slæma reynslu að láta sauma jakkaföt þarna,“ skrifaði viðkomandi og bætti við: „Fötin rifna við minnsta tilefni og eigendurnir eru dónalegir.“

Athygli vekur að 22 notendur Reddit hafa tekið undir þetta.

Annar notandi tók undir gagnrýnina og skrifaði einfaldlega: „Sama hér. Mæli ekki með Kölska.“ Sá hinn sami sagðist hins vegar hafa góða reynslu af Suitup og eiga þrenn jakkaföt þaðan. Elstu fötin væru um sjö ára gömul og enn í góðu ástandi.

Fleiri neikvæðar frásagnir birtust um Kölska. Einn notandi sagðist hafa heyrt af vandamálum tengdum afhendingu fyrir brúðkaup. „Hef heyrt fleiri en eina sögu af ónýtum brúðkaupum vegna Kölska – menn sem fengu ekki fötin sín í tæka tíð,“ skrifaði hann.

Ekki voru þó allir sammála gagnrýninni. Notandi sem sagðist hafa verslað hjá Kölska árið 2023 lýsti allt annarri reynslu. Hann sagði þjónustuna hafa verið vingjarnlega, fötin vel saumuð og að enn sæist lítið sem ekkert á þeim. Hann gagnrýndi þó hversu langan tíma ferlið tók.

Suitup fékk einnig bæði jákvæð og neikvæð ummæli. Einn notandi sagðist hafa „bara gott að segja“ um fyrirtækið og lýsti jakkafötum þaðan sem þeim bestu sem hann ætti. Annar sagðist hins vegar þekkja nokkra sem hygðust hvorki versla aftur hjá Kölska né Suitup.

John Tailor fékk öllu jákvæðari umfjöllun í þræðinum. Einn notandi sagðist nota fyrirtækið fyrir öll sín vinnuföt auk jakkafata og blazera. „Ég tel að gæðin séu mjög góð og verðið sanngjarnt. Mæli hiklaust með honum,“ skrifaði viðkomandi.

Einstaklingur sem segist vera faglærður klæðskeri og kjólameistari blandaði sér jafnframt í umræðuna og benti á að mikilvægt væri að gera greinarmun á eiginlegum sérsaumi og fatnaði sem saumaður er eftir máli. Að hennar sögn væru fyrirtækin sem talin voru upp í upphaflegu færslunni almennt ekki að sauma flíkurnar frá grunni hér á landi heldur væru þær saumaðar erlendis eftir mælingum eða mátun og síðan lagaðar eftir þörfum.

Mælti hún frekar með því að þeir sem vildu eiginlegan sérsaum leituðu beint til klæðskera og nefndi Saumsprettuna, Klæðskerahöllina og 7íhöggi.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

Blóðug árás í Mjóddinni
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife
Heimur

Flugvél rýmd í skyndi vegna sprengjuhótunar á Tenerife

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar
Myndband
Heimur

Dularfullt mál úr holræsakerfi New York-borgar

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti
Innlent

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti

Einn þingmaður mætti á mótmælin
Myndir
Innlent

Einn þingmaður mætti á mótmælin

Íhuga gerbreyttar reglur um hoppukastala eftir að sex börn létust
Heimur

Íhuga gerbreyttar reglur um hoppukastala eftir að sex börn létust

Birtan leikur um íbúð við Kuggavog
Myndir
Fólk

Birtan leikur um íbúð við Kuggavog

Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg
Viðtal
Fólk

Við lítum svolítið á lífið öðrum augum heldur en mörg

Innlent

Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi
Innlent

Deilt um gæði og þjónustu klæðskera á Íslandi

„Fötin rifna við minnsta tilefni og eigendurnir eru dónalegir.“
Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti
Innlent

Hópur ungmenna réðst á einstakling í Breiðholti

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag
Innlent

Ofsafenginn akstur og líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu í dag

Blóðug árás í Mjóddinni
Innlent

Blóðug árás í Mjóddinni

Loka auglýsingu